Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Page 11
McNamara á fundi: Hann hefur lært að' víkja, en víkur liægt.
R.obert Strange McNamara, sem
nú hefur verið skipaður forseti Alþjóða-
bankans, hefur setið í ráðherrastóli sem
varnarmálaráðherra Bandarikjanna í
sjö ár. Kennedy mat hann mikils
þann stutta tíma sem þeir áttu sam-
starf, og kunnugir segja, að John-
son hafi borið traust til hans um-
fram aðra ráðherra. McNamara er
sagður eiga mikla stjórnunar- og skipu-
lagsgáfu, glögga yfirsýn yfir gang mála
og gífurlegt minni og vald á tölum. For-
seti Bandaríkjanna hefur látið sér um
munn fara, að McNamara gæti setið
hvaða ráðherrastól sem væri með jafn-
góðum árangri. Aður en McNamara varð
ráðherra, var hann um skeið prófessor
við viðskiptadeild Harvard-háskóla,
framkvæmdastjóri við Ford Motor Com-
pany í 14 ár og forstjóri þess félags var
hann reyndar í 42 daga.
Sá eiginleiki er þó mun hafa dugað
honum bezt, er óbifandi hollusta við
yfirboðara sína og ákvarðanir þeirra.
Þeir sem þekktu hann sem framkvæmda
stjóra Ford Motor Company, fullyrða, að
þessi eiginleiki hafi þar verið mjög rík-
ur í fari hans og hafi hann barizt með
oddi og egg fyrir réttmæti skoðana
þeirra, er yfir honum höfðu að segja, og
gert þær skoðanir að sínum. Þetta mun
koma fram í enn ríkari mæli í núver-
andi stöðu hans sem ráðherra. Á lokuð-
um fundum með öðrum stjórnarmeðlim-
um og aðstoðarmönnum þeirra, getur
hann verið harður málafylgjumaður og
haldið eigin skoðun til streitu. En undir-
eins og ákvörðun hefur verið tekin, berst
hann með oddi og egg fyrir framkvæmd
þeirrar ákvörðunar án tillits til þess,
hvaða skoðun hann sjálfur kann að hafa
haft á málinu. Þessi hollusta kemur fram
á fleiri sviðum og þykir sumum nóg um.
Háttsettur maður innan hersins sagði ný-
lega, að Johnson virti McNamara svona
mikils, vegna þess að hann gæti alltaf
treyst því, að McNamara gerði allt sem
hann segði honum. „Ef forsetinn skipaði
McNamara að halda blaðamannafund til
að tilkynna, að ég hefði i æði kastað mér
út um gluggann, mundi hann gera það
skilyrðislaust, jafnvel þótt hann vissi, að
ég hefði fengið hjartaslag af ofþreytu“,
sagði þessi embættismaður. McNamara
ræðir aldrei ákvarðanir við undirmenn
sína né lætur í té upplýsingar um hvern-
ig og á hvaða forsendum einhver ákvörð-
un var tekin. Þetta hefur vakið óánægju,
þar sem þetta er andstætt því sem tíðk-
ast innan herstjórnarinnar. Einn herfor-
inginn hefur látið svo um mælt, að þeir
geti á engan hátt greint sundur skoðanir
McNamara og forsetans.
McNamara skipuleggur einkalíf sitt
engu síður en starf sitt. Hann rís úr
rekkju klukkan kortér yfir sex á hverj-
um morgni og fer eftir nákvæmri starfs-
áætlun allan daginn. Engum leyfist að
eyða tíma hans með óþarfamasi. Ef sam-
starfsmenn hans eða undirmenn orð-
lengja um of eða víkja frá efninu, lítur
McNamara á klukkuna og bregður þá
fyrir óþolinmæði í svipnum. Þennan
svip eru menn farnir að þekkja og flýta
sér þá að ljúka umræðunum. En hafi Mc-
Namara lofað mönnum viðtali, stendur
hann við það. Einn gestur hans bjóst til
að kveðja áður en sá hálftími, sem var
ætlaður honum var útrunninn, vegna
þess að ráðherrann virtist óvenju önnum
kafinn. „Nei, alls ekki“, sagði ráðherr-
ann, „þér eigið 12 mínútur eftir enn“.
Um áttaleytið á kvöldin heldur hann
heim af skrifstofunni. Hann fer aldrei
með verkefni heim, frú McNamara segir,
að hann skilji allar áhyggjur eftir á skrif
stofunni. Og hafi hann einu sinni tekið
ákvörðun, hættir hann að hafa áhyggjur
af málinu. Á kvöldin hvílir hann sig við
lestur bóka. Eftirlætisljóðskáld hans er
Yeats, en hann hefur einnig mikið dá-
læti á Frost og Yevtushenko. Stundum
teflir hann skák við konu sína.
Þau hjón sjást ekki mikið í samkvæm-
um borgarinnar nema skyldan bjóði.
En það er hermt, að varnarmálaráðherr-
ann skemmti borðdömu sinni í samkvæm
Óbifandi hollusta við yfirboðara sína hefur
löngum dugað honum vel
um með því að þylja fyrir hana ljóð eftir
Yeats. Fámennar veizlur með nánum
vinum eru þeim meira að skapi. Helztu
vinir þeirra eru Robert Kennedy og frú
og Jacqueline, ekkja Kennedys forseta.
Iþróttir eru ráðherranum helzta hvíldin.
Hann er tennisspilari og fjallgöngumað-
ur og á vetrum stundar hann skíðaíþrótt-
ina. Hann hefur fyrir reglu að vinna
ekki á sunnudögum nema brýn nauðsyn
beri til. Þá unir hann við lestur eða fer
í gönguferðir með konu sinni. Ekkert
barnanna dvelur heima nema á sumrin.
Þá koma yngri börnin tvö heim úr
heimavistarskólum, en elzta dóttirin er
gift og býr í Connecticut.
Skipulagsgáfa McNamara gerir það að
verkum, að nú fyrst síðan síðari heims-
styrjöldinni lauk, er hægt að tala um
samræmda stefnu í varnarmálum Banda-
ríkjanna. Á öruggum stað í stjórnarbygg
ingunni í Washington eru varðveitt
Í95Í5K v ,' ' •* J ~ , <’ S'-.'TS-f s*'..> ,r Oi-’■ Zí'
McNamara í fjallgöngu ásamt konu
sinni. Þau stunda lítið samkvæmislífið
í Washington.
hugrekki hafi þurft til að kalla yfir sig
óvild þessara manna, sem fram að þessu
hafi varla mátt gagnrýna í Washington.
McNamara þykir ekki lengur jafn-
harður í stefnu sinni í Víet-Nam og áður.
Enn hefur samt ekkert komið fram opin-
berlega, er bendi til þess að agreiningur
hafi risið milli hans og Dean Rusks, en
talið er, að McNamara standi í vegi fyrir
kröfum hershöfðingja um enn harðari
aðgerðir austur í Asíu. í ágúst síðastliðn-
um á fundi þingmálanefndar, þegar tek-
in var ákvörðun um aukið herlið og
auknar stríðsaðgerðir, hafi McNamara
verið því andvígur. Þetta þarf þó ekki
að stafa af því, að McNamara hafi misst
trúna á stríðsaðgerðir Bandaríkjanna i
Víet-Nam, segir einn stjórnmálafrétta-
ritari amersíka dagblaðsins The Times,
þessi afstaða byggist ekki síður á þeirri
skoðun hans að styrjöldin verði háð með
betri árangri á jörðu niðri en í lofti.
Sjálfstraust McNamara mun óbilandi
og er bezta vörn hans, þegar óbyrlega
blæs. Segja reyndar sumir, að sjálfs-
traust hans beri stundum keim af hroka
og þrjózku. Áður en hann tekur nokkra
ákvörðun, kynnir hann sér málið ræki-
lega og gaumgæfir það frá öllum hlið-
um, og er þess vegna því sannfærð-
ari um réttmæti þeirrar ákvörðunar.
Honum verður ógjarnan hnikað. —
Það er til marks um seiglu hans,
að þótt þingið hefði tvisvar í röð
hafnað áætlun hans um endurskipulagn-
ingu í varnarkerfinu, lagði hann hana
fram þriðja árið óbreytta og fékk hana
samþykkta. Hugmyndir McNamara um
endurbætur og endurskipulag hafa
einkum mætt andstöðu íhaldssamra Suð-
urríkjamanna, sem vilja halda fast við
allar gamlar hefðir í hermálum þjóðar-
innar. Það er þó fullyrt, að McNamara
hafi orðið eilítið sveigjanlegri í samn-
ingagerðum það sem af er ráðherraferli
hans. Hann hefur lært að víkja, en hann
víkur hægt.
leyniskjöl sem geyma 5 ára áætlun í
varnarmálum þjóðarinnar. Áður en Mc-
Namara tók við varnarmálaráðherra-
embættinu, áttu yfirmenn hinna ýmsu
deilda hers og flota sjálfræði um ráð-
stöfun þess fjár, er þeim var úthlutað.
Nú er þetta breytt. Nú er hverri deild
aðeins leyft að ráðstafa fénu á þann hátt
sem McNamara og aðstoðarmenn hans
telja nauðsynlegt með heildarþörf alls
varnarmálakerfisins í huga. Þetta hefur
dregið úr valdi yfirmanna hers og flota
og skapað togstreitu milli þessara aðila
og ráðherrans. Segja kunnugir, að mikið
3. desember 1967
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H