Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1967, Qupperneq 14
NÝJAR
DANSKAR
BÆKUR
Digternes Damer eftir Lise Sören-
sen er ein þeirra bóka, sem komir
út hjá Gyldendal í vasabókarbreti á
síðastliðnu ári. Bók þessi, sem er safn
ritgerða kom fyrst út árið 1964 og
var endurprentuð strax á næsta ári.
Höfundurinn, Lise Sörensen, er
skáld og gagnrýnandi, fædd árið 1926
í Kaupmannahöfn. Hún hefur sent
frá sér fjórar ljóðabækur og eitt
smásagnasafn. Ritgerðasafni þessu er
skipt í tvo hluta, heitir sá fyrri Den
elskede og frygtede Bog og sá síðari
Digternes Damer. í fyrri kaflanum
eru sjö ritgerðir um bókmenntir og
menningarmál; fjalla sumar ritgerð-
anna um einstaka rifhöfunda og verk
þeirra, aðra.r eru beint framlag til
menningarumræðna nútímans. Allar
bera þessar ritgerðir næmleik höf-
undar og innsæi vitni, athyglisverð
er t.d. athugun hennar á uppeldis-
sjónarmiði í vali lestrarefnis handa
börnum, þar sem hún varpar fram
þeirrf spurningu, hvort velviljaðir
uppalendur ræni ekki börnin tæki-
færinu til að horfast í augu við
raunveruleg vandamál, venji þau á
siðferðilegan flótta í stað heiðarlegra
átaka.
Síðari hluti bókarinnar er ítarleg
athugun á ýmsum afbrigðum hinnar
hefðbundnu konulýsingar í skáld-
skap. Konuna í skálddraumi karl-
mansins nefnir hún „stjernedame"
og með tilvitnunum í verk fjöl-
margra evrópskra höfunda sýnir hún
fram á það hlutverk sem konunni
er ætlað í skáldórum mannsins. Ber
þar hæst hina fórnfúsu, trúföstu
konu, sem frelsar sál karlmannsins
meðan hann frelsar heiminn. „í aug-
um karlmannsins er hún gyðja“, seg-
ir höfundurinn, ,,en vegna áhrifa-
máttar síns í skáldskapnum hefur
hún áunnið sér sess sem fyrirmynd
allra kvenna. Fölsk fyrirmynd. í því
er harmleikurinn fólginn". Með sam-
anburðj á skáldskap og raunverulegu
lífi skálda gerir Lise Sörensen marg-
ar snjallar og skemmtilegar upp-
götvanir.
Guldalderen í dansk Digtning (1967)
eftir Valdemar Vedel er komin út
í vasabókarbroti hjá Gyldendal. Fyr-
ir þetta rit hlaut Vedel doktorsnafn-
bót árið 1890 og var það gefið út
sama ár í fyrsta sinn. Önnur útgáfa
ritsins kom út 1948 og er þessi nýja
útgáfa •samhljóða henni. Réttritum
er þó færð til nútimahorfs. Rit þetta
fjallar um damskar bókmennfir á
fyrri hluta 19. aldar en á þeim ár-
um skapaðist fyrir lífvænilegan sam-
runa dansks þjóðararfs og evrópskrar
menningar sá jarðvegur sem dönsk
nútimamenning á rætur í. „Bók-
menntir öndverðrar 19. aldar móta
og tileinka sér hugmyndir og hug-
sjónir sins tíma, viðhorf þau og
strauma, sem skapa eðlilegan grund-
völl upprunalegrar nútímamenningar
í Danmörku", segir Vedel.
í samræmi við þetta skipar Vedel
bókmenntunum í sögulegt samhengi,
tengir þær rikjandi hugmyndafræði
og viðhorfum og sýnir hvernig heims
mynd manna og lífsskilningur end-
urspeglast í bókmenntunum. Geysi-
leg þekking og glögg yfirsýn hald-
ast í hendur við ljósan og lipran frá-
sagnastíl og lesandinn fær lifandi
mynd af menningarlífi Danmerkur á
þessu tímabili. Sérstakir kaflar eru
helgaðir þeim skáldum sem hæst
bar, má þar m.a. nefna Oehlensehlag-
er, Grundtvig og Heiberg.
Höfundurinn, Valdemar Vedel, lézt
árið 1942. Hann tók lögfræðipróf ár-
ið 1887, hlaut doktorsnafnbót 1890,
og var dósent og prófessor í bók-
menntasögu við Kaupmannahafnar-
háskóla frá 1895 til 1930. Hann rit-
aði margar bækur um bókmenntaleg
efni, m.a. um Dante, Moliere, Rac-
ine.
Danmarks Litteratur fra Oldtiden
til 1870 og Danmarks Litteratur fra
1870 til Nutiden eftir Mogens Brþnd-
sted og Sven Mþller Kristensen voru
gefnar út í vasabókarbroti hjá Gyld-
endal á síðastliðnu ári. Þetta er 3. út-
gáfa þessa verks; það kom fyrst út
árið 1963. Eins og nafnið bendir til
nær þessi bókmenntasaga frá upp-
runa danskra bókmennta og til okkar
daga. í upphafi er gerð nokkur
grein fyrir forníslenzkum skáldskap
og sýnt fram á gildi hans sem lítf-
ræns þáttar bókimenntaarfs Dana.
Síðara bindið hefst á George Brand-
es og lýkur á módernismanum
danska og Hereticahreyfingunni.
í handhæigu vasaibókaT'broti er
því hér saman kiominn gítfur-
iegur fróðleikur, settur fram á skýr-
an og glöggan hátt. Höfundar eru
báðir 'háskólakennarar við Kaup-
mannahafnarháskóla og mikilvirkir
rithöfundar á sviði bókmennta og
menningarmála í heimalandi sínu.
Bókmenntir Danmerkur eru hér sett-
ar í samlhengi alþjóðlegra hreyfinga
og menningarstrauma; hverri skálda-
kynslóð Danmerkur fylgir greinar-
gerð um ríkjandi stefnur í heimsbók-
men-ntunum, og 'helztu einkennum
þeirra og þeim erlendu mönnum sem
■urðu helztu áhrifavaldar hverju
sinni. — Sv. J.
RABB
Framhald aj bls. 16
við bókaútgáfu Menningarsjóðs. t
nýlegu blaðaviðtali við jram-
kvæmdastjóra Menningarsjóðs kom
jram skilningur hans á því, að
æskilegt væri, að Menningarsjóð-
ur gœti í ríkari mæli snúið sér að
þýðingum erlendra bókmennta.
Skemmtilegt væri, ef verðlauna-
bœkur Norðurlandaráðs í íslenzkri
þýðingu yrðu fastur liður í bóka-
útgáfu okkar.
Svava Jakobsdóttir.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstj. fltr.: Gísli Sigurðsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Útgefandi: H.f. Árvakur, Reykjavlk
3. desember 1967
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS