Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1965, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1965, Blaðsíða 3
RJOMATERTAN Eftir Orn H. Bjarnason Sjónvarpsmyrkrið lagðist eins og blá sliikja yíir stofuna, svo að það sást naumast hvað húsbúnaður allur var fá- tæklegur. Húsmóðirin sat í snjáðum hæg indastóli og dreymdi, að lífið væri silki- mjúkt ævintýri. Fólkið á skerminum sagði ekki neitt og það var þögn, nema hvað húsbóndinn hraut upp á divan og lítil sjö ára dóttir þeirra hjóna var eitt- hvað að dunda á gólfinu. Móðirin braut sér leið út úr vökudraumnum og sagði: „Vertu stillt væna mín svo þú vekir ekki hann pabba þinn.“ Litla hnátan stóð upp og læddist til- litssömum skrefum fram, en móðirin fór aftur inn í drauminn og lokaði að sér. Húsbóndinn hélt áfram að hrjóta eins og hann ætti allan heiminn og meira til, en legubekkurinn dugði naum ast hinum fyrirferðarmikla líkama, og út í hálfrökkvað herbergið stóð dálag- leg ýstra, sem bar vott um nokkra hag- sæld. Bróðurparturinn af þessu mikla kjötfjalli lafði slyttislega út af legu- bekknum, eins og mjölsekkur á mjórri fjöl. Andlitið var rautt og sumsstaðai fiólublátt og með pokum hér og þar, eins og til þess að auka enn frekar á tilbreytinguna. Konan leit af skerminum á mann sinn og það var kvíði í svip hennar. Á morgun átti að halda upp á fjörutíu og þriggja ára afmæii hans. Það voru svo sem ekki stórmerk tímamót í lífi eins manns — og þó. • Áfram héldu hroturnar reglulegar og taktfastar. Neðri vör karlsins var dálítið eins og á Búddhalíkneski, slap- andi góðan spöl í áttina að bringunni. Það myndaðist skeifa á munni konunar, sem náði næstum í heilhring, og nokkur sölt tár runnu niður kinnarnar. Hún gladdist á þennan sérkennilega hátt yf- ir staðfestu mannsins síns og hinu kær- leiksríka heimili. Já, mikið var það gott, að hann skyldi ekki lengur vera í strætinu með snýtuklút um hálsinn, drekkandi þetta helvítis brennsluspritt, hugsaði hún. Hún leit á vinnulúnar hendur sínar og varð hugsað til alls þess fatnaðar, sem hún hafði saumað fyrir fólk úti í bæ, meðan karlinn hennar hafði verið að skemmta sér undir bát- um og í rennusteininum. Hún hóf aug- un að fagurlega máluðum skildi, sem é stóð: Drottinn blessi heimilið, og nú hcfst gleðisnöktið fyrst fyrir alvöru. Karlinn rumskaði og annað augnlokið lyftist hægt og þyngslalega. Hann var eins og stór úrillur björn að vakna úr híði sýnu. Hún yrti ekki á hann að fyrra bragði frekar en vant var, en beið þess að hann segði eittihvað ótilneydd- ur. Lengi vel gerði hann ekkert annað en að klóra sér í ýstruna og víðar, rétt eins og ekkert væri sjálfsagðara. ..Skelfing er kalt hérna,“ sagði hann að lokum. „Eigum við þá ekki að fara í bælið?“ spurði konan, þó ekki ýtnari en s>vo í málrómnum, að það var hann sem réð ferðinni. Hún vildi umfram allt ekki styggja hann svona daginn fyrir veizlu- höldin. Það var svo óralangt síðan hann hafði verið frambærilegt afmælisbarn. „Jú ætli það sé ekki bezt,“ umlaði 1 karli, og það var algjört vafamál, hvort orðin drægju alla leið út úr honum eða hyrfu hljóðlaust ofan í maga. irin, „ég setti svolitla ögn af púrtvini út í hana, til þess að gera hana bragð- meiri.“ R.étt í því hún sleppti orðunum setti maður hennar stóran bita upp í sig. I gegnum sultu- og vaniljubragð fann hann hinn ljúfa keim, sem honum var að svo góðu kunnur. Minningarnar hrönnuðust upp í huga hans, og gömlu góðu dagarnir löðuðu fram nokkur tár, en jafnframt ógnþrungið hatur á þessu tertuétandi vandlætingarfulla samkvæmi Hann svimaði, og slaufan á maga kon- unnar, sem sat beint á móti honum, tók að snúast eins og spaðarnir á tvíhreyfla Dakótavél. Út úr gulgrænu andlitinu kom afsökun af einhverju tagi og hann stóð upp. Hann fór rakleitt niður í kjall ara og inn í geymslu. Upp úr kassa, sem stóð þar í einu horninu, dró hann fulla brennivínsflösku, sem hann hafði geymt í öryggisskyni. Hann læsti skjálfandi höndum um tappann og skrúfaði hann af. Því næst bar hann flöskuna að vör- um sér og drakk eða svolgraði. B lóð og vín féllust í faðma eins og tveir óaðskiljanlegir elskendur eftir duglegt rifrildi. Annan sopa fékk hann sér og þriðja, en lét síðan flöskuna síga aldeilis hissa að hann skyldi nokkru sinni hafa látið plata sig út í þetta hel- vítis bindindi. Aftur hófst flaskan á loft og hneig og hófst á ný. Hann lang- aði upp að senda veizlugestum tóninn og henda tertum eins og í grínmyndium, en ennþá var hann ekki orðinn nógu hömlulaus. Þegar hann var kominn of- an í hálfa flösku, lét hann til skarar skríða. Hjóður og þrekinn og sællegur stóð hann í dyrunum og fyllti næstuma út í þær, svo að það var lítið svigrúm til þess að vagga. Gestimir urðu fljótt Framhald á bls. 6. „Það kemur timburfarmur í nótt og verður víst nóg að gera á morgun,“ sagði hann ögn hærra og reyndi að hífa sig upp af legubekknum, en þungi lík- amans neyddi hann aftur í sömu stell- ingar. Hann dæsti og rautt nefið næst- um því hvarf ofan í fjólublátt andlitið. Eftir góða hvíld hélt hann aftur til atlögu við hið heimsfræga þyngdarlög- mál, og fyrir næstum því ofurmannleg- an kraft hafði hann sig á lappir. En það var langt úr stofunni inn í svefn- herbergi, skelfing var langt. Hún sat eftir til þess að þvælast ekki fyrir manni sínum, þegar hann hafði sig úr görmunum. En er hún heyrði hroturnar, slökkti hún alls staðar og fór sjálf að hátta. Hún smeygði síðum bómullar- kjól yfir naktan jndirgefinn líkamann. í hjónarúminu bc»J hennar smáræma, og hún lagðist fyrir, þannig að rassinn og soldið meira var í lausu lofti. Við hlið hennar lá stór klunnalegur skrokk- ur eiginmannsins og veitti ekki af hvíldinni ,ef hann átti að hafa afl til þess að rakka öllu því timbri, sem morg undagurinn bar í skauti sínu. N. i æsta dag fór afmælisbarnið í vinnuna, en hann ætlaði að fá frí klukk- an fjögur, því að afmælið átti að byrja fimm. Konan hóaði í slatta af skyld- mennum, sem hafði ekki þótt það virð- ingu sinni samboðið að sækja þau hjón in heim meðan karlinn var í strætinu, en þáðu nú boðið með þökkum, mest líklega til þess að geta sköðað fórnar- lambið. Mikil eftirvænting ríkti hjá þeim mæðgunum. Nú var stundin runnin upp og karl- inn kominn í teinóttu sparifötin sín og búinn að hnýta á sig litríkt handmálað bindið. Dyrabjöllunni var hringt og fyrstu prúðbúnu gestirnir komnir, en síðan einn af öðrum þangað til stofan var fullsetin. Þetta ætlaði að reynast eitt a. þessum brosmildu afmælisboð- um, þar sem ekkert orð er látið falla nema þaulhugsað og skoðanir ekki hafð- ar í frammi nema þær sem úreltar voru löngu fyrir aldamót. Karlarnir reyktu sígara og struku sér á lær, en konurn- ar skimuðu eftir einhverju, sem komið gæti upp um óreglu húsbóndans. Und- antekningarlaust allir dáðust að sjón- varpinu, sem hafði verið komið fyrir á áberandi stað, enda eina heillega mublan á heimilinu. Er allir höfðu skoð að þennan galdrakassa nægju sína, tóku brosin að stirðna, en þá bauð frúin líka upp á kaffi og með því. Gestirnir sett- ust við uppdekkað borð, sem svignaði undan óteljandi kökusortum og silfur- borðbúnaði úr nærliggjandi húsum, að ógleymdu sykurkari vestan af Gríms- staðaholti. „Smakkið á sortunum,“ sagði frúin, og gestirnir létu í ljós ánægju sína með ummi og allskyns ókennilegum hljóðum öðrum. „Mikið er hún girnileg þessi terta, sem þú ert með á diskinum hjá þér, Jói minn,“ sagði kona ein við húsbónd- ann. Hún var með stóra slaufu snyrti- lega bundna framan á maganum. „Já, fáðu þér sneið,“ sagði húsmóð- Máttur vorsins Eftir Ingibjörgu Þorgeirsdóttur Þegar vorið veröld alla vefur sínum ljósa armi, gömlum draumum vængir vaxa, vaknar skáld í hverjum barmi. Fjötrar hrökkva, fagnar heimur, fleygir burtu slitnum klæðum. Náttúrunnar heita hjarta hrindir nýju blóði í æðum. Móðurelsku ylnir straumar undri lífsins jörðu gæðir. Himinsins úr heiðu skálum heilagur andi vorsins flæðir. Gleðjast fræ í fold og barmi, fagna sólskinsvonir allar. Innst úr hjarta, yzt úr geimi eilífur máttur lífsins kallar. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ‘J 17. tbL lí)ft5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.