Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1961, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
315
Sólarstöðin líkist tölustafnum 7 til-
sýndar.
tunglið væri annar hnöttur, sem
menn langaði til að skoða sem
allra bezt. Sama máli væri að
gegna um sólina. Og þess vegna
væri nú farið fram á að fá að
reisa stöð á Kitt Peak, svo hægt
væri að skoða þessa hnetti.
Indíánar voru mjög undrandi út
af því sem þeir sáu í stjörnu-
sjánni, og þótti þessi saga merki-
leg. Þeir fóru heim og boðuðu til
nýrrar ráðstefnu þjóðflokksins.
Þar skýrðu þeir frá því að sér
hefði snúist hugur, og nú væri
þeir samþykkir því, að „mennirn-
ir með löngu augun“, eins og þeir
komust að orði, skyldi fá að reisa
stöðina á Kitt Peak. Þetta var svo
samþykkt, þó með því skilyrði, að
ekki mætti raska neitt nokkrum
hellum, sem eru í fjallinu, því að
þeir væri heilagir. Á þetta skil-
yrði var þegar fallist.
— ★ —
Þegar sólarstöðin er komin upp,
verður hún ólík öllum öðrum
stjörnurannsóknastöðvum. — Þar
verður ekki hvolfþak. Undir há-
um klettavegg verður reistur
turn, sem verður ámóta hár og 10
hæða hús. Efst á honum verður
tveggja tonna spegill, 80 þumlung-
ar í þvermál, og er kallaður „heli-
ostat“. Hann snýst sjálfkrafa og
fylgir sólinni allan daginn. Sólar-
ljósinu, sem fellur á hann, verður
endurkastað á 60 þumlunga hol-
spegil, sem er 1 kjallara undir
turninum og eru 480 fet þar á
milli. Frá þessum holspegli verð-
ur ljósinu enn endurvarpað á 48
þumlunga spegil, og síðan frá hon-
um á hvítt málmborð þar sem
sólmyndin kemur fram miklu feg-
urri og skírri en nokkurn tíma
hefir áður þekkst. Þar verður svo
þessi sólarmynd rannsökuð.
Tvö ár var unnið að því að
finna upp og smíða frummynd að
þessari sólarsjá, og er hún hin
mesta hugvitssmíð. Hér kom
margt til greina. Hvernig átti t. d.
að koma í veg fyrir það, að hita-
bylgjur aflöguðu sólarmyndina?
Það var að mestu leyti gert með því
að hafa fyrsta spegilinn hátt uppi,
en þann seinasta djúpt í jörð. Og
til þess að verja sjálfan turntopp-
inn fyrir hitastraumum, verður
þar komið fyrir útbúnaði með
kælivatni. Þá var og eitt vanda-
málið hvernig turninn gæti orðið
svo traustur að hann haggaðist
ekki, því að hver lítil sveigja á
honum hlaut að afskræma sólar-
myndina. Fram úr þessu var ráðið
á þann hátt, að steypa annan
turn, sem liggur skáhallt frá brún
aðalturnsins inn í klettavegginn
og er grópaður 30 fet inn í hann.
Við þetta verður turninn svo ó-
hagganlegur, að enda þótt ofsa-
stormur skelli á honum, á hann
ekki að geta látið undan um
meira en sem svarar þúsundasta
hluta úr þumlungi. En fyrir þetta
byggingarlag verður stöðin mjög
einkennileg tilsýndar, einna líkust
tölustafnum 7.
— ★ —
Þegar þessi stöð er fullger, er
næsta skrefið að koma upp
stjörnusjá úti í geimnum. Er gert
ráð fyrir að henni verði skotið
upp í 35.000 km. hæð, þar sem
gufuhvel jarðar geti ekki haft
nein áhrif á hana. Þarna getur
hún verið að allan sólarhringinn,
ótrufluð af gufum og mistri, og
sent upplýsingar sínar til jarðar.
Það er svo sem ekki að vita
hvenær slík stöð kemur. En þegar
hún er komin og vísindamennirnir
eru famir að færa sér í nyt upp-
lýsingar hennar, þá á það ekki
illa við að kalla þá „mennina með
löngu augun“, eins og Papago
Indíánar komust að orði — og þó
í afleiddri merkingu.
Loftsteinar
ÞÓTT stjörnuhröp sé mjög tíð,
er það sjaldgæft að loftstein-
ar lendi á jörðinni. Þeir eru yfir-
leitt svo smáir, að þeir brenna
upp til agna áður en þeir koma
í námunda við jörð. Þó komast
fleiri og færri st^inar í gegnum
gufuhvelið á hverju ári, en venju-
lega sundrast þeir í smáagnir um
leið og þeir snerta jörð.
Nú er vísindamönnum mjög í
mun að ná í þessar smáagnir, því
að þær geta gefið ýmsar upplýs-
ingar, sem geta orðið að gagni
fyrir geimferðir.
' í Bandaríkjunum komast vís-
indamenn yfir brot úr einum loft
steini að meðaltali á ári, en þar
í landi er talið að fimm loftsteinar
falli til jarðar að meðaltali á ári.
Þess vegna hefir nú verið hafist
handa um að ná í sem mest af
þessum steinflísum, sem komnar
eru utan úr geimnum, og mun
verða greitt hátt verð fyrir þær.
Það er Smithsonian Institution,
sem tekið hefir að sér umsjá þess-
arar söfnunar, og mun sjá um að
leitað verði vandlega hvar sem
loftsteinn kemur niður,