Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1969, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.10.1969, Qupperneq 4
— SVIPMYND •Hinn sautjánda september fyllir Stirling Moss fertugasta árið. Nú eru liðin sjö ár frá því hann lenti í bílslysi því í Good- wood, sem batt enda á kapp- akstursferil hans. Þess slyss sjást nú orðið fá merki í fram- göngu Moss, enda þótt hann hafi að sjálfsögðu ekki farið al- gerlega varhluta af þeim. Hann man t.d. ekkert, sem gerðist dag inn fyrir slysið og heldur ekki fyrsta mánuðinn eftir það. En að öðru leyti hefur minni hans fremur batnað en hitt. Hann hefur endurheimt jafnvægis- skynið og sjónina, og fer allra sinna ferða óhindraður. Hann hefur aðeins hægt á ferðinni. Hann kveður ekkert geta komið í stað þess lífs, sem hann lifði áður fyrr. Moss býr í einbýlishúsi í skugga Hiltonhótelsins í May- fair í London. Dagskrá hans er á þá lund, að hann vaknar um áttaleytið og fær sér kaffibolla og greipaldin með, les blöðin og fer yfir bréf. Síðan les hann fyrir inn á segulband við rúm- stokkinn. Stundarfjórðungi yfir klukkan níu er hann kominn á skrifstofu sína á neðstu hæð- inni. Yfir skrifborði hans hanga tvö bílslys. Þau eru til minja um tvö slys, sem því nær höfðu kostað hann lífið. Moss fæst nú við ýmiss konar viðskipti og skriftir en saknar alltaf öðru hvoru síns fyrra starfs. Hann telur sig hafa verið gæfusam- an að velja kappakstuirinn, og kveðuir hann kjörið starf ó- kvæntum manni. Honum fylgi engin ábyrgð nema gagnvart manni sjálfum, en hins vegar mikil spenna, ferðalög, veizlur og viðkynning. — Sá hluti ævi minnar var varðaður kappökstrum og veizi um. Ævinlega var ég að fara í minn mikilvægasta kappakstur. Og ég tefldi alltaf til sigurs. Ég mat ákaflega mikils æsinginn, sem fylgdi því að keppa til sig- urs. Á samanlögðum ferli mín- um hitti ég fjölmarga hrað- skreiða náunga en færri baráttu menn. En sumum er brýn nauð- syn að sigra Ég er einn þeirra. Ég hef nú þekkt Moss í fimmt án ár. Það var í september árið 1956, að við lá, að hann hræddi úr mér líftóruna í Goodwood. Þannig var, að svo hafði talazt til milli okkar, að hann æki mér eins hratt og honum sýndist í Aston Martin DB3S bifreið og ég reyndi að festa mér áhrifin í minni og gera síðan grein um ferðina fyrir The Sunday Times. Mér leizt prýðilega á hug myndina, þar til kom að því að leggja skyldi af stað. Samt girti ég skálmarnar mður í sokk ana og reyrði hjálmólina undir hökuna. Því næst vissi ég varla STIRLING SS # FERTUGASTA HRINGNUM Brezki blaðamaðurinn Godfrey Smitli segir frá kynn- um sínum af kappaksturslietjunni frægu. af, fyrr en við vorum komnir vel á veg út í buskann. Fyrsta hugsun mín fjallaði um það, að Moss væri orðinn bandóður. Bíllinn þeyttist á því líkum hraða í fyrstu beygjun=, að ég var viss um, að honum hvolfdi. Það ískraði ámáttlega í hjólbörðunum og ég fann sviða lykt. Ég áttaði mig ekkert á um- hverfinu í þessum fyrsta hring. Ég segi ekki, að ég hafi lokað augunum en vil heldur ekki þræta fyrir að hafa kiprað þau saman! Þegar maður ekur á eðlileg- um hraða varðar landslagið veg inn og skógar, akrar og engi líða hjá í þægilegum straumi. En nú sá ég aðeins glefsur og brot. Ég sá ekki betur, en veg- urinn sveiflaðist til eins og ólm slanga. I fyrsta hringnum fórum við út af og æddum gegnum gras- lendið. Moss hafði orðið á smá- skyssa vegna þyngdar minnar Hann áttaði sig miklu fyrr á þessu, en flestir hefðu gert og ákvað að vinna það upp, sem tapazt hafði. Hann reyndi því ekki að þröngva bílnum í beygj una, heldur snarsneri í hina átt- ina og út í grasið. Þetta uppá- tæki skelfdi mig ekki sérlega. Ég hafði þegar reynt hitt og þetta. En fleira fylgdi. Brátt missti ég allt tíma- og staðar- skyn. Mér virtist við vera miðja sólkerfisins og hnötturinn sner ist kringum okkur á ofboðsleg- um hraða. Því næst vorum við á beinni braut á ný. Moss knúði bílinn niður brautina á eldingarhraða. Mér fannst hann aka af miklu kæru leysi. Frakkinn var nær fokinn af mér. Ég ríghélt mér og var sannfærður um, að mikið riði á því. Við virtumst vera að berja í sífellu á grjóthörðum loftvegg Nú var gildra framundan Það var hlaðinn veggur og náði út á hálfa brautina. Moss þeytti bílnum fyrir vegginn og mér sýndist við hálft í hvoru ætla að sleppa. En rétt í því, að við vorum að smjúga framhjá snar beygði Moss og stefndi nú rak- leitt á vegginn. Ég hnipraði mig saman aftur í sætinu. Mér virt- ist við eiga fáeina þumlunga ó- fama að veggnum. Moss glotti aðeins. Og — það var ekki fyrr, en hann hafði Ieikið þetta eftir í hverjum einasta hring, sem eftir fór, að ég tók að meta ná- kvæmni hans að verðleikum. í þriðju hringferðinni hafði ég jafnað mið örlítið. Moss gaf mér merki og vildi vita, hvort mér liði bærilega. Ég lyfti hend inni dauflega á móti. Ég var óðum að reyna að koma skipu- lagi á hugsun mína og melta þá reynslu, sem ég hafði orðið fyrir og hugðist nota í grein þá, er ég hafði talað svo belg- ingslega um. Eftir fimmta hringinn ókum við að bílskúrunum. Ég spurði Moss nokkurra spurninga og hann svaraði, en síðan héldum við enn af stað og fórum okkur nú öllu hæigara. Við ókum hring Stirling Moss ina á rúmum sextíu kílómetra hraða og Moss skýrði fyrir mér þau brögð, sem hann notað hverju sinni. Við höfðum ekið annan hringinn á tveim sekúnd um lengri tíma en Moss hafði áætlað og stafaði það af þyngd minni. Þessi ökuferð var að sjálf- sögðu aðeins gamanspaug, en einum sex árum síðar var ég á ferð með fjölskyldu minni, þegar tilkynnt var í útvarpinu, að Moss hefði lent í alvarlegu slysi á Goodwoodbrautinni. Hann hafði farið út af vegin- um á nákvæmlega sama stað og við forðum. Enginn veit enn hvað olli þessu slysi. E.t.v. mætti komast að því með dá- leíðslu, en þá gæti Moss lam- azt aftur, svo að hann verður að sitja á forvitni sinni. ]MÍ oss fékk átta þúsund ster- lingspund í tryggingarfé vegna slyssins, en þó með þeim skil- málum, að hann tæki aldrei þátt í kappakstri framar. Ég spurði hann eitt sinn, hve lengi hann hefði haldið keppni áfram, ef slysið hefði ekki komið til. Hann svaraði því, að hann hefði líkast til haldið áfram eins lengi og hann hefði haft nokkra sigurvon. — Stoltið hefði svo stöðvað mig að lokum, — bætti hann við. Hvernig, sem því vék við, þá varð hann aldrei heimsmeistari. En séu allir sigrar hans lagðiir saman, þá eru þeir líklega fleiri og meiri, en nokkur annar hefur átt að baki sér. Hann tei- ur beztu frammistöðu sína þá, er hann ók fjögurra strokka Lotusbíl í keppni við ótta stirokka Ferrari í Monaco Grand F’rix-keppninni 1961 og héllt f oiry stuinini í niíiuitiiu hrinigium af einu hundraði. Einhvern tíma spurði ég Moss þess, hvert hann héldi, að sæti hans væri í sögu kappaksturs- ins. — Ég býst við, að fáir hafi tekið mér fram í sportbílum. Hvað Formula 1 snertir þá var Fangio mesti ökumaður þeirra bíla á minni tíð. Jimmy Clark var mjög góður. Ég veit ekki vel hvaða einkunn ég á að gefa honum. Ég veit aðeins að ég hefði mátt taka allvel á til að sigra hann. En bílar þeir, sem ég ók voru ævinlega enskir. Ég vildi heldur tapa í enskum bil, en sigra í erlendum. Sigux get- ur verið afstæður eins og allt annað. Og ég er mjög þjóðernis sinnaður. Því miður voru enskir bílar í lakara lagi á minni tíð. Því fór t.d. svo, að ég vann aldrei heimsmeistaratitilinn. En mér var áfram um að halda ensku bílunum til streitu. Og það hefur heldur ekki allt að segja að vinna heimsmeistara- titilinn. Úr því er ekkert að keppa að, nema vinna hann aftur. — Eftir að Moss hætti kapp- akstri hefur hann oft haldið því fram í viðtölum, að kappakst- urshetjur þarfnist ekki hugrekk is. Hann telur hugrekki og kjánaskap því nær hið sama og segir, að kappakstursmaðurinn þurfi fyrst og fremst að vera klár í kollinum. Allt frá því Moss náði sér eftir slysið hefur hann orðið að byggja afkomu sína á því, að hann var eitt sinn fræg kapp- aksturshetj a. Fyrrum atvinnu- keppandi í golfi getur orðið kennari, en fyrrum kapp- aksturshetja, sem ekki má koma nálægt kappakstri verður að leita á önnur mið. Moss hef- ur verið varkár í vali sínu. Hann eir alinn upp í heiðar- leika, stundvísi og orðheldni og kurteisi. Hann stofnaði sjálfur hlutafélagið, Stirling Moss Ltd. Einnig á hann viðgerðarverk- stæði og ferðaskrifstofu og hluta í skartgripaverzlun og þvottahúsi. Ennfremur er hann forseti ótal kappakstursklúbba og samtaka og ritstjóri bifreiða og kappELksturstímarita. Hann ritar greinar og selur þær víði um heim. — Einu löndin, segir hann, þar sem greinamar mínar ganga ekki út eru England og Þýzkaland, en þaðan fæ ég flest aðdáendabréfin. — I fyrra eð var skildi Moss við aðra konu sína, Elaine Barbar- ino. Þau hjón áttu eina dóttur barna, Allison að nafni. Hún er nú tveggja og hálfs árs gömul og heimsækir föður sinn dag- lega, þegar hann er staddur í London. Auk þess fær hann að hafa hana hjá sér um aðra hveirja helgi. — Þá sæki ég hana á laug ardagsmorgnum og skila henni á sunnudagskvöldmn, — segir Moss. — Ég kem henni í rúmíð og stjana við hana en fóstrna er samt alltaf með henni. Ég vil að telpan hafi kunnugleg andlit í kringum sig. Henni á að finnast sem hún sé heima h)á sér. Méir þykir ákaflega vænt um hana og það er afar mikil- vægt að raska lífi barna sem minnst. Þau eiga ekki að þurfa að þjást fyrir gerðir foreldr- anna. — Hann getur vel gert sér í hug arlund að kvænast í þriðja sinn enda þótt hann hafi tapað tvisv ar, eins og hann orðar það. Hann segir, að því megi líkja við kappakstursslys. Þótt mað- ur lendi í slíku, þá flögri aldrei að manni að gefast upp. — Og séu tvær manneskjur samhent- ar í hjónabandi, þá hlýtux það að vera dásamleg reynsla. — Nú orðið lifir Moss mjög ein- földu lífi. Þegar hann stundaði kappakstur reykti hann hvorki né drakk. Nú reykir hann einar fimm sígarettur á degi hverjum og nýtur þeirra allra í hæsta máta. Einnig bragðar hann svo- lítið hvítvín. Hann borðar spar lega og sleppir oftast hádegis- matnum. Hann notar líka sakk arín í stað sykurs. Hann kaup- ir sjálfur í matinn þótt hann hafi ráðskonu. Hann hefur mest dálæti á frystum mat og honum er kunnugt um verðið á hverri einustu fæðutegund. Hann segist hafa garnan af að fylgjast með því, hvað hægt sé að fá fyrir peningana sína. Moss gerir ýmislegt sér til gamans í tómstundum sínum. Hann safnar frímerkjum — ó- stimpluðum, vel að merkja. Einnig fylgist hann mjög með kappakstri í sjónvarpinu. Svo fer hann til Monaco. Hann veit hvar feitt er á stykkinu. Hann kemur sér einhvers staðar fyrir á vel völdum stað og fylgist þaðan með brögðum kappakst- ursmannanna. Honum finnst í- þróttin hafa tekið stakkaskipt- um, frá því hann hóf að stunda hana sjálfur. Einnig finnst hon- um keppendurnir hafa breytzt. — Mesti ökumaður á minni tíð var Fangio. Honum svipaði þó lítt til kappaksturshetju. Hann var mjög góðlegur og að sama skapi vænn í sér. En sá gat ekið. Sumum er taktur með- fæddur, einkum blökkufólki. Kappakstur var Fangio sannar lega meðfæddur. En fleiri voru góðir en Fangio. Ég get nefnt Tony Brooks og Mike Haw- thorn. Mike var geysilegur öku þór á sínum tíma, en hann var misjafn. Atvinnumaður getur ekki leyft sér slíkt. Hann verð- ur að taka á öllu sínu í hvert sinn. — — Sumir félaga minna settust að erlendis, — bætir Moss við. — Það genði ég aildriei. Hefði ég ekki borgað skatta í tuttugu ár væri ég betur staddur núna. Ég hafði miklar tekjur í bá daga, en afföllin voru líka mikil. Sannleikurinn var sá, að þetta skipti mig ekki megin máli. Mér þótti vænt um stai'f mitt. — 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. oikitöbar I9'09

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.