Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1966, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1966, Blaðsíða 1
 , .. llgfaíVÍS \\S|\t:\ : | x r's , i , v," * c- * * , ' \í>"V '" * ' ' • \ ' 111111 1 , i' mi 111 teÉ . ÍÉji ': ' || . .' ■ ■' " ■■ ' ^ ' .'VÉÉHi 'iSf.jJíf.','! Reischauer á tali við leiðtoga Búdda trúarmanna. Þegar hann var sendiherra Bandaríkjanna í Japan. Gamlir lifnaðarhættir finnast enn í sveitunum og eru næsta frábrugðnir líf- inu í hinum stóru iðnaðarborgum, þar sem troða verður folki inn í rafknúna strætisvagna er aka á spornm. ^ 11. tbl. — 20. nóv. 1966 — 41. árgangur | JAP&N ER STÆRSTA LAND I HEIMI Edwin O. Reischauer, sonur bandarisks trúboða og jœddur í Tókíó, fyrrv. prófessor við Har- vard-háskólann % Austurlanda- frœðum, var sendiherra Bandaríkj- anna í Tókíó frá 1961 þar til í júlí- mánuði síðastliðnum, er hann hvarf aftur til Harvard og tók sæti í Austur-Asíu-rannsóknarráðinu. Fyrir nokkrum áratugum var það algengt að tala um Kína sem „sofandi“ ljón eða dreka. (Nap- óleon kallaði Kína „sofandi tröll“). Þessar nafngiftir sýndu ef til vill mismunandi skoðanir á því, hvað Bkepnan mundi taka fyrir, er hún loksins vaknaði, en öllum bar saman um, að sofandi væri hún. En þeirri trú er nú lokið. Kína er greinilega glaðvakandi og öskrar hátt, enda þótt nokkur vafi leiki á því — hjá mér að minnsta kosti — hvað það ®é fært um að gera, nú er það vakn- ar. Vissulega er það risavaxið póli- ; EFTIR EDWIN ! O. REISCHAUER tískt dýr, en vöðvar þess eru tiltölu- lega máttlausir í hlutfalli við þyngd. Ennfremur eru þeir lítt tamdir til hinna fjölbreytilegu kunnáttuhreyf- inga, sem nútímaheimurinn krefst. Að minnsta kosti er þróun vöðva- afls og vöðvafimi mjög hæggeng, eins og er. En þessi grein átti ekki að vera um Kína. Hún er um annað pólitískt dýr, sem, enda þótt það sé ekki sof- andi, virðist samt vera frekar væru- kært á sviði alþjóðastjórnmála. Hér er vitanlega átt við Japan. ótt einkennilegt sé, leggjum við það ekki í vana okkar að hugsa okkur Japan sem stórt eða mikið land. Það sýnist lítið á kortum, einkum þó séð við hliðina á hinum víðlendu en þó liálfauðu svæðum sem merkt eru Kina og næstum alauðu víðáttum Síberíu. Og þessi smæðarsvipur verður meir áberandi, ef athugaðir eru hinir örsmáu akrar og dvergvaxin heimili á hinum þéttbyggðu Japanseyjum. Og enn fær- ist þessi smæðarsvipur í aukana, ef athugaður er hæfileiki Japana til að búa til smávaxna hluti. Samt er nú Japan eitthvert stærsta land heims, að öllu öðru en landrými. Það er sjöunda í röðinni að fólksfjölda og stendur auðvitað þar að baki risa- Framhald á bls. 12 - AÐ ÖLLU ÖÐRU EN LANDRÝMI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.