Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1965, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 07.03.1965, Blaðsíða 10
----------- SÍMAVIÐTALID ------- Gamla krónan í fullu gildi 16369. — Bókamarkaðurinn í Lista- mannaskálanum. — Er Lárus Blöndal við? — Augnablik. — Lárus. — Góðan daig, þetta er hjá Lesbók Morgunblaðsins. Hvern- i(g gengur bókamarkaðurinn? — Aðsókn er meiri en nokkru sinni fyrr og getur vel verið að við framlengjum hann eitthvað. — Hverjir standa að markað- inum? — Bóksalafélag íslands, það er að segja útgefendur. Við Jónas Eggertsson höfum séð um markaðinn á undanförnum árum. í>að er orðin föst vtr ja að halda slíkan markað einu sinni á ári. Þessi tími er val- inn, þar sem útgefendur eru nú búnir að kalla inn baekur sínar utan af landi. — Hvernig bækur eru helzt til sölu þarna? _ — Þar kennir margra grasa. A 3. þúsund titlar munu vera á boðstólum, sumt eru aðeins pésar en svo eru einnig góðar bækur í vönduðu bandi. A þess- um markaði koma fram í dags- Ijósið síðustu eintök ýmissa bóka og hafa sumar þeirra ekki sézt í búðum lengi. Bókamenn koma á markaðinn til að at- huga, hvaða bækur séu að verða uppseldar, enda hækka þær í verði hjá fornsölum um leið og búið er að selja siðustu eintökin hér í Listamannaskál- anum. — Hvað segirðu um verðlag- ið á bókunum hjá ykkur? — Sumar eru á gamla verð- inu, en aðrar hafa verið lækk- aðar um 30% til 70% frá því. Kjörorð bókamarkaðarins er: ,,Gamla krónan í fullu verð- gildi“. Það er hægt að gera mestu reyfarakaup þarna. Til dæmis er hægt að fá ljósprent- aða útgáfu (1945) Ijóðmæla Bjarna Thorarensens frá 1847 bundna í alskinn fyrir 3'8 krón- ur. Ljósprentun á Grallaran- um, sem gefinn var út af Guð- brandi biskupi á Hólum 1594, kostar 200 krónur, Norðurfari ljósprentaður, 1848 til 1849, fæst innbundinn á 50 krónur. — Hvers konar fólk sækir markaðinn bezt? — Það er erfitt að dæma um það, en óhætt er að segja, að hingað kemur mikill fjöldi af ungu fólki, svo að ekki styður það þá skoðun, að æskan eyði öllum sínum peningum í svall. Menntaskólastrákar koma hing- að og kaupa talsvert af fræði- ritum og handbókum, sem kannski eiga eftir að koma þeim að góðu haldi við námið síðar. Hér fást til dæmis 6 bindi af Samtíð og sögu, há- skólafyrirlestrum, og kostar hvert bindi 27 krónur. Úr annáiu m mi ða!d a Guðmundur Guðn/ Guðmundsson iók saman 1251 Mangú sonarsonur Djengis Khans valinn til að vera stór-khan yfir öllum Mongólum. Ráðstefnan, sem staðið haíði tvö ár til að velja stór-khan, ákvað að skipta ríkinu í fjögur svæði: Kína, Turkestan og Afagnistan, írak og íran og Rússland og Vestur-Síberíu. ísland. Sturla Þórðarson verður lögsögu- maður. Þeir Þorvarður og Oddur Þórar- inssynir verða sekir um hernað á Alþingi og þeir Loftur Hálfdán- arson og Magnús Jónsson. Drukknun Sæmundarsona. Sætt Þórarinssona og Ormssona. 1252 Þetta ár er Stokkhólms í Svíþjóð fyrst getið í heimildum. D. Abel Danakonungur. Kristófer I verður konungur Dana. Hann var albróðir Abels. Þá hefst bar- átta milli kirkju og konungsvalds í Danmörku. Mongólar leggja Tíbet undir yfir- ráð sín. Island. Hrani Konráðsson dæmdur sekur skógarmaður. Þorgils skarði og Gizur koma heim frá Noregi ásamt Heinreki biskupi og voru þeir með konungs erindi. Hafði Hákon skipað Giz- ur yfir Norðlendingafjórðung en Þorgils yfir Borgarfjörð. Stafholtsför að Þorgils skarða. Ólafur hvítaskáld verður lögsögu- maður annað sinn. Víg Ormssona, Sæmundar og Guðmundar. 1253 Sætt Hákonar Noregskonungs og Dana. Valdemar III verður hertogi af Suður-Jótlandi. Mongólar og Kublai Khan herja á Suður-Kína. Konráð IV hertekur Napólí á íta- líu. ísland. Gizur Þorvaldsson flytur að Flugumýri. Gizur einráður á Alþingi. Nokkrir íslenzkir höfðingjar gefa upp goðorð sín í hendur Hákoni konungi. Síðumúlaför. Alþingi samþykkir forgangsrétt- indi guðslaga fyrir landslögum. Flugumýrarbrenna 22-10. Þar átti að drepa Gizur en hann komst nauðulega undan með því að fela sig í sýrukeri. Kona hans Gróa Álfsdóttir og þrír synir þeirra fórust í brennunni. Þegar brennu- menn komu sat Gizur að brúð- kaupi Halls sonar síns og Ingi- bjargar Sturludóttur Þórðarson- ar. D. Hafliði prestur Steinsson að Breiðabólstað í Húnaþingi. 1254 Kaupmannahöfn íær kaupstaðar- réttindi. F. Marco Polo landkönnuður. Hann dvaldi lengi í Kína, einkum við hirðina þar. ísland. Gizur fer á konungsfund. Hann var þá kyrrsettur í Noregi. Áður Gizur fór utan setti hann Odd Þórarinsson yfir Skagafjörð. Bardagi í Grímsey, og víg Hrana Koðránssonar. Oddur Þórarinsson handtekur Heinrek biskup. Útkoma Sigvarðar biskups. 1255 ísland. Hákon Jconungur fær þeim Gizuri og Þórði kakala sýslur í Noregi. fvar Englason sendur til íslands. 14-1. Eyjólfur ofsi Þorsteinsson og Hrafn Oddsson fella Odd Þór- arinsson í Geldingaholti í Skaga- íirði eftir frækilega vörn. Þorgils skarði gerist höfðingi Skagfirðinga. 19-7. Þverárbardagi, þar var felldur Eyjólfur ofsi og svo hefnt Odds Þóarinssonar. 1256 Hansastaðaborgirnar Lubeck. Rostock, Wismar, Stralsund og Greifwald halda sitt fyrsta kunna þing eða félagsmót, en nafn þess mun þó ekki hafa verið samþykkt. þá. Það er fýrst 1358 að nafnið „Stadte von der Deutschen Hanse“ finnst í skjali einu. ísland. ívar Englason, Þorgils skarði og Heinrekur biskup fá Skagfirð- inga og Eyfirðinga til að játast undir skatt til Hákonar konungs. 10-10. D. Þórður kakali Sighvats- son í Noregi. Um dauða Þórðar kakala orti Hannes Hafstein frægt kvæði. 1257 Kristín dóttir Hákonar Noregs- konungs gefin saman við bróður Spánarkonungs og send með mikilli viðhöfn suður á Spán. Hið konungslausa tímabil hefst í Þýzkalandi. ísland. Hákon skipar Þorgils yfir Eyja- fjörð og nágrenni. Steinvör Sighvatsdóttir fær Þor- varði Þórarinssyni heimildir í Eyjafirði. D. Þorleifur í Görðum Þórðarson goðorðsmaður. mikill íylgismað- ur Snorra Sturlusonar. Margír koma á bókamarkað- inn til að líta á bækurnar, en ætla ekki að kaupa neitt. Svo þegar inn er komið, sjá þeir margar eigulegar bækur á 50 til 100 krónur, standast ekki matið og fara að kaupa. Þótt góð bók sé gömul að árum, er hún jafngóð og ný fyrir þann, sem kann að meta hana. 1258 Mongólar undir stjórn Hulagu reka Abbasida frá völdum í Bag- dad- og leggja borgina í eyði, og lauk þá yfirráðum hinna arabísku kalíía þar en þeir höfðu ráðið þar í 637 ár. Abbasidarnir fluttu þá til Kairó. Englendingar hópast vopnaðir á fund enska parlamentisins í Ox- ford, og reka burtu alla franska .aðalsmenn er hinn franskættaði konungur þeirra hafði safnað til sín. ísland. 22-1. veginn Þorgils skarði að Hrafnagili í Eyjafirði. Var það gert að ráði Þorvarðar Þórarins- sonar, síðasta goðans á íslandi. Hákon gerir Gizur að jarli. Gizur kemur heim um haustið og kemur sér upp hirð 1-11. 1259 D. Kristófer I Danakonugur. Ei- ríkur klipping sonur hans og Margrétar drottningar af Pomm- ern íhún var dóttir Samors fursta af Pommern) verður konungur Dana, en Margrét var sökum æsku Eiríks V sonar síns hinn eiginlegi stjórnandi Danaveldis. Island. Gizur kaupir Stað á Reynisnesi (Reynistað). Gizur fer herför um Rangárvelli. Þorvarður Þórarinsson dæmdur sekur á Alþingi. Þórður Andrésson reynir að fá Brandssonu í samsæri móti Gizuri. Sturla Þórðarson gerist lendur maður Gizurar, og íær vilyrði fyr- ir Borgarfirði. D. Ólafur hvitaskáld Þórðar- son. Leidd hafa verið nokkur rök að því, að Ólafur hafi ritað Knytt- lingasögu um Danakonunga og einnig Laxdælu. Hann var með Valdemari sigursæla Danakonungi og þá sæmdir af honum. Ólafur var í mörgum bardögum með Sturlungum. 1260 Kublai verður stór-khan. Skalarnir fá yfirráð yfir Veróna á Ítalíu. ísland. Hákon konugur sendir Alþingi bréf og krefst skatts. Alþingi neitaði skattkröfunni. Fundur að Þingskálum, sem var vorþingsstaður á Rangárvöllum. Rangvellingar og Oddaverjar sverja Gizuri jarli og Hákoni Noregskonungi trúnaðareiða. Jarðskjálfti hinn mikli í Flatey á Skjálfanda. 1261 Grikkir vinna aflur M’1,1''"''rð (Konstantínópel) og endurreisa ríki sitt, gríska ríkið. Baibars emir sigurvegpri vfír Mongólum í Bagdad verður sol- dán Egypta. Grænlendingar ganga - '■Svj Noregskonungi. Ív1»r»d. Hallvarður guHrVór k—*il landsins með bréf frá HáVn-' 'T^r- egskonungi. Hrafn Oddsson fær yfirráð vfir Borgarfirði. Hafís umhverfis fsland. 10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS- 9. tbl. 1965.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.