Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1966, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 20.11.1966, Síða 6
hann vildi fá birtar vestan járntjalds og spurði hvort við vildum veita honum liðsinni. Ég tók líklega í það, og var fastmælum bundið og ég hitti hann fyr- ir utan hótelið klukkan ellefu kvöldið eftir. Inn í bygginguna fékk hann ekki að koma. Síðan kvaddi hann og sneri sér að árennilegri viðskiptavinum. Við íslenzku blaðamennirnir vorum ekki meira en svo trúaðir á, að unga manninum væri alvara, en ekki sakaði að bíða átekta. Kvöldið eftir sátum við að snæðingi í hótelinu um ellefuleytið, og skrapp ég út fyrir á tilsettum tíma. Mannmargt var fyrir utan eins og endranær, hópar fólks á víð og dreif 1 samræðum, en álengdar stóðu þung- búnir lögregluþjónar og fylgdust með því sem fram fór. f einum hópnum kom ég auga á kunningja okkar þar sem hann skrafaði við hláturmilda ítali. Ég gekk hjá hópnum og hélt í áttina til götunnar og að vörmu spori kom ungi maðurinn í humátt á eftir mér. Þetta var allt ákaflega dularfullt. Hann dró mig afsíðis, úr augsýn lögreglunn- ar, kvaðst vera með tvær sögur og spurði hvernig ég gæti fengið þær þýddar. Ég kvaðst þekkja íslendinga sem kynnu rússnesku. Þá kom það allt I einú upp úr dúrnum, að hann var ekki höfundur sagnanna. heldur vinur hans sem stóð álengdar úti á götunni og vildi ekki koma nær. Ungi maður- inn hljóp nú yfir til hans og töluðu þeir saman drykklanga stund. Síðan kom hann aftur, afhenti mér lítinn velktan böggul og bað mig að koma sögunum á framfæri vestan tjalds. Að skilnaði gaf hann mér forkunnarfagran gamlan rússneskan kross og bað mig vel að lifa. Ég fór aftur inn í matsalinn þar sem félagar mínir biðu málalokanna eilítið spenntir. Þegar þeir sáu böggulinn lá málið ljóst fyrir. Á ferðalaginu um Sov- étríkin hafði ég sögurnar í lítilli hand- tösku sem ég bar að jafnaði, og vorum við stundum að gantast með þá hug- mynd, hvað verða mundi ef farangur okkar yrði grandskoðaður. Til þess kom vitanlega ekki, þar sem við vor- um gestir opinberra samtaka og með- höndlaðir eins og diplómatar. Eg veit jafnlítið um höfund smá- sagnanna og þegar ég tók við þeim í Moskvu, en mér skildist að hann fengi þær ekki birtar í Sovétríkjunum, þó þær feli ekki í sér neina beina ádeilu. Astæðan mun vera sú að tónninn í þeim er ekki „réttur“, þær eru „neikvæðar“, lofsyngja ekki sovétskipulagið og fela jafnvel í sér óbeina gagnrýni á viss- um þáttum þess. Valery Tarsis, sem hér var í sumar leið, las sögurnar og kvað þær vel skrifaðar. Sama sinnis var félagi hans, Lev Rahr, og hefur hann fengið leyfi til að birta þær á rússnesku í bókmenntatímaritinu „Graní“, sem gefið er út í Þýzkalandi. Fyrir almenningssjónir koma þær samt fyrst í Lesbókinni í dag og á sunnudag- inn í þýðingu Arnórs Hannibalssonar. V ladimír Gorjúskín er ungur maður og sennilega lítið sem ekkert þekktur í heimalandi sínu. Þó hef ég fyrir satt að hann sé tengdur hinum svo nefndu SMOG-samtökum í Moskvu, sem hafa haft sig talsvert í frammi að undanförnu, m.a. í sambandi við rétt- arhöldin yfir þeim Daníel og Sinjavskí. SMOG er eins konar samband ýmissa hópa ungra rithöfunda og menntamanna sem rekið hafa bókmenntalega neðan- jarðarstarfsemi í Sovétríkjunum und- anfarinn áratug. Hafa þessir hópar gef- ið út tímarit, bæklinga og bækur sem dreift hefur verið frá manni til manns. f Leningrad var einn slíkur hópur af- hjúpaður af leynilögreglunni í nóv- ember 1965, og áttu þar hlut að máli 250 ungir menntamenn og rithöfundar. Hafði hann gefið út tvö eintök af tíma- riti sem nefndist „Kolokol“ (Bjallan), og voru stúdentar við efnafræðideild Leningrad-háskóla þar í broddi fylking- í minningu Vilborgar Karelsdóttur Eftir Gubmund Boövarsson Þú kvaddir þegar dagur birtu brá og blómin hættu að anda og okkar sumarfuglar flugu hjá á ferð til suðurlanda og yfirgáfu heiði og lágan lund, sín ljúfu hreiðurkynni, víst kvöddu þeir, og þó um litla stxmd, en þú í hinsta sinni. Nú skautar brúnum fjalls hinn fyrsti snær með fölvu líni sínu, og gulu laufi svifar svalur blær hjá sumarhúsi þínu, og skuggasúgur svörtum runnum frá um sölnað rjóðrið líður. Þar inni heyrist haustið streng sinn slá, það haust, sem allra bíður. Það rifjast upp, sem eitthvað létt og hlýtt og ofar snjó og frosti, hvað klettagjögrið, grænum skógi prýtt, við gestum þínum brosti, hvað stolt og vonglöð birkihríslan bar sín blöð í angan sinni, Jpín móðurást til alls sem fagurt var og óx í návist þinni. Ög því skal ljúft, sem hitt, að heilsa fyr af hjarta góðum vini, að syngja lágt við sínar bæjardyr einn söng í þakkarskyni, og ég skal hugumheilar kveðjur tjá frá hverjum sumargesti, frá gráum borgarhamri og hríslum smá og huldubarni og þresti. Lát, gamla harpa, hljóma mjúkan slátt, þó haustsins fáni blakti, svo hjörtun okkar taki í tryggð og sátt þann trega, er dauðinn vakti, — því minning björt um burtu horfinn vin er blóm á okkar vegi, og hverja stund hið milda morguskin sem myrkrið sigrar eigL ar. Leiðtogi hópsins var dæmdur í sjö ára fangelsi, en átta samverkamenn hans — þeirra á meðal tvær konur —■ hlutu tveggja til fimm ára fangelsis- dóma. SMOG-samtökin virðast hafa verið mynduð einhvern tíma á árinu 1965, og- starfa nú „deildir" úr þeim í ýmsum stærri borgum Sovétríkjanna, en mið- stöðin mun vera í Moskvu. Hér er um að ræða unga menntamenn, rithöfunda og myndlistarmenn sem berjast fyrir auknu skoðana- og tjáningarfrelsi. Þetta eru hugsjónamenn sem fórna ýms- um fríðindum hins sovézka þjóðfélags, svo sem skólagöngu og atvinnuöryggi, til að verja þau grundvallarmannréttindi að fá að hugsa, tala og skrifa eins og samvizkan býður þeim. Samtökin hafa tvisvar efnt til mótmælaaðgerða sem vöktu allmikla athygli, en sovézk blöð hafa leitazt við að þegja allt slíkt í hel. að sem er kannski merkilegast við SMOG er, að samtökin hafa koll- varpað ýmsum gamalgrónum hugmynd- um um hvað sé hægt að gera í sovézku þjóðfélagi og hvað sé óframkvæman- legt. Skipulag samtakanna er sagt snilldarlegt, og á leynilögreglan enga leið til að gera út af við þau. Hér er um að ræða samtök fólks sem er í mjög lauslegum tengslum, er sífellt breytast og laga sig að aðstæðum. Það sem teng- ir fólkið saman eru svipuð viðhorf til menningar og persónufrelsis. Samtökin hafa gefið út talsvert magn af bókum og tímaritum um allt landið, og í janúar 1966 gerðist sá óvænti atburður, að Sovézka rithöfundasambandið bauð völdum hópi SMOG-meðlima til fundar. Lögreglan hefur hvað eftir annað hand- tekið menn úr samtökunum, en sleppt flestum þeirra aftur. Þó mótmælaaðgerðir SMOG-samtak- anna hafi ekki vakið verulega athygli, t.d. í sambandi við réttarhöldin yfir Daníel og Sinjavskí, og ekki hlotið víð- tækan stuðning stúdenta eða mennta- manna, njóta samtökin samúðar margra menntamanna af eldri kynslóð ekki síð- ur en þeirri yngri. Og einnig er vert að hafa hugfast, að mótmælaaðgerðir þeirra marka söguleg þáttaskil í landi þar sem hvers konar opinber mótmæli hafa verið óhugsandi í fjóra áratugi. E nginn veit með vissu hvaða hlut-* verki SMOG-samtökin eiga eftir að gegna í Sovétríkjunum eða hvernig þau muni þróast í framtíðinni. Það veltur á ýmsum ytri aðstæðum og annarri þróun þjóðfélagsins. En samtökin hafa orðið til að stappa stálinu í marga unga hugsj ónamenn og leysa úr læðingi öfi sem. kynnu að valda miklu um farnað sovézku þjóðarinnar á komandi áratug- um. Þegar rödd frelsisins er á annað borð tekin að heyrast er erfitt að kæfa hana — nema með afturhvarfi til tíma sem allir Rússar hugsa til með hryll- ingi, hvar í flokki sem þeir standa. HAGALAGÐAR Hún skal hírast hjá mér Sr. Benedikt Hannesson prestur í Miðdælaþingum var kvæntur Þórunni Ólafsdóttur sýslumanns Árnasonar. Áður en hann giftist hafði hann ráðs- konu, sem gjarna vildi eiga hann. En það var að áliðnu sumri, að hann hafði beðið Þórunnar, sem þá var við hannyrðanám að Hofi á Höfðaströnd hjá Guðrúnu Skúladóttur landfógeta. Fyrir því fór sr. Benedikt norður er hann kvæntist Þórunni. Yissu fáir er- indi hans. Er hann kom heim vestur að kvöldi dags, bjó ráðskonan upp sæng hans, en spurði kvenmann þann er með honum var hvort hún vildi ekki fara að hátta. Spurði prestur þá hvar hún ætti að sofa. „Hjá mér“, kvað ráðskona. „Ég ætla að láta hana hírast hjá mér“, sagði prestur, „ég hef haft það svo í ferðinni". Þóttist þá ráðskona vita hver efni mundu i vera. Frú Þórunn varð fræg fyrir hann- yrðir sínar, og hlaut hún heiðursgjöf frá Júlíönu Maríu, ekkjudrottningu. Því kvað sr. Jón Hjaltalín um Þór- unni í Tíðavísum sínum: Með gullkrossi mynduðum í Mörku Dana eitt sinn sæmdi áður hana ekkjudrottning Júlíana. (Annáll 19. aldar). 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. nóvember 1966

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.