Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1966, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1966, Síða 4
Gömul mynd frá Eyrarbakka — sjá ský ringu fyrir neðan. Eftir Sigurð Guðjónsson, skipstjóra SEINNI HLUTI N iels Lambertsen er víst nsesti húsbóndi í Húsinu. Hann var verzlun- arstjóri Sunckenbergs, sem varð eig- andi verzlunarinnar eftir ófarir Peter- sens. Að 11 árum liðnum varð hann svo sjálfur eigandinn. Lambertsen er einn þeirra, sem ekki hefir fengið góðan vitnisburð, hvorki viðskiptamanna sinna, né þeirra, sem lagt hafa mat á lífsferil hans í ljósi sög- unnar. Hann þótti harðdrægur í við- skiptum og óþjáll á ýmsa lund. Til eru um það mörg kvörtunarbréf og kærur, en út í það skal ekki farið hér. Honum hefir þó ekki verið alls varnað, því að opin augu hefir hann haft fyrir ýmsum verklegum framkvæmdum, sem koma þurfti í verk. Slíkt var óvanalegt um þessa menn í hans stöðu, því að fæstir þeirra hugsuðu um annað en arðræna landsmenn á allan hátt. Hann lét fyrst- ur manna gera ráðstafanir til varnar sjávarflóðum með hleðslu sjóvarnar- garðs, en af völdum þeirra hlutu Bakka- menn oft þungar búsifjar á þessum ár- um. Garð þennan lét Lambertsen byggja framan við verzlunarhúsin og framlengja hann svo fyrir allri verzl- unarlóðinni. Garður þessi, sem enn stendur í fullu gildi, er bæði hærri og þykkari en sá, sem síðan var svo byggður í áframhaldi af honum bæði austur og vestur sjávarkambinn. Garður þessi nær austan frá Gón- hól vestur á móts við Kaupmanna- hellu. Þessi fyrsti sjóvarnargarður, sem kenndur er við Lambertsen, er nokkr- um föðmum nær sjó en þeir, sem síðar voru byggðir. Ekki er þó víst, að allur þessi kafli hafi verið byggður í tíð Lambertsens, þótt hann sé með sama lagi. Gamlir menn telja, að nokkuð af honum hafi verið byggt í tíð Guðmundar Thor- grímsens. Lambertsen lét líka hlaða garðjnn framan við Kaupmannshúsið, bæði til varnar við sjávargangi, og svo mun líka hafa verjð ræktað kálmeti innan Ihans. Gyða Thorlacíus getur þess í endurminningum sínum, að varnar- ráðstafanir við sjávarflóðum hafi verið gjörðar um haustið þennan vetur, sem þau hjón voru á Eyrarbakka og bjuggu í Húsinu hjá Lambertsen. Ekki er auð- velt að átta sig á lýsingu hennar á þessu verki, enda ókunnug öllum slík- um vinnubrögðum. En á þeirri frásögn er helzt að skilja, að rekin hafi verið niður tré í röð, og þannig útbúið ein- hvert skjaldólf. Maður gæti gizkað á, að frásögn hennar eigi við frágang sjógarðshliðanna, því að það tíðkað- ist að búa til sterka kláfa úr trjám og fylla þá svo með grjóti, og ganga þannig frá hliðunum fyrir veturinn. Lambertsen virðist hafa vjljað vinna að framförum í veiðitækni landsmanna, því að talið er, að hann hafi fyrstur manna látið leggja hér þorskanet í sjó fyrir Suðurlandi og stuðlað að notkun þeirra. En það hafði Skúli fó- geti áður reynt við Faxaflóa. Um þess- ar tilraunir og netanotkun yfirleitt á fyrstu árum þess veiðarfæris er svo löng deilusaga, að hún verður ekki rakin hér. Sömuleiðis mætti færa það tekju- megin á syndaregistur Lambertsens, að Ihann gerði fyrstur Eyrarbakkakaup- manna tilraun til þess að senda ís- lenzkar afurðir skemmstu leið til mark- aðslandanna. Hann sendi skip með salt- fiskfarm til Ítalíu, án viðkomu í Dan- 1. Óþekktur danskur skipstjóri. 2. Petersen skipstj. á skonnortunni Kirstine. 3. Jón Vilhjálmsson, skósm. 4. N. Bach, bakari. 5. Halldór Gíslason, trésm. 6. Óþekktur Dani. 7. Hendriksen, skipstj. á skonnort- unni Zephyr. 8. Guðm. Guðmundsson, yngri, kaupm., Höfn, Selfossi. 9. Hans Guðmundsson (bróðir G. G. yngri). 10. Óþekktur. 11. Gísli Jónsson, kenndur við Túborg. 12. Jón Pálsson, bankagjaldkeri. 13. Guðm. Oddgeirsson, fyrrv. bankafulltrúi, Selfossi. 14. Sigurður Guðmundsson, fyrrv. bankamaður, Selfossi. 15. Séra Ólafur Helgason, Stóra Hrauni 16. Guðmundur Guðmundsson, eldri, bókari. 17. Ásta Guðmundsdóttir, frú, kona Gísla Jónssonar. 18. Christiansen, skipstjóri, gufub. Oddi. 19. Ástríður Guðmundsdóttir. Kona G.G. eldri. 20. Anna Adolfsdóttir. Kona Jóns Pálssonar. 21. Ólafur Árnason, faktor, Stokkseyri. 22. Sigríður Jónsdóttir. 23. Óþekkt. 24. Óþekktur. 25. Guðmundur Nielsen. 26. Halldóra Guðmundsdóttir. 27. Eugenia Nielsen, frú. 28. Karen Nielsen, frú. 29. Margrét Árnason, frú. 30. Kristin ísleifsdóttir. (Andreas Bergmann skýrði myndina). mörku. En hann var fljótt vaninn af þessari framtakssemi, því að Danir dæmdu hann í háar fjársektir fyrjr tiltækið. Auðvitað þurftu þeir að fá sína sleikju af þessum farmi, eins og öðru, sem frá íslandi kom. Hið svo- kallaða verzlunarfrelsi var nú enn ekki meira en þetta, þegar hér var komið sögu. Hirðulaus þótti hann og trassa- fenginn, enda fékk Ögmundarbríkin að Framhald á bls. 12, Kaupmannshúsið á Eyrarbakka og íbúar þess 4 LESBÓK. MORGUNBLAÐSINS 29. maí 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.