Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 1
Húsfreyan á Hafurbjarnarstöðum Á NORÐMÆRI í Noregi er bær- inn Molde. Þar eru nú um 7000 íbúar, eða álíka margir og voru 1 Reykjavík, þegar landið fekk inn- lenda stjórn. Molde stendur norðan Raums- dalsfjarðar á fögrum stað sunnan undir skógi klæddri hlíð. Fram undan er fjörðurinn breiður og blár með nokkrum skógareyum og hólmum, en í suðri, handan við hann, rísa hin miklu Raumsdals- fjöll, 87 tindar í einni fylkingu og sumir þeirra rúmlega 2000 metrar á hæð. Er fögur sjón í góðu veðri að horfa yfir fjörðinn til fjall- anna. Inn úr Raumsdalsfirði sker- ast nokkrir smærri firðir þar skammt fyrir innan og heitir hinn nyrzti Fannafjörður. Inn með hon- um eru skógi þaktir hálsar og mikil byggð milli þeirra og fjarð- arins. Molde getur ekki í neinum norskum heimildum fyr en á 15. öld. Er ætlan manna að staðurinn hafi hafizt með því, að gerð hafi verið sögunarmylna við á sem þar er, og timburútflutningur hafist þaðan. Og enn er flutt út timbur í Molde, enda er nóg af skógunum þarna í grenndinni. En þar sem Molde stendur nú „Að fortið skal hyggja" Þegar komiö er inn í'fornaldardeild, Þjóöminjasafnsins, er þar í glerskáp öörum megin dyra „Hafurbjarnarstaöafundur- inn“, einhver merkilegasti fornleifafundur frá heiönum siö hér á landi. 1 uppgröfnu kumli hniprar sig þar beinagrind af konu, sem látizt hefir áöur en kristni var lögtekin. Hún er nafnlaus, en hér er reynt aö færa líkur aö því, aö þetta sé bein Jórunnar Svertingsdóttur, systur Gríms lögsögumanns á Mosfelli og Geir- nýar móöur Skáld-Hrafns, en móöursystur Skafta lögsögumanns Þóroddssonar. Sé þaö rétt, þá hefir þessi kona þekkt Egil Skallagrímsson og jafnvel veriö honum vel kunnug. Er þaö þá ekki einkennilegt aö hún skuli vera hér svo aö segja mitt á meöal vorf — mun hafa heitið Moldatún á land- námstíð. Landnáma segir frá því, að þar hafi búið sá maður er Hrólfur höggvandi hét, og bendir viðurnefni hans til þess að hann hafi ekki verið neinn skapdeildar- maður né friðarsinni. Tvo sonu átti hann og hétu þeir Vémundur og Gnúpur. Þeir voru járnsmiðir miklir og vígamenn. Þess er getið að Vémundur kastaði fram þess- um hendingum í smiðju sinni: Eg bar einn af ellefu banaorð. Blástu meirl 1 i

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.