Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1962, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1962, Síða 6
V1 YRIR 110 árum (1852) reisti þýzkur timbur- maður, G. Ahrentz, hús það, sem nú er Lækjargata 4. Hann var kvæntur íslenzkri konu og dóttir þeirra var Ágústa, sem giftist Er- lendi Árnasyni snikkara og voru þau foreldrar Einars Erlendssonar byggingameistara. Ekki bjó Ahr- entz í húsinu nema fjögur ár. Þá keypti hann vindmylluna miklu í Bankastræti af Knudtzon. En Helgi biskup Thordersen keypti þá húsið í Lækjargötu og átti þar heima til dauðadags (1867). Biskup hafði áð- ur átt heima í Laugamesstofu, sem upphaflega átti að vera „ævarandi biskupssetur“, en lagðist nú niður eftir 30 ár, vegna þess hve húsið var lélegt og samgöngur þangað erfiðar. Fram að þessu hafði húsið í Lækjargötu verið nefnt Ahrentz- hús, en nú var skipt um nafn á því og það kallað Biskupshúsið. Kona Helga biskups var Ragn- heiður, dóttir Stefáns amtmanns Step- hensens á Hvítárvöllum. Þau áttu tvö böm, Stefán og Ástríði, sem giftist Sig- urði Melsted. Stefán var allra manna fríðastur og vel á sig kominn, en var skemmdur af of miklu eftirlæti. Hann varð stúdent frá Bessastaðaskóla 1843 og sigldi þá til Kaupmannahafnar og setlaði að leggja stund á lögfræði við háskólann. Var hann þar í mörg ár, en lítið varð úr námi. Segir Gröndal að hann hafi mest stundað fjárhættuspil, en það var þá bannað. Var hann svo leikinn í knattborðsleik, að engum þýddi að keppa við hann. „Einu sinni var hann kallaður fyrir Braestrup lög- reglustjóra, og vissi hann hverra manna Stefán var. „Hver hefur kennt yður að spila?“ spurði hann (hann meinti, tælt hann út í það). „Móðir mín“, segir Stefán. „Ó, farið þér til fjandans", sagði Bræstrup og þar með var sú yfirheyrsla búin“. — Stefán kom próflaus heim og reyndi að halda upp- teknum hætti. „Hann fékk jafnvel kaupmennina á klúbbnum, roskna og ráðsetta menn, til að spila „klink“ eins og götudrengi“, segir Gröndal. Stefán var settur sýslumaður í Rangárvalla- sýslu 1859 og í Vestmannaeyjum 1860— 61. En 1863 var hann vígður prestur til Kálfholts og gegndi því embætti til 1876, en fékk þá lausn. Níu árum seinna var honum veitt Ofanleiti í Vestmannaeyjum og var hann þar prestur til æviloka 1889. Hann var kvæntur Sigríði, dóttur Ólafs dóms- málaritara í Viðey og voru þau for- ins og fyrr segir í þess- um greinum er margt góðra gripa, sem frú Þorbjörg Berg- mann safnaði á sínum tíma varð- veitt í Árbæjarsafni. Kirkjugrip- ir úr safninu voru að sjálfsögðu lagðir til torfkirkjunnar, þegar hún var reist, en vegna ókunn- ugleika um uppruna nokkurra muna, verða þeir að segja sögu sína sjálfir eftir útliti, skreyt- ingu og, í þezta falli, áletrun- um. Þessi saga verður þó aldr- ei einhlít og ættu góðir menn, ef til þekkja, að bæta við hana. Svo er t.d. um fjöl úr bekk, að því er ætla mó, bakfjöl úr brúðar- bekk, með upphafsstöfum og fugla- myndum á miðrein en höfðaleturs áletrun á böndum að ofan og neð- an. Því miður er fjölin slitin til beggja enda, svo að. ártal vantar, en dagssetningin er 28. júní, sem gæti komið heim við giftingardag Hannesar biskups Finnssonar og fyrri konu hans Þórunnar Ólafsdótt- ur í Sviðsholti á Álftanesi 28. júni 1780. Við tilgátuna situr í bili. ]\ okkru - eftir að aðalsafni frú Þorbjargar hafði verið komið fyrir í Árbæ kom í leitirnar meðal eftir- látinna muna hennar lítil grænlit- uð, prjónuð pyngja eða sekkur, eiarar Ragnheiðar, konu Hannesfer Hafsteins ráðherra. Meðan Helgi biskup bjó í Lækj- argötu 4 var þar eitt mesta og virðu- legasta höfðingjasetur í bænum. Að honum látnum fluttist Jón Hjaltalín landlæknir þangað og var þar leigjandi um nokkur ár. Átti að selja húsið, en það var ekki fyrr en 1874 að Bjami Bjarnason á Esjubergi keypti það. — Gröndal fluttist hingað þá um haustið og var um veturinn í Doktorshúsinu, en var húsnæðislaus með vorinu. „Fékk ég þá Bjama á Esjubergi til að leigja mér og settumst við að niðri, en í efri herbergjunum bjó Pétur Péturs- son (faðir dr. Helga Pjeturss). Þegar Þorlákur Johnsen kvæntist urðum við að flytja upp, en Pétur fór þá. Þarna vorum við eitthvað sjö ár, höfðum 2 stórar stofur og 2 herbergi minni og eldhús. En svo fór Þorlákur að eiga börn og þurfli að hafa meira um sig, svo við gátum ekki verið þar lengur“, segir Gröndal í Dægradvöl. Hann mun hafa búið þarna 1875—1881. orlákur Ó. Johnson kaupmaður kvæntist Ingibjörgu, dóttur Bjarna á Esjubergi árið 1876. Hann hafði áður vcrið við verzlunarnám í Englandi og síðan bókhaldari hjá Fiseherverzlun, en hafði nú keypt verzlunarhús Robbs í Hafnarstræti (nú nr. 8) og byrjaður að verzla þar. Hann vildi kenna ís- lendingum nýja verzlunarháttu eftir enskri fyrirmynd og varð um margt brautryðjandi hér á því sviði. Hann hóf fyrstur kaupmanna að auglýsa vör- ur sínar bæði í blöðum og á götum úti, og lét jafnvel bera auglýsingablöð í húsin. Þrátt fyrir þetta gekk verzlun hans ekki vel og hætti hann eftir nokk- ísaumaður með mjög fínum gler- perlum. Sama máli skiptir um sekk- inn og fjölina, að hafa verður það sem út verður dregið af lýsingu hans meðan annað liggur ekki fyrir. Áletranir tveggja vegna á sekkn- um eru eindregið kirkjulegar, ann- arsvegar I.H.S., hinsvegar I.N.R. Hin fyrri er raunar algeng á út- ur ár. En þá tók kona hans við og setti á fót verzlun í heimahúsum, Verzlun Ingibjargar Johnson, og gekk hún svo vel að hún er enn vi§ ljffi. E n með tengdamóður sinni setti Þorlákur á fót „Café og Conditori Her- mes“, og var það hin fyrsta stofnun sinnar tegundar hér á landi. Hún var í húsinu við Lækjargötu. Annars brauzt Þorlákur í mörgu og mátti með nokkr- um sanni segja að hann hafi verið hrókur alls fagnaðar hér í Reykjavík á sinni tíð. Var þá lítið um skemmtan- ir og fræðslu fyrir almenning hér, en Þorlákur taldi að hvort tveggja væri nauðsynlegt til þess að draga fólkið upp úr volæðinu. Hann hélt fræðslu- erindi með skuggamyndum og höfðu þá slíkar myndir ekki sézt hér áður. Hann stofnaði Sjómannaklúbbinn, sem hafði aðsetur í stórhýsinu Glasgow. Þar var opið daglega og voru þar töfl og spil handa mönnum. Á sunnudögum voru þar haldnar guðsþjónustur, og svo fékk Þorlákur hæfustu menn bæj- arins til þess að flytja þar fyrirlestra á kvöldin. Þetta var menningarstofn- un, en hún lagðist niður eftir eitthvað tvö ár og mun kostnaður hafa valdið. Hann stofnaði og drengjakór. orlákur andaðist 1917 og hafði þá lengi verið heilsutæpur. En kona hans hélt verzluninni í Lækjargötu á- fram með skörungsskap og bjó þarna í húsinu til æviloka, 1920. Eins og á þessari stuttu frásögn má sjá, er hús þetta með merkari húsum í bænum, vegna þess hve lengi bjuggu þar höfðingjar, hver fram af öðrum. En nú mun það senn hverfa. Seðla- bankinn hefur keypt það og mun láta rífa það og reisa stórhýsi á lóðinni. skornum munum t.d. rúmfjölum, það eru upphafsstafir Jesú á grísku, Jota, eta og sigma, en hin síðari er skammstöfun á: Jesus Nazarenus Rex og getur varla bent til annars en þess, að sekkurinn hafi verið í kirkjulegri notkun. A ð handbragði er sekkurinn hið ágætasta verk, prjónaður úr fín- asta þræði og örsmáar perlur teknar upp á þráðinn í tvöföldum doppótt- um bekk að ofan og neðan svo og í öðru skrautmynstri í sambandi við áletranir og í stétt sekksins. Perluraðir í mynstri, áletrunum og Frh. á bls. 11 BÚNAÐUR UM MESSUVÍN 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.