Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1961, Blaðsíða 16
111 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS FJALLASÝN í REYKJAVÍK. — Mynd þessi er tekin með sjónaukavél á Skúlagötu í Reykjavík. — Næst er Engey. Til vinstri er Akrafjall. en Esja til hægri. Milii þeirra sést Skarðsheiðin og skín sólin á hana. (Ljósm.: Ól. K. Magnússon) BRIDGE hefði átt að slá út LG, með því móti hefði þeir fengið þrjá slagi á lauf, einn á spaða og einn á tígul. Eitt eg skrítið úti sá, ei sem líta vildi, tveir í flýti tróðust á um tvinna nýta Hildi. X Á K 10 4 V Á K 6 ♦ G 10 7 6 * 10 6 A 9 8 3 V 10 4 ♦ K D 9 6 2 X Á K 9 N V A S X D 7 6 5 V 8 7 5 3 ♦ 43 X G 4 3 ♦ G 2 V D G 9 2 ♦ Á 8 X D 8 7 6 2 Sagnir voru þessar: N A s V 1 X pass 2 X pass 2 ♦ pass 2 gr. pass 3 gr. pass pass pass Út kom TK og S drap. Hann reyn- ir nú spaðann, en A hafði drottning- una og fekk slag á hana. Nú er allt undir því komið hvernig A spilar. Hann sló út láglaufi, S lét einnig lág- lauf og V varð að drepa með LK. Eftir þetta hefir S unnið spilið. A Uggur við hjónaband Vísur þessar, og ef til vill fleiri, er sagt að skagfirzkur hagyrðingur hafi kveðið daginn sem hann gifti sig, og fylgir sú saga að hann hafi ekki gengið glaður að öllu til leiks, enda benda vísurnar til þess. Líður á daginn meir og meir, mælt er allt og vegið, eftir eru tímar tveir, tíu’ hefir klukkan slegið. Einkis framar óska eg mér andans særður pínu, en að þeir væru aðeins tveir eftir af lífi mínu. Bardaginn á Breið Fyrir skömmu birtist í Lesbók vísa, sem gerð var út af „ævintýri á göngu- för“ á Breið hjá Ingjaldshóli. Nú kemur upp úr kafinu að vísurnar voru tvær, kveðnar af áhorfanda, og er því rétt að þær fylgist að: Ferðameiðar flugust á, fell til neyðar skóli, annar reiður undir lá út á Breið hjá Hóli. Hér er í fyrri vísunni sagt frá hvað þeim bar á milli. Teitur og Sigga Þegar Svartidauði kom í Ólafsfjörð, voru þar smalar tveir, sem hétu Teitur og Sigga. Það var einn morg- un snemma, að þau voru að smala uppi í fjöllum. Sýndist þeim þá ó- kennilega þoku leggja um allan Ólafs- fjörð, og réðu þau það því af að halda ekki ofan til byggða fyr en þok- unni létti af. Þoka þessi helzt mjög lengi, og höfðust þau alla þá stund við á fjöllum uppi. En er þokunni létti af, heldu þau til byggða. Var þá allt fólk í firðinum dáið. Þegar Ólafs- fjörður fór svo að byggjast á ný, varð stundum ágreiningur um jarðir og landamerki. Var þá jafnan leitað vitnisburða hjá Teiti og Siggu. Hér af er sprottinn málshátturinn: „Þá kemur nú til Teits og Siggu“. (Allra- handa)

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.