Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.1968, Page 7
Gestahús
Einars í
Garfhúsum
100 ara
Eftir Gísla Sigurðsson
_____________
Gestahús Einars í Garöhús-
um, sem nú er 100 ára. Teikn-
ingin sýnir bakhlið hússins,
en hún er með upprunalegri
gerð.
Garðhús, steinhúsið sem Einar byggði 1914 og á bak við það til hægri á mynd-
inni sést gestahús Einars eldra.
Gömlu húsin á sjávarkambinum í Grin davík, sem nú eru að grotna niður sök-
um hirðuleysis.
legu gerð sinni og væri lítið verk að rífa
niðuir pappíriinn, svo gamia tknburklæðn
ingin feogi aftur að njóta sín. Um skeið
var húisið notað sem sumarbústaður, en
uim allt lanigt árabil hefur það staðið
tóm't og gagnlaust a'ð öðru leyti en því,
að það i;ru geyimdir nokkrir gam'lir muin
ir úr búi Einiars í Garðhúsum. Þar er
xneðal annars gömul spunavél, hand-
smíðuð sem áður var í eign Kvenfélags
í Grindavlk, en Hlöðver sonur Einars
bjargaði henni, þegar átti að henda henni
þar eru einn-ig þrír kvensöðiar í góðu
'ástandi, harðviðarsögin, sem notuð var
við hútsbygiginiguna, skirifborð Einars í
Garðhúsum og margt fleira. Þessi dug-
mikli íraimfaramaður hafði umsvif bæði
á sjó og landi og vestan við bæiinn
standa vegleg peningshús, sem nú hafa
raunar verið tekin til annarra nota. En
allt hefur það verið vandlega gert á
sínum tíma, og án efa talsvert á undan
sinini siamtið.
Atvikin höguðu því svo til að áfram-
hald gat ekki orðið á verzluoi Einars
í Garðhúisum, því börn hans fluttust é
aðrar slóðir. En Garðhús eru ennþá í
þeirra eigu og nú hefur heyrzt að
hugamenm mundu vilja stuðla að því
að koma upp einskonar byggðasafni í
GaroVúsum. Mætti benda á, að þarna
eir líklega kjörið viðfangsefni fyrir Fé-
lag Suðurniesj'amanna, hreppsfélaigið í
Grindavík, eða jafnvel Lionsklúbbinn
þar á staðnum, sem skipaður er ágætum
mönmum og hefur reynt að láta gott af
sér leiða. Ýmsir gamlir Grindvíkingar
hafa áhuga á því, að Iþarna gæti risið
minjasafn um gamla atvinnuhætti í
Grindaví'k. Hefur sumt af þessu fólki
í fórum sínum merka gripi frá fyrri
tíð og mundu þeir verða gefnir til safns
ins yrði það stofnað. Keninir þar
margra góðra grasa, og er einstakt að
slíkir munir skuli lenn vera í eigu ein-
istakli-nga, en sýnir um leið, að ekki
hafa al'lir til að bera skeytingarleysi
igagnvart gömlum munum og minjum.
Það er smán og svívirða að láta húsið
í Garðhúsum grotna niður í óhitrðu og
ekki á það síður við gestahúsið, sem áð-
ui er á minnst. Hér þarf að bregða við
skjótt og bjarga því sem bjargað verð-
ur. I fyrsta lagi þarf að flytja gömlu
búðina af sjávarkambinum og koma
henni fyrir nálægt Garðhúsabænum.
Þar þarf að gera við glugga og að inn-
an þyrfti að g:ra búðina sem líkasta því
sem hún var. Vera má að önnur hús á
sjávarkambinum séu þess virði að þau
yæru einnig flutt og ber að athuga það.
I hlöðunni, þar sem nú er netaverk-
stæði, væri hægt að koma upp sjóminja-
safni Griindavíkur og þangað þyrfti að
færa bátinn, sem nú er að fúna
og igrotna niður austur á fjöru. Án efa
eiga Grindvíkingar enn merka hluti í
sínum fórum, sem annað hvort ættu
heima á sjóminjasafninu eða byggðar-
safni Grindavikur og eru raunar heim-
ildir fyrir því, að fólk bíði með hluti,
sem það ætlar að gefa þessu safni ef
það verður stofnað.
Gestahús Einars eldra í Garðhúsum
þarf að gera upp og hafa það sem lík-
ast þvi, er það var. í sjálfu steinhús-
inu væri hægt að koma fyrir byggða-
safni Grindavíkur og fengi þetta veg-
lega hús þá verðskuldað hlutverk. Það
er ástæðulaust að allir hlutir, sem söfn-
unargildi hafa, séu dregnir til Reykja-
víkur og komið fyrir á Þjóðminjasafni
fslands. Byggðasöfnin í Glaumbæ, á
Gn:njaðarstað og umfram allt ann-
að, byggðasafnið á Skógurn, sýna að
þessi smaerri söfn eiga mi'kinn rét’t á sér.
f Grindavík hlyti slíkt safn að verða
meira og minna tengt sjósókn, þar sem
Grindaví'k var og er raunar enn þýð-
ingarmikil verstöð. Ég get lí'ka hugsað
mér, að til þessa safns yrði keypt eitt-
hvað af þeim frábæru málverkum, sem
Gunnlaugur Scheving máiaði þar á á-
kveðnu tímabili, en hann hreifst mjög af
Grindavíik. Myndir Gunn.l'augs bena það
m«eð sér, hvað honum hefur þótt vænt
um þetta pláss, hvað hann hefur tign-
að þessa nekt í umhverfinu, þessi veðr-
uðu bárujámishús, skipin sem sigla inn
og út sundin með sjóndeildarhring
hafsins að baki.
mmmmmmammmaammaoBcmeBmxmsaammmm.rL'-■< ■rxammmmmmm
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 7
25. ágúst 1968