Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 311 hafi starfað (1855—1888) hafi honum borizt alls í samskotum og gjöfum 2792 krónur, og er þá hver ríkisdalur reiknaður á 2 kr. Nú voru liðin 30 ár síðan fyrst var úthlutað styrkjum úr sjóðn- um, og birta þeir yfirlit um styrk- veitingarnar fram að þessum tíma, og er sú skrá á þessa leið: 49 ekkjur sjómanna hafa feng- ið samtals kr. 3705.00. 9 föðurlaus börn hafa fengið samt. 560.00. 1 fátsekur maður fekk til að kaupa bát kr. 60.00. Samt. eru þá styrkirnir 4325,00 krónur, og eru það að meðaltali um 144 kr. á ári og mun sú tala ekki þykja há í loftinu nú á dög- um. Úthlutunin nemur því, að hver ekkja hafi fengið um 75 kr., en hvert barn um 62 krónur. Menn brugðust vel við mála- leitan sjóðstjórnarinnar að þessu sinni og söfnuðust nú kr. 1491.72. Seinasta fjársöfnunin fór fram árið 1893. Hinn 3. maí sendi Hall- dór Daníelsson bæarfógeti, fyrir hönd sjóðstjórnar eftirfarandi á- skorun til Reykvíkinga: „Formenn og útvegsmenn í Reykjavík, sem vilja gangast fyr- ir því, að skipshafnir þeirra leggi 3 fiska, eða þó minna væri, af hverjum hlut á þessari vertíð í Fiskimannasjóð Kjalarnesþings, svo og verka fiskinn og leggja hann inn í verslun þá, er síðar verður auglýst — eru beðnir að gera svo vel að rita nöfn sín hér undir“. Sams konar áskorun var send til formanna og útgerðarmanna í Hafnarfirði. Lögðu Hafnfirðingar sinn fisk inn hjá Knutzonsversl- un, en Reykvíkingar hjá Fischer- verslun. Söfnuðust á þennan hátt alls um 384 krónur. Eftir þetta hefir engin fjársöfnun verið reynd. Gjafir, og sektarfé í mannskaðaveðrinu mikla, sem kallað hefir verið Hoffmannsbyl- ur, nóttina milli 7. og 8. janúar 1884, fórust um 30 menn af Akra- nesi og Álftanesi. Þá minntist „Þjóðólfur“ á það, að hér mundi vera til sjóður, sem ætti að styrkja ekkjur og börn drukkn- aðra sjómanna. Og blaðið segir: „Væri ekki heppilegt að þeir, sem vera kunna stjórnendur hans, létu vita af sér, að þeir væru til og hétu eitthvað; því vér ætlum líklegt að sæta mætti nú færi að fá loforð fyrir nokkrum árlegum tillögum til þessa sjóðs, t. d. 1 fisk af hlut á hverri vertíð en það yrði stórfé“. Ekki varð það þó úr að sjóð- stjórnin hæfist handa, heldur gengust blöðin fyrir samskotum og var skipuð sérstök nefnd til þess að úthluta samskotunum. í þeirri nefnd voru E. Th. Jónassen bæarfógeti, Geir Zoega kaupmað- ur og Jón Ólafsson í Hlíðarhús- um. Þá var efnt til samsöngs í dómkirkjunni til ágóða fyrir þessi samskot, og fengust með því 200 •krónur. Sophus Tromholt fræði- maður flutti og opinberan fyrir- lestur um tunglið, og varð ágóði af honum 210 kr., sem runnu í samskotasjóðinn. Þess er ennfrem- getið, að á Seltjarnarnesi hafi safnazt rúmar 400 krónur. Öllu samskotafénu skifti nefndin þan’n- ig, að % hlutar þess runnu til ekkna og barna á Akranesi, en % fór til Álftaness. Þessi samskot fóru því fram hjá sjóðnum. En í reikningum hans þetta ár eru taldar minn- ingargjafir, rúmlega 200 krónur frá Seltirningum. Var helmingur frá eigendum skipsins „Klarinu", en hinn helmingurinn frá Fram- farafélagi Seltirninga. Ekki er þess getið í reikningnum í hvers minningu þetta var gefið. En seinna á þessu ári varð sjóðurinn að líta til Seltiminga, því að þá fórust tveir bátar frá Gróttu, annar með 7 mönnum, en af hin- um drukknuðu tveir. Sjóðnum voru altaf að berast smágjafir á hverju ári, og munu það ýmist hafa verið minningar- gjafir eða áheit, en ekki munaði mikið um þær. — Og sjóðurinn átti ítök víðar en hér í grennd. Árið 1886 barst honum t. d. 2 króna gjöf frá ónefndri stúlku vestur á Skógarströnd. Árið 1893 kemur nýr tekjuliður í reikningum sjóðsins. Er það sektarfé frá 3 hásetum á þilskip- um. Var einn þeirra á „Geir“, annar á „Engey“ og hinn þriðji á „Haraldi“. Tildrög að því voru þessi: Árið 1890 voru sett farmanna- lög. í 36. gr. þeirra laga er svo fyrir mælt, að skipstjóri hafi rétt til að beita sektum, ef menn hans gera sig seka um einhverjar yfir- sjónir, svo sem ósæmilegt fram- ferði um borð, að koma ekki til skips á réttum tíma, að yfirgefa bát sem farið er á til lands, að flytja farangur sinn frá borði leyfislaust, að fara af verði eða hittast þar drukkinn eða sofandi, að flytja áfengi í óleyfi um borð, að fara ógætilega með eld og ljós, að vekja illindi eða ófrið í skipi o. s. frv. Og í 41. gr. er svo ákveðið að sektir þessar skuli falla til einhverrar stofnunar, sem gerð er til hagsmuna farmönnum eða í þarfir siglinga, og skal lands höfðingi ráða því. — Með lands- höfðingjabréfi 18. sept. 1893 var ákveðið, að þessar sektir skyldu fyrst um sinn renna í Fiskimanna- sjóð Kjalarnesþings. Þannig stendur á því, að þessar sektir, sem námu 24.66 kr., eru taldar með tekjum sjóðsins. En ekki varð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.