Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1974, Page 10
í nýjustu kvikmyndinni, sem gerð hefur verið af Brúðuheimili
Ibsens, fer kvikmyndaleikkonan Jane Fonda með hlutverk
Nóru.
milli nýs hugsunarháttar I tlmanum og hins vegar ættar eða
kerfis, sem ekki tekst að breyta eftir þessum hugsunarhætti.
Biðleikur
Kúgunin er þeim báðum sameiginleg. Eftir eins árs hjóna-
band tók Nóra ákvörðun upp á eigin spýtur. Hún tók ákvörðun
fyrir hönd Þorvalds, þar sem hann var þess ekki umkominn
vegna veikinda. Þessi ákvörðun hlýtur að hafa orðið til þess,
að Nóra, sem fram að þessu hrfði látið taka ákvarðanir fyrir
sig, hefur gert sér grein fyrir þvr, að hún hefur ekki verið borin
i heiminn til þess að vera leikfang annarra. Ákvörðunin hlýtur
að hafa orðið til þess, að hún garði sér grein fyrir möguleikum
sínum.
Dómgreind Nóru er óbrengluð og tilfinningalíf ósvikið. Þrátt
fyrir vott af ábyrgðarleysi F athöfnum hennar og orðum eru
hugsanir hennar og takmark hrein. Ábyrgðarleysið er ekkert
annað on biðleikur. Um Nóru má segja, að i grundvallaratrið-
um hafi hún verið heilsteypt, en þegar „krisan" kom olli það
henni gifurlegum sársauka og hún varð nánast ráðþrota. Hún
komst að bráðabirgðaniðurstöðu, sem fólst í þvi, að hún ákvað
að leita að svari um líf sitt sjálf. Því er óhætt að draga þá
ályktun, að hinir örlagariku dagar, sem við kynnumst, eru eins
konar inngangur að lifi, sem ef til vill var ekki hamingjurikara,
en fól örugglega meira sjálfstæði i sér fyrir Nóru.
Niðurstaðan er, að óhagganleg náttúrulögmál drottni ekki
yfir mannlegri tilvist, að fyrirbærum eins og sekt og miskunn
sé ekki þröngvað upp á okkur sem lið i einhverri vélrænu. Þvi
að ef svo væri, hefði einstaklingurinn ekkert að segja, hann
væri aðeins verkfæri og þolrænt fórnarlamb einhverrar lög-
hyggju.
„Mænuveikin"
Ævisaga heimilisvinarins Ranks er skörp lýsing á aldagömlu
siðferðilegu vandamáli. Af hverju eru hinir saklausu látnir
þjást? Læknirinn var að visu ekki algallalaus mannvera, en
hvað varðar „mænuveikina", sjúkdómstákn úrkynjunarinnar.
sem kostaði hann lífið, var hann alsaklaus. Sárasóttin ereins
konar tákn fyrir syndir ættarinnar, sem veldur tæringu i henni.
Vegna synda föðursins dregur Rank af þvi siðferðilega álykt-
un:
„ í hverri einustu fjölskyldu er hægt að finna eitthvað viðlíka
grimmdarlega gjaldheimtu". Hann á ekki einungis við, að við
erfum likamleg einkenni feðranna, heldur einnig hugsunar-
háttinn og önnur einkenni í þeim dúr. Nóra á að hafa erft
einhver slik einkenni frá föður sinum, en hún sýnir okkur fram
á, að hennar örlög eru umflýjanleg. Rank er hins vegar
dauðadæmdur.
Það, sem Nóra þarf til, er að sjá fáránleikann i kröfunni um
hlýðni við viðurkenndar skoðanir og þá um leið hvaða afleið-
ingar þena hefur i för með sér fyrir einstaklinginn. Hún kemst
að einhverri slikri niðurstöðu, og hún þarf hugrekki til, þvi að i
rauninni erhún að bjóða samfélaginu byrginn.
Andlegt smit
Snemma i leikritinu eru þau Helmershjónin að tala um
Krogstad og Þorvaldur lýsir að sjálfsögðu vanþóknun sinni á
honum. Þorvaldur segir m.a.: „Vegna þess að svona lygavefur
fæðir alltaf af sér smit og sýkir allt heimilislifið. Allt það, sem
börnin anda að sér á svona heimili, getur reynzt þeim dýrkeypt
síðar".
Nóra verður eðlilega skelkuð við þessi orð, þvi að hún hefur
sjálf visvitandi logið og drýgt sams konar glæp og Krogstad.
„Næstum allir, sem snemma verða vandræðamanneskjur,
hafa átt lygnar mæður", segir Þorvaldur og bætir við, að
náttúrulega gildi það sama um feður. „Ég finn bókstaflega til
likamlegrar vanlýðunar i návist svona fólks: „Hræsni Þorvalds
skýrist í lokin, þegar málinu er „bjargað" og hann vill halda
Nóru.
Þegar Þorvaldur talar um smit felst ekki annað i þvi en að
með umgangi við annað fólk tileinkum við okkur einkenni
þess að einhverju leyti. Hér er aðeins um að ræða afurðir
eftirtektar og hermigáfu okkar. Það er vitund okkar, sem er að
verki Hún nemur gott og illt úr umhverfinu og mótar þannig
persónuleika okkar. Maðurinn mótast af umhverfi sinu, en
hann getur ekki mótazt af innistöðum annarra, leyndarmáli
t.d.. sem enginn þekkir nema viðkomandi einn. Þannig gætu
börn Nóru ekki skaðazt af glæp móðurinnar nema þeim væri
sagt frá honum. EinUrigis sú staðreynd, að hún framdi glæp
getur ekki smitað börnin. En eins og Þorvaldur lýsir þessu fyrir
Nóru þarf ekki annað til en návist til að „siðferðilegt smit"
geti átt sér stað.
Svarið við fullyrðingum Þorvalds er að sjálfsögðu neitandi
þvi að ef hann hefði rétt fyrir sér, ætti hann að finna til sömu
iikamlegu vanliðunar i návist Nóru og hann finnur i návist
Krogstads. Þannig færir hann okkur rökin gegn eigin fullyrð-
ingum sjálfur.
Lævís lævirki
Vel að merkja. Nóra frelsast. Hún gerir kröfur til sjálfrar sin
og fullnægir þeim. Að þessu leyti er hún sigurvegari. Eigin-
maðurinn Þorvaldur leit alla tíð á hana sem lævirkja, en hún
reyndist lævísari en lævirki. En hvað með veslings Þorvald? Er
hann ekki á sama hátt fangi og hún var fangi? Hefði hann ekki
þurft að gera uppreisn gegn sjálfum sér og samfélagsskoðun-
um sínum á sama hátt og Nóra gerði uppreisn?
Hún er sigurvegarinn i lok leiksins, hann andlegur kryppl-
ingur. Að halda andlitinu i augum heimsins er mikilvægast af
öllu fyrir hann. Hræsnisfullir borgarar á borð við hann vaða
uppi á okkar timum. Það þarf ekki annað en að fara niður i
Austurstræti eða i „kaffi á Borginni". Þorvaldur okkar tima
eru að sjálfsögðu öðru visi en Helmer. Samfélagsskoðanirnar
eru aðrar og tónn tízkunnar breytist örar. Þess vegna er
kannski erfiðara að vera sjálfum sér samkvæmur Þorvaldurnú
til dags en á siðari hluta siðustu aldar.
Halldór Halldórsson.
Hanna, Ajax og eldhúsræstingin
Eða þegar Hanna kynntist því, að fljótandi
Ajax með Salmíak-Plús er fljótvirkast
og áhrifamest við að fjarlægja
jafnvel erfiðustu óhreinindi í eldhúsinu.
mao samtK-pius >
'(( Bf r*nt som //i
an hvid tornado /JÁ
mKiWAwm
Fljótandi Ajax
gerirhreinteins
og hvítur stormsveipur.
2. Enda byrjaði föstudagurinn ekki sérlega
skemmtilega. Heppilegt,
að ég hafði keypt Ajax.
3.Tvær brusahcttur 1 fotu
af vatni nægðu til að gera cldhúsið
skínandi hreint aftur.
1. Ég hafði átt við matargerð allan
fimmtudaginn og bjóst því við
óvenjuerfiðri föstudagsræstingu.
6. »Þetta gekk eins og í sögu með Ajax, og nú er eldhúsið mitt alltaf
ljómandi hreint. Og svo angar það auk þess af hreinleika.«
4. Það nægði að strjúka lauslega af
skáphurðum til þess að þær yrðu gljáandi á ný.
Ajax eyddi á stundinni allri fitu og blettum.
5.0g fastbrennd »uppúrsuðan« á eldavélinni
sem alltaf er erfið, lét undan fyrir ögn
NÖRA