Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 111 Smásagan Fyrsti geimfarinn SAGAN hefst hjá Canaveral-höfða í septembermánuði 1961. Hér liggur óvenjuleg eftirvænting í loftinu. Það er ef til vill vegna þess, að nemendur geimferðaskólans hafa nú verið hér í viku, en slíkt hefir aldrei komið fyrir áður. Ekkert er gert til þess að dylja það að þeir sé hér. En engin útskýring er heldur gefin á því hvernig á dvöl þeirra stendur. Svo er það um miðja nótt. Elds- neyti hefir verið sett í hina miklu Atlas-rákettu, og verkamenn eru hvarvetna önnum kafnir. Nokkuð til hliðar við þá er hópur manna og einn þeirra vekur sérstaka athygli. Hann er í geimferðabúningi og annar mað- ur heldur á hjálminum hans. Svo klifrar hann og nokkrir aðrir upp í flugskeytið. Þá eykst spenningurinn um helming. Nú vita menn hvað á seyði er. Hinn mikli dagur er upp runninn, er fyrsti maðurinn á að ferðast úr í geiminn. «----•-----4 Hann hefir nú beðið í klefa sínum í fulla klukkustund. Hann hefir orðið að bíða þarna aðgerðalaus, sitjandi á öflugri rákettu, sem bráðum verður hleypt af. Það tekur svona langan tíma að ganga frá öllu á flugstöð- inni. En nú er líka komið að örlaga- stundinni. í heymartækinu heyrir hann einhvern telja: Fimm. — Guð sé með þér, heyrir hann annan segja. Það er einn af félögum hans á stöðinni. Og svo er talið áfram: Þrír, tveir, einn ,... Og svo kveða við drunur undir honum, eins og allar þrumur heims- ins hafi sameinazt í eina þrumu. Það fer í gegnum merg og bein og hann fær suðu fyrir eyrun. En þetta er ekki nema andartak, og hugsun hans er skír. Hann horfir látlaust á mæla- borðið fyrir framan sig, hvort þar komi fram nokkur viðvörun að ekki sé allt í lagi. Svo heyrir hann fagn- aðaróp í heyrnartólinu, og þá veit hann að brottförin hefir tekizt vel. Þá grípur hann innileg gleði út af því að vera laus við jörðina. Og þessi hrifning er svo sterk, að hann hefir ekkert vald á henni. En jafnframt verður hann var við óþægilegan þrýsting. Hann hafði aðeins orðið var við drunurnar, að öðru leyti varð hann ekki var við neitt markvert er hann þeyttist á stað. Nú hafði hann verið á flugi í eina mínútu, og þrýstingur- inn jókst og margfaldaðist eftir því sem mótstaða loftsins varð minni. Og nú fannst honum eins og heljarfjall hefði lagzt á sig og væri að reyna að þrýsta sér niður úr klefanum. Nú gat hann fyrst skilið hvers vegna hann hafði lengi verið æfður við að þola mikinn þrýsting. Þetta var þó enn verra en hann hafði nokkuru sinni reynt áður. Honum fannst eins og ein- hverjar risahendur heldi um höfuð sér og væri að kreista það saman. Honum sortnaði fyrir augum. En með viljamætti tókst honum að sigrast á því, og svo hafði hann ekki augun af mælaborðinu. Nú sýnir klukkan að 3% mínúta er síðan hann lagði á stað. Og þá heyrir hann í heymartækinu: Skotið gekk ágætlega. Þú ert á réttri leið. Eftir 40 sekúndur verðurðu kominn á spor- baug. Líður þér ekki vel? Og það drafar í honum: Jú, jú. Hann starir á klukkuna. Fjörutíu sekúndur! Það er heil eilífð! Hann starir og telur. Tuttugu sekúndur, fimmtán, tíu, fimm .... Þessari ógnþrungnu ferð beint upp í loftið er nú lokið. Seinasta eld- flaugarþrepið losnar og nú er engin þörf fyrir eldsneyti lengur. Nú er að- eins Mercury-klefinn eftir, nokkurs konar örvandilstá, sem vísindin hafa kastað upp á himin og nú hefur göngu sína á ákveðinni braut. I stöðinni á Canaveral-höfða hafa margir menn safnazt saman um- hverfis þá tvo, sem eiga að stjóma þessu flugi. Annar þeirra á að hafa samband við geimfarann. Hann held- ur á taltæki og segir: — Heyrirðu til mín? Hvernig líður þér? Hefirðu vald á geimfarinu? Það er steinhljóð í salnum og menn ítanda á öndinni af eftirvæntingu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.