Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Blaðsíða 12
Njáll Þóroddsson með soninn Hauk og bókina miklu OAHSPE. □ULRŒn EFfll □G TRÚRR REVflSLR Njáll Þóroddson garöyrkju- bóndi var alveg viss um, að það væri engin tilviljun, er frétta- maður Mbl. heimsótti hann í Frið- heima, hús hans nálægt Aratungu í Biskupstungum, og kvaðst kom- inn til að spyrja um trú hans, í samræmi við ákvörðun um að segja skyldi frá persónulegri trúarreynslu fólks. Um Njál vissum við það eitt, að hann aðhyllist trúarbrögð, sem eru nær óþekkt hér, og að hann í samræmi við það borðar aðeins grænmeti, hefur ekki neitt dýra- kyns til matar. Njáll tók blaða- manni vel, kvaðst sannfærður um, að sá hinn sami hefði verið sendur af æðri stjórnendum til að kynna þessi trúarbrögð, Oahspe. Hann kvaðst hafa orðið fyrir vissri reynslu í sambandi við trú sína, finna stundum likamlega fyrir því, að eitthvað sé satt og hann sé að gera rétt. Slíka uppljómun hefði hann einmitt fundið, þegar fréttamaður til- kynnti komu sína og aftur, þegar hann kom. Ekki vildi hann skil- greina það nánar, sagði aðeins, að almættið væri hér og alls staðar og maður þyrfti að finna til þess. Þetta gerðist stundum. Með því að einbeita sér yrði hann stundum var við þetta í líkama sínum. T.d. hefði hann lært að nota tónlist sem hjálparmeðal til einbeit- ingar. Sér gagnaði það, öðrum kannski ekki. Þetta væri persónu- legt. Hann hefði t.d. reynt hug- ERUMA LEIÐ INNÍ LJÓSSVÆÐI - ÞVÍ ER ÖLL ÞESSI UPPLAllSN Viðtal við Njál Þóroddsson garðyrkjubönda um trú hans — OAHSPE Eftir Elinu Pálmadóttur leiðslu, en hún færði sér ekkert. Líkamsæfingar kæmu honum ekki að gagni af skiljanlegum ástæðum, þar sem hann væri öryrki eftir slys og þreyttist mjög við alla vinnu. Hann gæti ekkert um þetta fullyrt vissi aðeins, hvernig hann yrði sjálfur var við almættið. En hver er hún þessi trú og hvaðan kemur hún? — Þessi trú er ekkert annað en bein tilbeiðsla á almættinu, útskýrir Njáll. Það er eitthvað likt því sem segir i Bibiíunni: I honum lifum, hrær- umst og erum vér. Almættið er yfir öllu, óskýranlegt og óskiljan- legt. Það er alltaf nálægt, en það erum við, sem skerum á sam- bandið sjálf. Vesturlandamenn tilbiðja mannlegar verur eða mannleg form, þar sem frelsarinn er notaður sem tengiliður. En samkvæmt OAHSPE (óaspí) er slíku ekki til að dreifa. Yfir öllu er almættið, sem talar til sona sinna og dætra og setur þeim lifnaðarhætti. Til dæmis undr- umst við stundum að stórmenni eins og Jón Sigurðsson komi upp meðal okkar. En hann er verkfæri sendur til að koma fram vissum hlutum. Kynslóðameistarar vinna að því að fá fram einstaklinga, sem gegna eiga sérstöku hlut- verki, velja saman foreldri með tilliti til andlegra hæfileika og þarf stundum kynslóðir til. Við erum alltaf undir áhrifum Es, hins óséða og öllu er stjórnað. En hvernig er heiminum þá stjórnað? Almættið eryfir öllu en yfir jörðinni er einn guð, eins konar kapteinn, sem stjórnar þessu svæði, segir Njáll og siðan undirstjórnandi, drottinn, sem ræður yfir sínum hluta. Hann er útnefndur til ákveðins tíma en, er svo fluttur á annan stað. En milljón manna ráð er við hlið almættisins. Það getur gert breyt- ingar, svo sem að breytt möndul- legu jarðar og þétt agnir í geimn- um til að mynda stjörnu. Hvernig hefur Njáll sjálfur kynnzt þessu? Hann kvaðst lengi hafa lesið metafýsiskar bækur. Kynnti sér t.d. kenningar Helga Pjeturs, leitaði til guðspekinnar og sótti miðilsfundi á skólaárum sinum. Hann komst i kynni við yoga hjá bróður sinum, Þór, í Los Angeles. En einn góðann veður- dag fékk hann i hendur þessa bók, sem hann hafði pantað frá bókaútgáfu i Los Angeles. Hún hét OAHSPE, en nafnið þýðir jörð, himinn og andi. Hann fór að lesa þessa bók, sá að hún hafði mikið fram að færa. Bamt lagði hann hana frá sér í 4—5 ár, en vissi að hann gæti ekki gengið fram hjá henni. Þá tók hann hana aftur og þykir kenning hennar æ merkilegri. — Sumir segja að þetta sé bara visindalegur reyfari, segir Njáll, en ég get ekk- ert fundið í þessari bók, sem ég get mótmælt. En ekki þýðir að glugga í hana, maður verður að lesa hana spjaldanna á milli.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.