Lesbók Morgunblaðsins - 12.06.1960, Qupperneq 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
333
\
.VÁst og stjórnmál“ eftir Rattigan.
Leikstjóri Benedikt Árnason (10.)
' Fyrsta konan, Svanhildur Sigurjóns-
dóttir, lýkur prófi í framreiðslustörf-
um (11.)
Guðmundur Einarsson frá Miðdal
opnar málverka- og höggmyndasýn-
ingu í Helsingfors (12.)
Alþingi samþ. einróma tillögu um
áuknar krabbameinsvamir (12.)
121 -stýrimaður brautskráðist frá
Stýrimannaskólanum (14.) Sextán bú-
fræðingar brautskráðir frá Bænda-
skólanum á Hólum (14.)
Ferro, Guðmundur Guðmundsson,
hélt málverkasýningu í Reykjavík og
séldi yfir 90 myndir. Einnig hélt Hörð-
ur Ágústsson málverkasýningu í bæn-
um (20.)
Nefnd danskra áhrifamanna hefir
lagt fram nýa tillögu í handritamál-
inu. Er þar lagt til að ísland fái hand-
ritin (22.)
* Engel Lund heldur hljómleika í
Reykjavík (24.)
81 nemandi lauk prófi við Vélskól-
ann- (25.)
29 búfræðingar brautskráðir frá
Hvanneyri (28.)
Hafstein Austmann heldur mál-
verkasýningu í Bogasal Þjóðminja-
safnsins (29.)
MENN OG MÁLEFNI
Eyjólfur Konráð Jónsson, héraðs-
dómslögmaður, tekur við ritstjórastarfi
við Morgunblaðið (1.)
Ólafur Skúlason hefir verið ráðinn
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar (1.)
Alþingi kaus 5 manna nefnd til að
annast úthlutun atvinnu- og fram-
leiðsluaukningarfjár (13.)
Brági Kristjánsson, skrifstofustjóri
hjá Innflutningsskrifstofunni, hefir
verið skipaður forstöðumaður síma-
rekstrardeildar Landssímans frá 1.
júní (17.)
Eggert G. Þorsteinsson, alþm., hefir
verið skipaður formaður Húsnæðis-
málastjórnar (15.)
Dr. Þorkell Jóhannesson var endur-
kjörinn rektor Háskólans til næstu 3ja
ára (17.)
Björgvin Jónsson, kaupfélagsstjóri,
tekur sæti á Alþingi sem varamaður
Halldórs Ásgrímssonar, 2. þingmanns
Austurlands.
Axel Tuliníus hefir verið skipaður
sýslumaður Suður-Múlasýslu (31.)
SKAÐAR OG SLYSFARIR
Þrítugur maður, Guðmundur Marz
Sigurgeirsson, lenti í togvindu á tog-
aranum Fylki og beið bana (3.)
Kviknar í bíl, sem verið var að
bjarga eftir veltu, og ónýttist hann
með öllu (4.)
Hallgrímur Kristmundsson, verka-
maður, 31 árs, féll af 3ju hæð á húsi og
slasaðist mikið (11.)
Fimm ára drengur, Kristinn Þröstur
Helgason, beið bana í bílslysi í Nes-
kaupstað (13.)
Ung stúlka, Svanhildur Jónsdóttir
frá Skálanesi í Gufudalssveit, slasaðist
mikið, er traktor valt ofan á hana (17.)
Átta ára drengur, Markús Kjartans-
son, Hringbraut 80, Hafnarfirði, yarð
fyrir strætisvagni og beið bana (24.)
FÉLAGSMÁL
Björgvin Guðmundsson, hagfræðing-