Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1962, Síða 7
■^Ccsbóh
F ræðafél agið
FRÓÐI
IESBÓK æskunnar
1 kynntr í dag
Fræðafélagið Fróða. Það er
una margt sérstætt félag,
því að það er ekki nógu
algengt að ungt fólk iðki
þær gömlu og hollu list-
greinar framsögu og rit-
mennsku. Gaman væri að
fá fréttir frá fleiri slíkum
hópum og birta eitthvað úr
viðfangsefnum þeirra eins
og hér er gert.
Lesandi góður.
I Að þes.su sinni hefur Fræða
félagið Fróði í Reykjavík tekið
; þessa síðu að sér að nokkru
I leyti. Það mun þykja hlýða, að
; með fylgi nokkur skýring og
I iýsing á félagi þessu. — Fer
Ihún og hér á eftir.
' Félag þetta var stofnsett
Ihinn 17. apríl 1959. Er það því
tæpra 3ja ára nú.
Frá upphafi hefur félagið
vaxið jafnt og þétt. Telur það
uú. eina 20 meðlimi.
Mjög strangar reglur giida
um inntöku nýrra félaga. Yfir-
leitt er sá háttur á hafður, að
eimhver félagsmanna leggur
fmm tillögu um nýjan meðlim.
Er sú tillaga síðan rædd sem
(hver önnur væri.
Fundir eru háðir með félag-
inu einu sinni í viku. Skiptast
þeir í tvennt, þó allir séu félags
fundir, sem ræða almenn fé-
Einn ræðumanna.
Fclagar í Fróða á fundi.
lagsmál. Er annar hver um-
ræðufundur nokkurskyns mál
fundur, en annar hver fundur
fyrirlestur, erindi eða dagskrá
um eitthvert fræðandi efni.
Skylda er hvers félagsmanns
að sækja fundi og starfa virkt
í félagimu.
Starfsemi félagsins miðast
aðallega við þrenmt:
Fræðslustarf, er fram fer
með erindum og fyrirlesti'um
fróðra manna, og dagskrám, er
einhverjir félagsmenn annast,
og umræðum félagsmanna
sjálfra.
Málhreinsunarstarf, er fram
fer í alhliða fræðslu á málefn-
um rétts framburðar íslenzkrar
tungu, og rétts og fagiurs orða-
vals.
Félagisstarf, er fram fer 1
hverskyns æfing félagsmanna
í starfsemd félags og þátttöku
þeirra í störfum og umræðum.
Fastur liður í störfum félags-
ins er stöðug samkeppni um
hverskyns efni lista og bók-
mennta. Um hana sér Dóm-
nefnd Fróðaverðlauna.
Afstöðu til stjórnmála tekur
félagið enga, nema bá að ísland
sé fyrir íslendinga og enga
aðra. Telur félagið mikilvægt,
að það fylli menn sem flestra
og ólíkastra skoðana á hverju
máli.
Nokkra samvinnu hefur fé-
lagið nú við Æskulýðsráð
Reykjavíkur. Er hún einkum
fólgin í því að félagið þiggui
af ráðinu húsnæði.
Félagið heldur sér að mestu
utan allra samtaka. f>að starfar
algjörlega sjálfstætt og óháð.
Félagsstjórn skipa fimm
menn: Forseti, Vara-Forseti,
Ritari, Féhirðir og Meðstjóm-
andi.
Forseti er nú Pétur Guð-
geirsson. Telst heimilisfamg
Porseta heiimilisfang félagsins.
Það er nú Miklabraut 10, sími
10204.
MORGUNN
Það er morgunstund mild,
sem að myrkursins vald
flæmir braut yfir bláhvelið
víða.
Nú rís gullsólin gild
yfir grundanna fald,
og hún lýsir upp Fóstjörðu
MYNDAVÉLIN
ÞA er lcomið að myndavél-
inni, í þessu tilfelli kulum
við nota kassavél. Við setj-
Um filmuna í, snúum spól-
unni þar til talan 1 kemur
í Ijós í rauða glerinu á baki
vélarinnar, en gætum þess
að sól eða sterkt rafljós
skíni ekki á spóluna á með-
an, nóg er að snúa sér frá
birtunni og mynda þannig
sjálf nægilegan skugga. Við
erum nú tilbúin til að taka
mynd, en áður skulum við
aðeins lita á vélina sjálfa.
Kassavélar (hér notað um
allar einfaldar vélar) hafa
yfirleitt aðeins tvær hraða-
stillingar, sem eru tími
(tákn B eða T) og ]/:io hluti
úr sek. (M, L eða 30). — Á
mörgum þeirra er aðeins
ein ljósopsstærð, en sumar
hafa ljósop 8 og 11 eða 11
og 16. Linsa þeirra er lítil
og einföld, en smæð henn-
ar gefur möguleika til mik-
illar skarpleikadýptar,
þannig að sæmilega skýr
mynd fæst allt frá 2 m fjar
lægð til fjalla í fjarska. Ef
það sem mynda á er í
minna en 2 m fjarlægð er
hætt við að myndin verði
ósköi'p (ekki í focus). — Á
meðfylgjandi mynd sjáið
iþ telpu og hús í baksýn,
telpan var of nálægt vél-
inni og sneri baki í birt-
una, útkoman verður því
sú að andlit telpunnar er
alveg í skugga og óskýrt,
en húsin, sem auðvitað
voru aukaatriði, koma bet-
ur fram og verða skýrari.
Á sumum kassavélum er
aukagler, sem færa má fyr-
ir linsuna og þannig ná
skýrum myndum í 1—2 m
fjarlægð. Lítill lokarahraði
O/30 úr sek.) gerir það að
ekki þýðir að taka myndir
af fólki eða hlutum á mik-
illi hreyfingu, því að þá
verður myndin hreyfð, þó
ber minna á slíku ef hreyf-
ingarstefnan er að eða frá
vélinni, heldur en ef hún
er þvert á hana. Á hinni
myndinni sjáið þið dreng,
sem sveiflar handleggnum,
en hann sést ekki yel á
myndinni, því að lokara-
hraðinn er svo lítill að
handleggurinn færist mikið
á meðan ljósið streymir inn
um linsuna, hinir hlutar
drengsins eru lika svolítið
hreyfðir, en gatan er vel
skýr. — Ef lokarahraðinn
væri meiri, þá gætti síður
hreyfingar í myndinni. Þá
þarf einnig að gæta þess
að sól skíni ekki á linsuna
þegar mynd er tekin, því
að þá er hætt við speglun
í linsunni og getur það
eyðilagt góða mynd. Við
lítum í myndleitarann og
ákveðum hvenær rétt er að
„smella af“, en gætum þess
að halda vélinni stöðugri á
meðan mynd er tekin. Það
má taka góðar myndir á
kassavélar ef sólskin er
eða birta sæmileg, því að
flestar svart-hvítar filmur
þola nokkra undir- eða yf-
irlýsingu og nota má mis-
munar.di myndapappír til
að rétta af lýsingu á
filmu. Þó eru kassavélar
illa fallnar til myndatöku
innanhúss, nema þær séu
þannig gerðar að tengja
megi leifturljós (flash) við
þær.
fríða.
Nú fer lifnandi líf,
nú hefst löngun á flug.
Það er albjart á árdegisstundu.
Nú fer stonmhviða stíf
yfir storð, gegnum hug.
Sólin ryður nú gulli á grundu.
Það er gaman og glatt
út um grundir og teig.
Nú rís dagur úr djúpsævi
nætur.
Upp á brúnriðið bratt
sé ég bálið, er hneig,
og nú fólkið mitt fljótt gl’eðjast
lætur.
Nú er kæti og kátt,
og nú kveður við lag.
Nú er bjart yfir bylgjunum
reiðu.
En af himninum hátt
sólin horfir í dag,
og hún svífur um ljósheima
leiðu.
Eg syng birtunni brag
út um byggðir og skörð.
Og nú fjallið mitt tón undlr
tekur.
Hvílík dýrð þennan dag!
Hvílík dósemd á jörð!
Það er morgunsins mund, sem
að vekm:.
Leir ljóðari
15 ára.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7