Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.1970, Blaðsíða 10
Aldri forsetafrúarinnar er
haldið leyndum. Sé spurt eftir
honum í höllinni, fær maður
kuldalegt svar: „Aldurs henn-
ar er ekki getið í opinberum
æviatriðum henniar." Frönsk
dagblöð og tízkublöð hafa því
ekki árætt að geta sér til um
aldur hennar. En fólk, sem tel-
ur sig vita hið sanna, segir
hana fædda árið 1907. En hvað
sem því líður, þá blandast eng-
um hugur um, að forsetafrúin
er fjörleg og aðlaðandi kona,
sem heldur sér vel.
Frú Pompidou ól þá von í
brjósti að hún gæti farið að
starfa utan heimilis, þegar
einkasonur hennar, Alain, sem
er fæddur árið 1944, væri vax-
inn úr grasi.
„Nú er sonur minn orðinn
læknir”, segir hún, „og mig
hafði dreymt um að setja á
stofn listsýningarsal á vinstri
bakkanum.“ Nú hefur hins veg-
ar skipazt svo, að hún verð- Klæðnaður forsetafrúarinnar í Bandarikjaförinni vakti fullt eins mikla athygli eins og Frakklandsforsetinn sjálfur. Frúin var
ur fyrirmynd milljóna franskra nánast sem gangandi auglýsing fyrir tízkuhús Parísar. Hér sjást nokkur sýnishom.
CLAUDE
POMPIDOU
forsetafrú í Frakklandi
F rú Claude Pompidou er
há vexti og ljós yfirlitum,
glæsileg fremur en fögur, hlát-
urmild og opinská í tali. Hún
er ólík flestum öðrum forseta-
frúm, sem Frakkland hefur átt,
og er alger andstæða Yvonne
de Gaulle, fyrirrennara síns.
Hún er engan veginn hrifin
af því að þurfa að setjast að í
hiinind kuldaleigu . Elyséehöll
þar sem 250 ára gömul saga
hefur sett fremur þunglama-
legt svipmót á sali og hallar-
garða, en hún tekur bústaða-
skiptunum með jafnaðargeði.
Þessi unglega og sjálfstæða
kona er einnig sérstæð að því
leyti, að hún er ein af örfáum
forsetafrúm Frakklands, sem er
ekki einu sinni orðin amma,
þegar hún flytur inn í forseta-
höllina.
kvenna í stíl og smekk næstu
árin.
Frú Pompidou hefur alltaf
tekizt að halda einkalífi sínu
utan sviðsljósanna, enda þótt
maður hennar hafi gegnt opin-
berum störfum allt frá árinu
1948. Hún viðurkennir, að sér
muni falla miður sú breyting,
sem nú hlýtur að verða.
Þegar eiginmaður hennar var
forsætisráðherra í stjórn de
Gaulle, sagði hún einu sinni í
blaðaviðtali: „Það er andstætt
eðli mínu að vera í sviðsljós-
inu. Ég vil vera ég sjálf, vera
eins og mér er eiginlegt og
gera það sem mér dettur í hug
þá stundina. Ég hef megnustu
SVIPMYND
andúð á öllu sem er falskt eða
tilgerðarlegt”. Ekki alls fyrir
löngu lét hún svo um mælt:
„Allra verst þykir mér, að nú
get ég ekki iengur lónað um
götur Parísarborgar, þegar mér
dettur í hug, til þess að verzla,
eða skreppa inn í kvikmynda-
hús”.
Skemmtilegasta dægradvöl
hennar til þessa hefur verið að
bjóða nánum vinum heim eina
kvöldstund, en meðal beztu
vina hennar eru t.d. málarinn
Bernard Buffet og skáldkonan
Franeoise Sagan. Þá er spjall-
að yfir látlausum kvöldverði
og hlustað á Bach, Beethoven
eða einhverja nýrri tónlist.
Claude Pompidou.
Georges Pompidou hefur
alltaf reynt að koma til móts
við óskir konu sinnar um að
varðveita friðhelgi einkalifsins.
Þegar hann tók við hamingju-
óskum stuðningsmanna sinna
við úrslit forsetakostninganna
15. júní s.l., var hann einsam-
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
5. apríl 1970