Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1974, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1974, Síða 8
íslenzk Nóra: GuSrún Ásmundsdóttir í hlutverki Nóru i Brúðuheimili Ibsens. sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu I fyrra Halldör Halldörsson NÓRA OG NÚ- TÍMINN Það er engu líkara en Brúðuheimili Henriks Ibsens sé komið í tízku. Bæði hérlendis og erlendis hefur skollið yfir umtalsverð Nóru-flóðbylgja. Þjóðleikhús- ið sýnir verkið í vetur, tvær kvikmyndir byggðar á því voru sýndar hér á dögunum og síðastliðinn vetur sáum við norska sjónvarpsgerð Brúðuheimilis. Guðrún Ásmundsdóttir, Jane Fonda, Blaire Bloom og Lise Fjeldstad hafa túlk- að fyrir okkur Nóru hver á sinn hátt. Auk þess má nefna, að Liv Ullmann og Ingrid Vardun hafa spreytt sig á þessu drauma- hlutverki nýlega. Þá er vert að geta þess, að Brúðuheimili verður sett upp á Broadway snemma á næsta ári og mun Liv Ullmann fara með hlutverk Nóru. HvaS veldur þessari skyndilegu endurupptöku Brúðu- heimilisins? Á hverju höfSar verkið einmitt til okkar nú? Vandamálin, sem fjallaS er um I leikritinu eru margþætt, en verkið ber óneitanlega vott um hugsunarhátt, sem sprottinn er upp úr því, sem kallað er siðgæðisþreyta. Það skyldi þó aldrei vera, að vinsældir Brúðuheimilis séu fyrirboði um upplausn I andlegum og siðferðilegum efnum, að aukin einstaklingshyggja eða e.t.v. eigingirni sé í uppsiglingu. MERKISAFMÆLI Nei. Við skulum halda okkur við einfaldari skýringar. Eftir því, sem næst verður komizt hefði Nóra nefnilega orðið 125 ára gömul ár. Við erum að halda upp á afmælil Ef nórurnar á tíma Ibsens hefðu lifað væru þær semsagt orðnar 125 ára gamlar. Og ef þær lifðu eru litlar Itkur til þess, að þær létu eitthvað að sér kveða, hundgamlar og haltar. Rauðsokkum nútlmans hefði að minnsta kosti orðið Iftíð lið að þeim. Svo er llka öruggt. að nórurnar og rauðsokkurnar hefðu átt bágt með að skilja hverjar aðrar. En ein Nóra lifir: Nóra Ibsens. Meira að segja hún á I erfiðleikum með rauðsokkurnar, sem virðast halda, að mann- réttindabarátta sé einkaeign kvenleggsins og snúist að mestu um uppvask. Nei, Ibsen var að skrifa um mannréttindi í víðum skilningi, frelsi einstaklingsins og aðalpersónan hefði þess vegna alveg eins getað verið karlmaður. Reyndar skrifaði Strindberg. sænskur samtímamaður Ibsens, leikrit um kúgað- an karlmann. Vandamálið um mannréttindi er slgilt. Þess vegna eru vandamál Nóru jafngild I dag og árið 1870, þegar Brúðu- heimili var samið. Barátta kvenna fyrir jafnrétti á sjálfsagt sinn þátt I þvl, að Nóra höfðar til samtimans i jafnrlkum mæli og raun ber vitni. En í verkinu er fjallað um mörg önnur vandamál, sem ekki mega gleymast í einblíningunni á kven- hetjuna Nóru. Hún var fyrst og fremst einstaklingur, sem háði sína eigin réttindabaráttu. Hún er skóladæmi um kúgaðan einstakling. En hún sat ekki i starfshópum með samtimarauð- sokkum til þess að finna lausn vandans. Hún leitaði svara hjá sjálfri sér. Niðurstaða þess þriggja daga eftirmála og raunar formála að lifi Nóru, sem okkur hefur gefizt kostur á að kynnast, er að minu mati sú, að sérhver einstaklingur, jafnt konur sem karíar eigi rétt á fullu sjálfstæði. Megináherzlan er lögð á það, að eiginkona lifi lifinu á eigin visu í jafnmiklum mæli og eigin- maðurinn og persónuleiki hennarfái að þróast sjálfstætt. Viðfangsefnið er liffræðilegar og siðferðilegar hugmyndir um örlög. Svarið, sem við fáum að leik loknum er i fyrsta lagi, að þrátt fyrir allar venjur og hömlur geti einstaklingurinn frelsazt og verið sjálfstæður; hvers konar löghyggju i andlegu lífi mannanna er hafnað. Og i öðru lagi er okkur sagt, að allur sannleikur sé huglægur og i raun hið sama og djúpstæð einstaklingshyggja. Náma vandamála En það býr meira I Brúðuheimili en aðeins þetta. Þar er fengizt við námu mannlegra og þjóðfélagslegra vandamála, vandamála, sem alla tíð hafa fylgt mannkyninu og niunu að líkindum gera. Að þessu leyti er Brúðuheimili sigilt verk. Það á fyllilega erindi við samtimann, og ef til vill enn meira erindi við okkar samtíma en samtima Ibsens. f almennum orðum má lýsa verkinu sem þjóðfélagsádeilu, ádeilu á stöðu konunnar eða kannski enn frekar ádeilu á stöðu mannsins i heiminum yfirleitt. Hinn siðferðilegi boðskapur verksins i árás á rótgrónar kreddur og samfélagssiðgæði sem eins konar yfirvald I víð- tækum skilningi og þá ekki siður árás á formgerð hjónabands, sem byggist á þessu samfélagssiðgæði. Endanleg afstaða Nóru til eiginmannsins Þorvalds Helmer gengur i berhögg við gildandi siðferðisvenjur og þessi afstaða á að sýna okkur fram á hin sönnu skilyrði hjónabandsins. f lífi okkar verðum við stöðugt fyrir nýrri reynslu. Allir breytast á einhvern hátt. Nóra Helmer er kona um þritugt, og einmitt þegar við kynnumst henni verða á henni hamskipti. Hún verður fyrir nýrri afdrifarikri reynslu og út á við virðist algjör bylting hafa átt sér stað i afstöðu hennar til lifsins. í hverju þessi nýja afstaða felst kynnumst við raunar ekki nema að litlu leyti. Staðreyndin, sem skiptir máli er, að hún skyldi taka afstöðu og kveðja mann og börn. Sjálfsvera f Skirni 1928 fjallarÁgúst H. Bjarnason um Henrik Ibsen og nokkur verka hans. Reyndar ræðir hann einungis um nokkur fyrstu verka hans, en eftirfarandi tilvitnun í prófessor Agúst lýsir vel viðleitni Ibsens sem leikritahöfundur: „Það er sjálfið eða sjálfsvera mannsins, sem er aðalvið- fangsefni hans, hvort hún er veik eða sterk, og hvort hún sigrar eða bíður ósigur i baráttunni við óhemjurnar í brjósti manns. Einkum er það ein hugsun, sem kemur einna greinileg- ast í Ijós i höfuðritum Ibsens, og hún er sú, að guð eða forsjónin eða „heimsviljinn" eða hvað maður á að kalla það hafi falið i hvers manns sál einhvers konar hugsjón, einhverja köilun, er honum beri að rækja og reyna að koma i fram- kvæmd með Iffi sínu og starfi." Þótt prófessor Ágúst minnist hvergi á Brúðuheimili i til- vitnaðri Skirnisgrein, er engu likara en hann hafi einmitt haft Brúðuheimili i huga. Þetta sýnir, að Ibsen hefur i flestum verkum sínum verið að skrifa tilbrigði við stef, stefið, sem Ágúst lýsir svo prýðilega. Rauður þráður í Brúðuheimili er spurningin um arfgengi skoðana í þjóðfélagi og hins vegar ómælanleg áhrif ytra umhverfis á einstaklingana. Og hvort tveggja er þetta sam- tvinnað. Skapgerð Nóru og raunar allt hátterni hennar er skýrt með beinni tilvfsun til föður hennar. Hann á að hafa verið veikgeðja maður, og allt, sem f augum Þorvalds telst til veikleika í fari Nóru, rekur hann til föður hennar. i áherzlu- skyni er persóna Nóru tvfskipt. Eina stundina er hún lævirki eiginmannsins, sakleysið uppmálað, en i raun Ijúgandi. Hina stundina er hún heilsteypt persóna, sem f ært hefur fórnir fyrir eiginmanninn án hans vitundar. Hvor persónan er sönn eða er hin sanna Nóra þessar tvær persónur eða er hin sanna Nóra hvorug þessarra persóna. Veit Nóra ekki af þvi, þegar hún er brúða Helmers og lýgur að honum um makarónukökurnar? Er hún sér óvitandi um ósamkvæmnina f háttalagi sfnu yfirleitt. Svarið er bæði játandi og neitandi um það af fortið Nóru, sem við kynnumst, en neitandi um þá þrjá daga, sem við höfum hana undir smásjá. Hamskipti Ég á við, að Nóra hafi smám saman verið að þroskast og sú breyting, sem varð á henni á þriðja degi hafi ekki verið stökkbreyting. Nóra varð ekki fyrir hugljómun, heldur áttu hamskipti hennar sér rætur i ihygli og stigvaxandi skapgerðar- styrk. Nóra beið þess að geta greitt upp skuld sina við Krogstad. Von hennar um „hið undursamlega", að hún gæti hafið nýtt Iff með Þorvaldi sem sjálfstæður einstaklingur brást. Von hennar um, að Þorvaldur væri heilsteyptur og sannur maður brást. Þessi uppgötvun var snögg. og þess vegna verka hamskipti Nóru einnig sem snögg. En þau áttu sér langan aðdraganda. Það, sem brást, var von, og hún gerði sér grein fyrir þvi, að vonir geta brugðist. Nóra var ekki brúða, heldur lék hún brúðu. Vissulega var Nóra ekki fullkomin. Henni tekst t.a.m. ekki fyllilega að finna samræmið milli innra og ytra lifs. Það er ein af ástæðunum fyrir þvi, að hún brýzt út úr brúðuheimili til þess að finna sig á nýjan hátt í þvi samfélagi, sem hún hefur ekki kynnzt áður. Hinn gamli vandi um samræmi manns og samfélags fær þannig á sig nýja mynd. Vanafesta og ihaldssemi er flestum nauðsynleg, til að þeir geti náð settu marki í lifinu, og ástæðan fyrir vanafestunni og íhaldsseminni er einmitt tiltekið, ákveðið markmið. Einblining á það þrengir sjóndeildarhringinn og hamlar persónulegum þroska. Einnig hamlar það auknum þroska flestra. að þeir gera ráð fyrir, að þeir geti öðlazt „fullan þroska", að braut þroskans sé endanleg. Nóra á hinn bóginn gerir sér grein fyrir þvf, að endurskoðun verður að eiga sér stað. Endurskoðun og endurmat á eigin lífsferli felur í sér þroska og sjálfstæði, ef þetta endurmat byggist á þvl, að viðkomandi liti i eiginn barm. Nóra spyr sjálfa sig, en Þorvaldur býst frekar við svarinu einhvers staðar I skrifborðsskúffunni. Leikfang Tilgangurinn með framansögðu er að sýna fram á, að vandamálið, sem Nóra glímir við, er siðferðilegt. Hún hefur lifað í blindri trú á þær venjurog kreddur sem faðir hennar og Þorvaldur hafa verið umkringdir af. Afstaða hennar gagnvart föðurnum og til að byrja með gagnvart Þorvaldi hefur verið afstaða barnsins og unglingsins. En hún fer smátt og smátt að gera sér grein fyrir þvi. að hún er leikfang í höndum Þorvalds á sama hátt og hún var leikfang föðurins. En blind trú Nóru eða sjálfsblekking er að vissu leyti viðtækari en hún virðist i upphafi. Sjálfsblekking hennar stafar fyrst og fremst af trú á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.