Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Síða 7
íslendingar eru án efa meiri trúmenn en
í fljótu bragði mætti halda og áhugi lands-
manna á dulrænum efnum, alit frá reim-
leikum til miðla, hefur lengi verið kunn
staðreynd. Flestir virðast hafa hugboð
um, að ekki sé allt sem sýnist og ótrúlega
margir hafa orðið fyrir einhverri persónu-
legri reynslu I þessa átt.
Meðan á prentaraverkfallinu stóð.
fengu blaðamenn Morgunblaðsins það
verkefni að kanna þetta fyrirbæri litillega.
Birtast greinar þeirra í þessu og tveimur
næstu blöðum og er þar víða við komið,
allt frá Ásatrúarmönnum nútímans og
Oahspe trúfélaginu til miðilstarfsemi Haf-
steins Björnssonar og hinna venjulegu og
þjóðlegu draugasagna. Að visu heyra
mergjaðar draugasögur fremur fortíðinni
til óg næsta dáuft orðið yfir mórum og
skottum. Hafsteinn miðill hefur raunar
skýringu á því. Hann segir: „Þessi fyrir-
bæri voru afsprengi haturs og ótta og
þeim var við haldið með formælingum.
Við erum ögn betri nú orðið, við hötum
minna, en biðjum fyrir framliðnum. Ég
held að það sé ástæðan fyrir því að
draugar og vofur ganga ekki Ijósum logum
eins og áðurfyrr. .,,
Af öðru, sem þarna verður tekið fyrir,
má nefna grein um Uri Geller, sögu af
yfirnáttúrlegri lækningu, frásögn af Rosi-
crusian reglunni, grein um kenningar
Helga Pjeturs og frásögn Guðmundar Jör-
undssonar af draummanni. Þegar allt
kemur til alls, bregða þessar greinar upp
ákveðinni mynd af trúarskoðunum lands-
manna og hugmyndum þeirra um fram-
haldslif.
Dulræn efni eru eftirlætis viðfangsefni
landsmanna og nægir að benda á, hvað
bækur um þessi efni seljast vel. Myndin
hér að ofan er einmitt af einu slíku fyrir-
bæri, sem ekki er öllum gefið að sjá.
Skygnt fólk segir, að mislitur og misbjart-
ur Ijóshjúpur sé utan um alla menn; hann
er nefndur ára. Enda þótt augu okkar
flestra greini ekki þennan hjúp, heldur
rússneskur visindamaður því fram, að
hann hafi náð myndum af árunni. Hafa
þessar myndir vakið mikla athygli og verið
birtar víða um heim. í grein sem banda-
riska vikuritið Time magazine birti ekki
alls fyrir löngu um þessi efni, var meðal
annars þessi meðfylgjandi mynd.
Þeir sem sjá áruna, segja að hún breyti
um lit eftir sálarástandi og með svo-
nefndri Kirilián aðferð hefur verið hægt að
framkalla allt aðra liti, þegar viðkomandi
verður fýrir léttu rafhöggi um leið og
myndin er tekin.