Lesbók Morgunblaðsins - 21.07.1968, Blaðsíða 14
A
erlendum
bókamarkaði
France, Germany
and the New Europe
1945—1967.
Höf: R. Roy Willis.
Útg. Oxford University Press, New
York.
Höfundur þessarar bókar er prófess-
or við Californíuháskóla. hann hefur
áður sent frá sér nokkrar bækur um
nútímasögu Evrópu m.a. „The French
in Germany, 1945—‘48“ og „Europe in
the Global Age, 1933 to the Present“
Ennfremur hefur hann stjórnað útgáfu
bókar um de Gaulle, er nefnist „De
Gaulle: Anachronism, Realist or Prop-
het“. Þessi síðasta bók hans er at-
hugun á samskiptum milli Frakklands
og Þýzkalands frá lokum heimstyrjald-
arinnar síðari og kannaður er aðdrag-
andi þeirra vandamála, sem að undan-
förnu hefur borið hæst bæði á vett-
vangi stjórnmála og efnahagsmála.
Hann rekur stefnu de Gaulles, forseta
Frakklands 1962 og afstöðu þýzku kanzl
aranna, Ludwigs Erhards og Kurts Ge-
orgs Kiesingers til frönsku stjórnar-
innar.
An Introduetion to Asia
Höf. Jean Herbert
Útg. Oford University Press, New
York.
Höfundur þessarar bókar er sérfræð-
ingur í málefnum Asíu og hefur í meira
en tiu ár kennt trúarbrögð, heimspeki
og goðafræði Asíu við háskólann í Genf.
Hann hefur um langt skeið verið túlk-
ur á alþjóðlegum ráðstefnum og einn-
ig hefur hann haldið námskeið og fyrir-
lestra um Asíu við fjölda háskóla bæði
í Evrópu og Asíu.
f bók sinni segir Herbert frá ýmsum
þáttum í menningu og hugsanarhætti
Asíubúa, afstöðu þeirra til fjölskyld-
unnar, menntunar, vísinda tækni og
lista. Hann sýnir hvernig, hver þjóðin
er annarri frábrugðin og skýrir hvers
vegna þjóðfélög Asíuríkja eru í dag
eins og raun ber vitni.
Black Power
and White Protestants
— A Christian Response
to the New Negro Pluralism
Höf. Josep C. Hough jr.
Útg. Oxford University Press, New
York.
í þessari bók kannar höfundurinn
viðhorf og viðbrögð kristinna manna
til kröfu bandarískra blökkumanna um
„vald hinna svörtu“. Hann lítur svo
á, að hvað svo sem hugtakið „vald
hinna svörtu" komi til með að þýða
í pólitískum og hugsjónalegum skiln-
ingi, sé það tákn um mikilvægar breyt-
ingar á viðhorfi blökkumanna til hlut-
verks þeirra í þjóðfélaginu. Þessar breyt
ingar valdi oft ótta, misskilningi
og andúð hvítra Bandaríkjamanna og
með það fyrir augum að vinna gegn
afstöðu, er fremur byggist á tilfinn-
ingasemi en kaldri skynsemi og sambúð
leitast höfundurinn við að sjá þessa
hreyfingu i ijósi heildarsögu samskipta
kynþáttanna i Bandaríkjunum.
Höfundurinn er forseti trúabragða-
deildar Ciaremont háskóla og aðstoðar-
prófessor í kristinni siðfræði við Guð-
fræðiskólann í Claremont.
The New Shakespeare
„The New Shakespeare" nefnist ný
vasaútgáfa Shakespeareleikrita, sem
Cambridge University Press gengst fyr
ir. Er eitt leikrit í hverri bók og fylgja
ýtarlegar textaskýringar, athugasemd-
ir og inngangur hverju leikrit eftir
kunnustu Shakespearesérfræðinga
Breta. Marlowe Society of Cambridge
hefur í samvinnu við Arge hljómplötu-
fyrirtækið í London séð um hljóðritun
leikritanna samkvæmt texta þessarar
útgáfu og fara þar með hlutverk marg-
ir kunnir Shakespeareleikarar Bretlands
The Enserfment of the
Russian Peasantry
Höf.: R. E. F. Smith, prófessor í rúss-
nesfcu við hásfcólann í Birminiglham.
Útg. Cambridge University Press.
í þessari bók er rakið afnám þræla-
halds bænda í Rússlandi, sem form-
lega tók enda árið 1649. í bókinni eru
birt 56 skjöl, þau fyrstu frá 12. öld
hin síðustu frá 17. öld. Þar kemur í
ljós stig af stigi þróun málsins. Skjöl
þessi hafa ekki fyrr verið birt á enskri
tungu.
Friedrich Hebbel: Werke. Funfter Band.
Carl Hanser Verlag 1967. DM 41.—
Með þessu bindi er lokið útgáfu verka
Hebbels í þessari útgáfu, sem er sú vand-
aðasta sem nú er á markaðnum. Gerhard
Fricke, Werner Keller og Karl Pörnbacher
sáu um útgáfuna. Birt hafa verið öll leik-
rit höfundar, auk þess leikritsbrot og at-
hugagreinar, ljóð hans og greinar um ljóð-
list og loks bréf hans og dagbækur. Út-
gáfan er mjög vel unnin og fylgja athuga-
semdir og tilvitnanir í samtíma bókmennt-
ir auk bókfræðil-egra athugana. Þessi út-
gáfa er ágætt dæmi um það hvernig ber
að gefa út klassíkera, sem Hebbel er.
ÓBvihlaup Hebbels er einstakt, hann var í
fyrstu múraralærlingur og byrjaði bóík-
menntaferil sinn með því að setja saman
helgileiki ætlaða kirkjugestum og varð að
lokum eitt merkasta leikritaskáld miðbiks
fyrri aldar. Einstaklingurinn og umiheimur-
inn var efnið, sem hann reyndi að kryfja.
Hann stendur á mörkum ídealisma og raun
sæisstefnu og varð fyrir miklum áhrifum
af Hegel og Schopenhauer auk þess sem
fyrirmyndir hans voru þýzkir klassíkerar
og Shakespeare. Carl Hanser útgáfan hefur
sent frá sér mjög vandaðar útgáfur ýmsra
þýzkra klassíkera, sem einkennast allar af
vöndugleika og góðum smekk.
Athugasemd
Sunnudaginn 7. júlí sl. birtist í Les-
bók mynd af uppdrætti af Reykjavík
árið 1920 eftir undirritaðan. í skýringu,
sem fylgdi myndinni, stendur m.a.: „A
Skólavörðuholti er merkt listasafn, og
mun þa‘ð vera Listvinahúsið". Það er
ekki rétt. Þetta er listasafn Einars
Jónssonar, Hnitbjörg. Listvinahúsið var
ekkí reist fyrr en eftir 1920 og stóð við
Frakkastíg efst.
Egill Hallgrímsson.
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
21. júlí 1968