Lesbók Morgunblaðsins - 02.06.1974, Page 16
W Blode
W smidige
hænder
mens De vasker
OPVASK
biologisk nedbrydeligt
505 g
Palmolive hefur sérstaka efnasamsetningu,
sem veldur því að þér notið minna magn í
uppþvottinn. Notið aðeins smá skvettu ög
uppþvotturinn verður spegilskínandi.
Þannig hafa fleiri og fleiri uppgötvað, að
það borgar sig aó nota Palmolive I uppþvottinn.
Reynið það sjálf.
Palmolive uppþvottalögur-gerir hendur yðar
mjúkar og liprar, um leið ogþérþvoið upp.
palmolive
VOR SIÐUR
Framhald af hls. 15
kristin trú þiggi ýmislegt frá
heiðnum trúarbrögðurn, enda eru
þau eldri.
(Auðunn Arnoddur verður
þögull um stund, en segir siðan:)
— Ég skal leyfa þér að heyra
tvær vísur úr Hávamálum, sem að
mínum dömi sýna vel muninn á
vorum sið og kristinni kirkju:
Vin sínum
skal maðr vinr vera
ok gjalda gjöf við gjöf;
hlátr við hlátri
skyli hölðar taka,
en lausung við lygi.
— Láttu bænina aldrei bresta
þig, segir Auðunn annars hugar
og andvarpar. — Styrkur trúar-
innar er hverjum manni nauðsyn-
legur. Þetta er ef til vil) sjálfssefj-
un sem er áreiðanlega mjög gagn- j
leg frá sálrænu sjónarmiði. Sjálfs-
sefjunin má þó ekki ganga svo
langt að hún verði sjálfsblekking.
Hvað trúarlega reynslu snertir
hef ég ekki fundið fyrir neinni
snöggri breytingu eða orðið fyrir
opinberun ef það er þáð sem þú
átt við. Hins vegar kemur trúar-
leg reynsla fram á löngum tíma og
síðan ég kynntist vorum sið hef ég
mikið lært og tel mig hafa öðlast
meiri vitneskju um umheiminn
en ég hafði áður.
Til forna fylgdi ásatrúnni trú á
alls konar vætti, álfa, tröll og
drauga. Ert þú trúaður á yfir-
náttúruleg fyrirbrigði?
—Það er rétt, að álfar og vættir
voru þáttur í vorum sið til forna,
en ég held að það sé misskilning-
ur að trú á yfirnáttúruleg fyrir-
brigði séu skyldari vorum sið en
öðrum trúarbrögðum. Drauga- og
huldufólkstrúin hefur t.d. fylgt
þjóðinni í gegnum alla kristnina.
Hvað sjálfan mig varðar, hef ég
aldrei orðið fyrir yfirnáttúrulegri
reynslu og get þess vegna ekki
tekið afstöðu með slíku. En ég
hafna því ekki algjörlega einfald-
lega vegna þess að ég veit ekkert
um það.
Hefurðu trú á að Félag ásatrúar-
manna eigi eftir að verða sterkt
afl f fslenzku þjóðfélagi f framtfð-
inni?
— Það er erfitt að segja fyrir
um það og f sjálfu sér skiptir það
engu máli svo framarlega sem við
fáum að vera í friði með vorn sið.
Við rekum ekki trúboð og gerum
engar tilraunir til að veiða menn
til okkar með orðagjálfri eða
þvingunum eins og sum trúar-
brögð gera. Við viljum ekki troða
vorum sið upp á neinn því að vor
siður leggur mikla áherzlu á
einstaklinginn og að menn fái að
vera i friði með eigin skoðanir.
sv.g.
Vin sínum
skal maðr vinr vera
þeim ok þess vin;
en óvinar síns
skyli engi maðr
vinar vinr vera.
— Hér er sem sagt ekkert verið
að skafa af því, — enginn maður
ætti að vera vinur manns, sem er
vinur óvinar hans. Lífið er bar-
átta og þessar tvær vísur sýna það
á vissan hátt. 1 kristni er þetta
öfugt. .Þar er ætlast til að maður (
rétti fram vinstri vangann sé
hann sleginn á hinn hægri. Ég
held að þetta sé andstætt eðli
mannsins og i vorum sið kemur
slíkt ekki til greina. Það er ekki
eðlilegt að láta troða á sér án þess
að bera hönd yfir höfuð sér. Vor
siður er að minum dómi mun
mannlegri en flest önnur trúar-
brögð sem ég þekki til. Það er
gert ráð fyrir mannlegum breysk-
leika, ekki bara uppsprengdur
hátíðleiki.
Ertu þá f fullkominni andstöðu
við kristna kirkju?
— I raun og veru er vor siður
ekki i andstöðu við allar kenning-
ar Krists, heidur helzt við þær
hugmyndir kristninnar sem bjóða
upp á þrælslund og undirgefni.
Hins vegar finnst mér aó kirkjan
sem slik hafi í mörgum tilfellum
brugðið út af kenningum Krists i
gegnum aldirnar og það er ef til
vill megin ástæðan fyrir því að ég
hvarf frá kristinni trú. Auk þess
held ég að mjög erfitt sé að greina
á milli hvað af Nýja-
Testamentinu er ómengað frá
Kristi sjálfum og hvað sé tilbún-
ingur þeirra er seinna rituðu bók-
ina. Kristur sjálfur skrifaði ekki
staf af því.
Það er útbreidd skoðun, að Ása-
trú fylgi siðleysi, sukk og svall-
veizlur — er þetta rétt?
— Nei, þetta er alrangt. Vor
siður leggur einmitt áherzlu á
hófsemi sérstaklega hvað varðar
áfengisneyzlu. (Og enn kveður
Auðunn:)
Byrði betri
berr-at maðr brautu at
en sé mannvit mikit;
vegnest verra
vegr-a hann velli at
en sé ofdryggja öls.
Hvað um blót og fórnir?
— Blótin eru trúarathafnir en
ekki svallveizlur. Enn sem komið
er höfum við ekki slátrað dýrum
við trúarathafnir okkar, en ég sé
ekkert athugavert við það að
slátra dýri við slika athöfn frekar
en á sláturhúsi ef það er vanur
maður sem fremur verknaðinn.
Það má líka benda á, að þetta
tfðkast sums staðar í kristninni
enn þann dag í dag eins og t.d. i
Rúmeníu þar sem páskalambi er
fórnað um hverja páska.
Hefurðu orðið fyrir einhverri
trúarlegri reynslu eða fundið
fyrir trúarlegum styrk eftir að þú
gerðist ásatrúarmaður?