Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1965, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 09.05.1965, Blaðsíða 14
PRESTASÖGUR Framhald af bls. 4 ur til embættisverka, en biskupi þótti hann samt hirðulítill um embættið, og bað hann því að yrkja hugvekj usálma. Eftir að síra Signrður gaf sig að and- legum kveðskap, fyrir íhlutun horláks biskups, gjörði hann það af heilum hug, svo að lokum hafði hann ort meira af sálmum en nokkur maður, honum sam- tímis, hér á landi, og það þrátt fyrir það, að hann lifði þó í fátæku brauði og átti fyrir þungu heimili að sjá. En auk þess kvað síra Sigurður talsvert af veraldlegum gamankvæðum, sem nú eru glötuð. — Um þá feðgana, síra Sig- urð og síra Jón föður hans, er þessi fagra setning sögð: „Þeir voru haldnir hin skærustu ljós kristindómsins þar um sveitir, nyrðra, á sinni tíð.“ — Marg ir sálmar síra Sigurðar voru prentaðir á Hólum meðan hann var enn á lífi, og svo lífseigir eru þeir með íslenzku þjóð- inni, að í sálmabókinni, sem útgefin var í Rvík 1871, voru 20 sálmar hans, og enn eru í síðustu útgáfu sálmabók- arinnar, í Rvík 1945, fimm sálmar síra Sigurðar. Má það gott heita, að enn sé íslendingum ætlað að syngja sálma hans, og sannar eflaust hversu þeir eru vel ortir. S íra Sigurður átti skjóttan reið- hest, mesta gæðagrip, og gekk hann í Leirhafnarlandi, framan af vetri, en jarð leysur voru miklar. Fór klárinn að príla eftir grasi framan í sjávarfoöfða eða há- um bakka, sem þarna er, og hrapaði þar fram af vegna glerungs, sem var á, og rotaðist. Er þarna kallað „Hestfall“ síðan, og er haft fyrir hákarlamið í Núpasveit. Þegar síra Sigurður heyrði að klár- inn hafði farizt, kvað hann: Illa fór hún fagra há, fæða er orðin vörgum, féll á svelli og flaug í sjá fram af háum björgum. Síra Sigurður var þrígiftur. Fyrsta kona hans var Steinvör Jónsdóttir, Þórarinssonar prests á Skinnastöðum. Þau áttu 2 dætur, en önnur þeirra var Ingibjörg, sem giftist síra Þorvaldi Jóns syni, eftirmanni föður hennar í brauð- inu: — Miðkona hans var Þórunn Jóns- dóttir frá Draflastöðum. Hún dó af bamsförum árið 1644, og tregaði prest- ur hana mjög. Eftir hana orti hann kvæðið „Hugdillu", sem er sorgaróður hans. — Síðasta kona síra Sigurðar var Guðrún Pétursdóttir frá Víðivöllum. Hún hafði áður verið gift Ólafi í Gil- haga, Markússyni; var gömul þegar hún giftist síra Sigurði, og því urðu þau bamlaus. Um dauðdaga síra Sigurðar er sú munnmælasaga, að hann hafi dáið „hast arlega“ rétt eftir nýárið 1662. Hann fór um kvöld, á vökunni, út fyrir tún að gæta að reiðhesti sínum, en kom ekki aftur. Það var álit manna, að sjó- skrímsli eða eitthvað þvíumlíkt hafi grandað honum. Var jafnharðan hafin leit um kvöldið, og fannst hann þá lát- inn. Var líkið þrútið mjög, og sáust merki þess, að hann hafði veitt kvik- indi þvi, sem sótti að honum, áverka með pennahníf, sem hann hafði á sér, því að hnífurinn fannst opinn hjá hon- um og mjög blóðugur. Þá sáust líka kxinglóttar „spormyndir", sem lágu þar frá, og blóðdropar í snjónum. — Trúðu margir þessu, en aðrir ekki, en sú gáta varð aldrei leyst. III. S íra Þorvaldur Jónsson var sá þriðji þessara Presthólaklerka, sem sér verður sagt frá. Hann sat staðinn í 45 ár (1662-1707). Síra Þorvaldur var sonur Jóns bónda á Valþjófsstað í Núpa sveit, sem er næsti bær við Presthóla að sunnanverðu, Jónssonar, Þórarins- sonar, prests á Skinnastöðum, Sigmunds sonar. Kona Jóns á Valþjófsstað og móðir séra Þorvaldar var Guðrún dóttir síra Jóns Þorvaldssonar á Skinnastöð- um. Síra Þorvaldur útskrifaðist úr Skál- holtsskóla árið 1656, aðeins 19 ára gam- all, og varð þá þegar kapelán síra Sig- urðar í Presthólum, og giftist síðar Ingi björgu dóttur hans, sem áður getur, og fekk svo brauðið eftir tengdaföður sinn, þegar hann varð skrímslinu að bráð. — Til er lýsing á síra Þorvaldi:* „Hann var með allra stærstu mönnum á hæð, og mikill burðamaður, sparsamur, frómur og einfaldur, svo að í minnum er höfð trúgimi hans.“ — Síra Þorvaldur var höfðinglegur ásýndum, og vel að sér í latínu, en hann var ekki mikið hneigð- ur til starfa, og fór því ekki snemma á fætur, einkum eftir að hann fór að eldast. Þegar prestur var vaknaður á morgn- ana, var það vani hans að spyrja þá allra tíðinda, sem fyrst fóru á fætur, bæði um veðráttu og annað. Gamall maður, sem var uppalinn í Presthóla- sókn, sagði frá því, að hjá síra Þor- valdi hefði verið vond vist og fólkið fengið lítið að borða, en þetta var all- títt á þeim tímum hungurs og fátækt- ar, sem þá gengu yfir alla landsmenn. Heimilisfólkið í Presthólum tók þá upp á því að ljúga í prestinn ýmsum sög- um, því að trúgirni hans átti sér engin takmörk, og þá hafði hann keypt af því með mat að bæta við einni og einni lygasögunni. Sem eitt ljóst dæmi um trúgirni síra Þorvaldar er þessi saga sögð: Einu sinni var þar mikill tófubdtur í sveitinni, svo að stór skaði var að, því að refurinn drap niður fénað manna hrönnum saman. Þegar prestur vaknaði einn morguninn, spurði hann vinnu- konu, sem fyrst hafði farið á fætur, hvað nú væri tíðinda. Stúlkan þekkti á karlinn og var kát, og svaraði hún, að ekkert væri að frétta nema illt eins og vant væri. Hann spurði þá hvort tófan hefði bitið nokkuð í nótt. Hún sagði, a'á sagt væri, að hún hefði hol- rifið Lýsing hans í nótt, en það var uppáhaldsreiðhesturinn hans. — Þessu trúði hann strax og bað Guð að hjálpa sér, en eftir langa þögn brauzt hann út með þessum orðum: „Það má vera einn bölvaður refur, sem skyldi ráðast á hestinn, hefi eg soddan dæmi aldrei heyrt.“ — Svo spurði hann stúlkuna hvort refurinn hefði rifið hestinn al- veg til dauða. Hún svaraði að lítið mundi til vanta, þó hefði sér heyrzt á piltunum, að hægt mundi verða að græða hann, ef hann fengi góðar um- búðir og umhirðu. Keypti hann þá af stúlkunni að gangast fyrir þessu. — Börn síra Þorvaldar og maddömu Ingibjargar voru tólf. Þrír synirnir urðu prestar, en sá fjórði dó stúdent, áður en hann næði vígslu. Þrír hétu Jón, elzt- ur þeirra var síra Jón prófastur í Miikla bæ í Skagafirði, næstur var síra Jón á Presthólum, eftirmaður föður síns, sem sagt verður frá hér á eftir, en þriðji Jóninn varð bryti á Hólum, en sonur hans var síra Jón prestur í Grímsey, sem drukknaði 1727. — Þegar síra Þor- valdur var hniginn á efra aldur, lagðist hann veikur og lá lengi; tók hann þá síra Jón yngra son sinn fyrir kapelán, en hann útskrifaðist úr Hólaskóla um sömu mundir. Svo batnaði presti og varð hann albata um eins árs tíma, en síra Jón hélt áfram að vera kapelán lengi eftir það. Síra Þorvaldur sleppti embætti í Stórubólu 1707, en dó skömmu síðar, og hafði þá verið prestur í 50 ár. IV. S íra Jón Þorvaldsson var prest- ur á Presthólum árin 1707-1749, og var * Sbr. Præ. Sighv. XVI, 1468. hann sá fjórði í röðinni af þessum tvenn um feðgum, sem sátu staðinn í sam- fleytt 135 ár hver eftir annan. Hann var fæddur 1665, og var þvi rúmlega fertugur þegar hann fekk brauðið. Það er frá síra Jóni sagt, að hann hafi í ungdæmi sínu þótt færasti glímu- maður, fimur og fylginn sér. Hann var hinn „léttfærasti" að stökkva upp á hæstu húsbita, og annað fleira, sem skólapiltar æfðu á þeim dögum „vannst honum hið auðveldasta“. Eitt „leikspil- ið“, sem skólabræður hans gátu með engu móti leikið eftir honum, var þetta: Þegar hinir skólapiltarnir gengu á rist- unum með hangandi höfði eftir skóla- bitunum, þá gat hann gengið á hælun- um. Enginn gat skilið í því, hvernig hann fór að þessu, hvað þá heldur leik- ið það eftir. — Saga þessi hefur þótt ótrúleg ,en er þó sönn. Þess er getið um síra Jón, að hann hafi enginn gortari verið og hafi hann eikki ofmiklazt af fræknleik sínurn, en frásögnin hér að framan um afburðafimni hans var staðfest af sjálfum Hólabiskupi, herra Steini, og skólaibræðrum síra Jóns, sem sögðu hana sem dæmi furðulegustu hluta. — Síra Jón var 22 ára gamall þegar hann útskrifaðist úr Hólaskóla, en um sömu mundir lagðist faðir hans veikur, og gjörðist hann þá kapelán hans. Þá vildi nú svo óheppilega til, að biskups- laust var á Hólum. Einar biskup Þor- steinsson var úti í Danmörku og var ekki kominn heim með biskupsvígslu, en bráð nauðsyn krafðist þess, að síra Þorvaldur, sakir veikinda sinna, fengi tafarlaust aðstoðarprest að Presthólum. Voru nú góð ráð dýr, en hinn ungi hrausti prestur setti ekki allt fyrir sig, og lagði hiklaust á stað í erfitt ferða- lag, þvert yfir ísland, í vetrarharðind- um og miklum snjóþyngslum. Hann brá sér nú suður að Bessastöðum til þess að fá sér samþykki danska amtmanns- ins, Mullers, svo að mætti vígja hann í Skálholti. Að því fengnu fór hann austur í Skálholt, og þar var hann yfir- heyrður og vígður af herra Þórði bisk- upi Þorlákssyni 9. desember 1691. — Eftir að hafa fengið vígsluna, lagði hann jafnskjótt á stað aftur norður að Prest- hólum, í háskammdeginu í miklum snjóhríðum, yfir heiðar og ólgandi vatns föll í vetrarham. Ferðin norður var erf- ið, og varð hann oft að liggja úti, á heiðum uppi, ásamt fylgdarmanni sín- um, „lengur en dagleiðum sætti.“ Þó komust þeir slysalaust heim um síðir. — Síra Jón kom ungur til embættis, og þjónaði söfnuði sínum vel og lengi. Lýs- ing er til á síra Jóni, og er hún stutt og laggóð, svohljóðandi:* „Hann var nær meðalmaður vexti, einfaldur og hinn mesti erfiðismaður, en hvorki hneigður til bygginga eða skáldskapar." — Samkvæmt þessari lýsingu mætti ætla, að þessi frækni og fimi guðsmað- ur hafi haft mikla hæfileika til likams- æfinga ,en að andlegt atgervi hans hafi ekki verið að sama skapi. — Því miður er ekki til lýsing á sir aJóni sem presti, t.d. þegar Harboe biskup visiteraði Presthóla 7. ágúst 1742, af þeirri á- stæðu, að þegar biskup kom þar, var prestur orðinn svo hrumur, að hann gat ekki prédikað vegna elli og lasleika, en þá fyrirskipaði herra biskupinn honum að taka aðstoðarprest. — Biskupinn bók aði þessa setningu um síra Jón í visitas- iubók sína: „Hjá presti varð engin menntun fundin,“ — og í samræmi við þetta má telja eðlilegan vitnisburðinn sem biskup gaf þeim 16 bömum úr sókn inni, sem hann yfirheyrði á Presthólum, en um þau segir hann, „að þau hafi haft litla þekkingu og litla eftirtekt á því litla, sem þau svöruðu, en höfðu þó byrj að lítið eitt að lesa á bók.“ ___ F yrstur var kapelán hjá séra Jóni nafni hans, síra Jón Þorsteinsson, síðar prestur í Múla, og þar eftir bróðir hans, síra Stefán Þorleifsson, sem varð tengda * Sbr. Præ. Sighv. XVI, 1472. sonur slra Jóns og eftirmaður hans 1 brauðinu, og varð hinn merkasti klerk- ur. — Síðustu árin var síra Jón örvasa og oftast sjúkur í rúminu, og þannig var hann „sængurliggjandi“ þegar bisk- upinn visiteraði hjá honum í annað sinn sumarið 1748, en árið eftir sleppti hann brauðinu við síra Stefán, vænt- anlega að undirlagi biskups. — Þegar síra Jón var fimmtugur að aldri, giftist hann Helgu dóttur síra Sig- fúsar í Glæsibæ, Þorlákssonar. Þau áttu 5 börn, sem öll urðu fullorðin. Dætur þeirra voru tvær, en önnur var Þórunn, sem varð fyrri kona síra Stefáns Þor- leifssonar, sem segir frá hér á eftir. — Síra Jón var að mestu karlægur nokk- ur ár, og dó nóttina milli 29. og 30. des- ember 1750, 82 ára gamall, og hafði verið á Presthólum alla sína preststíð, 58 ár. Hann var jarðaður í forkirkjunni á Presthólum 16. janúar 1751. Hagalagfiar Seigla þjóðarinnar E. t. v. hefur seigla þjóðarinnar j hvergi birzt skýrar en einmitt í gervi ; hins ísl. sauðamanns sem stóð yfir fé sínu frá morgni til kvöilds í vetr- arbyljum og skóf snjóinn af rindun- j um svo að hjörðin gæti náð til jarð- ar. Það var oft barátta upp á líf og dauða. Ekki eingöngu við hríðar og illviðri heldur miklu fremur við fellisvofuna, sem ætíð blasti við sjón- um bændanna, þar sem heyfengur I var ófuilnægjandi og eina úrræðið I var því að setja á Guð og gaddinn i ef menn ættu að geta gert sér vonir i um að geta séð fjöilskyldu sinni far- ’ borða á sómasamlegan hátt. 7 (Jón Bj.: Úrval). 1 Klaksárt með aura sina. Þetta ár dó Strúgs-Jón gamli. Sagt var, að fáum árum áður græfi hann peninga eigi all-litla í Strúgsskarði, j en eftir það féll þar niður skriða mik I il. Urðu menn þess varir, að hann , leitaði oft við skriðuna og í henni, þótt eigi væri honum kostur þar til j að grafa. Svo var þar stórgrýti mik- I ið og urðin afar þykk. Hafði honum : löngium orðið klaksárt með aura sína, þótt aldrei yrði honum fjár- vant. i (Annáll 19. aldar 1843). SUNNUDAGUR Framhald af bls. 9 því hún var jafnan hússins mesta prýði og hún var bóndans lán og gleðisól. Ef bæja er minnzt um byggðir Stein- grímsfjarðar, má aldamótamanninn ekki henda það að geta ekki Heydalsár. Þar var ungmennaskóli starfandi um 20 ára bil, 1896 til 1920. Skólinn hafði mikil og góð áhrif til aukinnar menningar héraðsins. Allir þeir er dvöldu í þeim góða skóla hafa orðið athafnasamir og nýtir liðsmenn í því mikla uppbygging- arstarfi þjóðfélagsins, sem unnið hefur verið síðustu áratugina. Kennari í Heydalsárskóla var Sig- urgeir Ásgeirsson. Saga skólans er enn óskráð, en hans mun minnzt er tímar líða. Það er bjart yfir Tungusveit er litið er til liðins tíma, og ekki spáir nútíminn síður bjartri framtíð. Hér hafa um langt skeið búið og búa enn athafnasamir og framsýnir höldar. Miðdalur gengur suðvestur í fjall- garðinn. Vesturbrún hans er um 600 metra há. Fjallinu hallar til vesturs að Tungudal (Tröllatungu), þar ér Heiðar- bæjarheiði. Fyrr á öldum var það þjóð- leið milli Geiradals og Tungusveitar. Sagnir herma að eitt sinn hafi orðið úti á heiðinni 18 menn. Mörg örnefni í landi Tröllatungu og víðar eru kennd 14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 17. tbl. 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.