Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Side 5
Draumur og dagsverk,
1953. Myndin var ófull-
gerS, þegar listamaðurinn
lézt.
Skuld, 1900—1927, hluti
úr myndinni.
freyja ágæt, og blærinn allur á
heimili þeirra var vinum og gest-
um til gleði. Þegar staðið var upp
frá góðri máltíð í borðstofunni i
miðju safninu, var unaðslegt og
sérstætt að ganga um salina, sem
Björn Th. Björnsson listfræðing-
ur kallar „hvítan kynjaskóg", og
Guðmundur skáld frá Sandi kall-
aði í ágætu ljóði „heim hvitra
töfra".
List Einars Jónssonar verða
væntanlega gerð betri skil en
unnt er í blaðagrein, þegar út
kemur siðar á þessu ári bók með
myndum af listaverkum hans og
aldarminningu, sem Almenna
bókafélagið gefur út i tilefni
aldarafmælisins, en hér skal að
lokum minnzt þess, að list lians
ber þess ljósan vott, hver trú-
maður hann var. En einnig um
það fór hann sínar eigin götur og
hafði opna glugga við ölium átt-
um. Hið dulræða, mystíska, i trú-
ararfi kynslóðanna var honum
heilagt land innan allra trúar-
bragða.
Eg kont að honum einhverju
sinni þar sem hann vann að trúar-
legri mynd. Ég spurði barnalega,
hversvegna allar þær linur, sem
hann var að draga í gibsið, leituðu
upp. Hann þagði andartak og
sagði þvinæst lágum rómi: „Upp?
Öll fórn fæðist fyrst hjá Guði.“
Svo settist hann og þagði drykk-
langa stund. Þá þögn var ekki
unnt að rjúfa, en þetta var Einar
Jónsson: Hjá Guði á upphaf sitt
allt, sem er göfugt, háleitt. Eins
og endurskin frá honum er allt,
sem við finnum heilagt í mannlif-
inu, mannssálunum.
Þar fæddist listgáfa þessa sér-
stæða, háþroskaða listamanns. Og
þeirri gjöf að ofan gaf hann allt,
sem hann átti til að gefa, og fórn-
in varð stundum stór.
Jón Auðuns.
mw-
MATll
sér um þáttinn. I þetta sinn:
?inn (iilsson
S0Ð1N FISKFLÖK MEÐ
SPAGHETTI í TÓMAT-
SÓSU.
Ro5 og bein eru hreins-
uð úr fiskinum og hann
skorinn i hæfilega stór
stykki. Pottur eða panna
er smurð í botninn með
smjörlíki, smátt skornum
lauki stráð í botninn, fisk-
stykkjunum raðað ofar á
laukinn, sitróna kreist yfir
fiskinn, kryddað með salti,
pipar og tfmian, vatni hellt
yfir svo rétt hylji fiskinn og
siðan soðið. Spaghetti,
sem soðið hefur verið i vel
söltu vatni, er látið i djúpt
fat, rifnum osti blandað
saman við, siðan er fiskin-
um raðað ofan á. Þykk
sósa er löguð úr fisksoð-
inu, krydduð með sama
kryddi og fiskurinn ef
þurfa þykir, ásamt riflegu
af tómatmauki eða tómat-
sósu og ögn af hvitlauks-
dufti, bætt með rjóma-
blandi og hellt yfir fiskinn.
Framreitt með brauði og
smjöri.
SUNNUDAGSKVÓLD-
MATUR
þegar lambasteik hefur
verið i hádegismatinn.
Laukur er smátt saxaður
og látinn krauma i potti i
smjörliki ásamt papriku og
karrydufti. Smátt skorinn
lambasteikinni bætt út i
ásamt skornum sveppum,
öllu blandað vel saman,
bökuðum baunum (úr dós)
bætt út i ásamt litilsháttar
af steikarsósu og mjólk
eða rjómablandi. Soðið vel
saman, bragðbætt með
salti, pipar og sherrv, einn-
ig bætt úti meira af karrý
og papriku ef með þarf.
Framreitt með laussoðn-
um hrisgrjónum, brauði og
smjöri.
STEIKT LAMBSLIFUR AÐ
UNGVERSKUM HÆTTI.
Lambslifur er skorin t
þunnar sneiðar, sem eru
kryddaðar með salti og pip-
ar, velt upp úr hveiti,
steiktar á pönnu i smjör-
liki, brúnaðar vel og síðan
færðar upp i djúpt fat.
Á sömu pönnu er látið
krauma saxaður laukur,
bacon og paprikuduft.
Þegar þetta hefur kraumað
i u.þ.b. 3—4 min. er hveiti
stráð yfir og bakað vel
saman, látið kólna aðeins,
en þá er mjólk eða rjóma-
blandi bætt á pönnuna,
hrært vel í og soðið vel
saman, mjólk bætt i ef
með þarf. Bragðbætt með
tómatsósu, súpudufti, salti
og pipar hellt yfir lifrina á
fatinu.
Framreitt með soðnum
kartöflum og grænum
baunum.
BAUTI BAKARAKONUNN-
AR.
Finthakkað magurt
nautakjöt er hnoðað með
eggi, svo að það verði
mjúkt og þétt. Frans-
brauðssneið er skorinn
hringlaga, heldur minni en
fyrirhugaður bauti á að
vera, brúnuð i smjöri.
Kjötdeigið flatt út, u.þ.b.
1 sm þykkt, brauðsneiðin
lögð ofan á kjötið, það
brotið vel utan um og
kantarnir klemmdir vel
saman. svo að þeir opni sig
ekki þegar bautinn er
steiktur. Kryddað salti og
pipar og steikt á vel heitri
pönnu.
Sósu er bezt að laga á
pönnunni, þegar búið er að
steíkja bautann út i og
hræra vel i á meðan,
bragðbætt með súputen
ingum, salti og pipar, siað i
finu sigti.
Franireitt með sósunni
soðnum kartöflum og
sýrðu grænmeti.
Hafsteinn Gilsson.
©