Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Side 6
munni þeirra einhverja fræðslu um ævilok Hjálmars. Vel má það hafa verið. Traustar sagnir um lífið í beit- arhúsunum virðast hafa glatazt. Dótturdóttir Hjálmars, Ingibjörg Lárusdóttir á Blönduósi (dóttir Sigríðar Hjálmarsdóttur) kynnt- ist Rannveigu Sigurðardóttur og átti tal við hana um Brekkuhús og dvölina þar. „Margt sagði hún mér frá þeim dögum, sem varð henni minnisstætt," skrifar Ingi- björg í bók sinni Úr síðustu leit (1944). „Ég set það ekki hér, en það er meira en þess vert að segja það og fleira síðar.“ Mér er ekki kunnugt um að Ingibjörg færði þessar frásögur nokkru sinni í letur. Fastlega má ætla, að Guðrún Hjálmarsdóttir hafi verið helzti heimildarmaður Slmonar um ævi-. lok Hjálmars. Hún mátti gjörla þekkja hagi föður síns þessar vikur í beitarliúsunum, þvl hún gat um helgar og sjálfsagt oftar skroppið til hans ofan frá Vala- dal. Guðrún var sögð greind kona og ástæðulaust að halda að hún færi viljandi með rangt mál. Hana gat misminnl, en mér þykir lík- legt að veilur pær sem eru í frá- sögn Bólu-Hjálmarssögu af beitar- húsadvöl skáldsins megi rekja til Símonar og Brynjúlfs. Ekki er fullvitað, hvenær Hjálmar settist að I Brekkuhús- um, en það ætti í síðasta lagi að hafa verið stuttu eftir fardaga, þ.e. snemma í júnímánuði. Þegar hann hafði dvalizt í húsunum „ná- lægt vikutíma, veiktist hann og lá rúmfastur um hríð. Þó batnaði honum þá aftur og varð hress eftir hætti“ (Bólu-Hjálmarssaga). Svo frískur hefur öldungurinn orðið, að hann treystist til ferða- lags fram í Lýtingsstaðahrepp upp úr Jónsmessu: ,-,Um frá- færnaleytið fór Hjálmar að Sölva- nesi og kom á heimleiðinni að Mælifelli. Fylgdi Steinunn hon- um þá út fyrir tún — og mun hafa gefið honum svo um munaði. Sagðist hann þá kveðja hana í síðasta sinni.“ Heimkominn í beitarhúsin hugsaði skáldið sér enn til hreyf- ings, talaði um „að ferðast inn á Akureyri. Af því varð samt ekki“. 1 sláttarhyrjun fór Hjálmar hins vegar ofan að Víðimýri að heim- sækja Jón skáld. Annarra ferða Hjálmars úr beitarhúsunum er ó- getið í sögu hans, trúlega háfa þær ekki orðið fleiri. Brekkuhús voru ekki „vistleg mannahíbýli" ritar Brynjúlfur, en um leið að ýmislegt hafi létt Hjálmari lífið þar, nefnir til gott sambýli við Bjarna og Rannveigu og tíðar komur ferðamanna sem vildu „sjá öldunginn og gleðja hann“. Kofarnir stóðu, eins og áður er sagt, varla nema röskan húsaveg úr alfarabraut á Stóra- Vatnsskarði, svo menn þurftu ekki að fara langan útúrkrók til að ná fundi skáldsins. Við þetta hvort tveggja má bæta því, að Hjálmar átti vinsemd og greiðasemi að mæta á bæjum allt um kring, Víðimýri, Brekku, Fjalli, Valadal og ef til vill víðar, þótt nú sjáist það ekki í heimild- um. Að framan er getið vináttu þeirra Jóns á Víðimýri sem var maður „veitull og skemmtinn“ (Isl. æviskrár). Neðan frá Brekku var honum færð hressing á hverjum degi, því svo segir Gisli Benediktsson: „Um sumarið var ég látinn smala kvíaám föður míns upp um Brekkuhólana, og sendu þá foreldrar mínir með mér á hverjum morgni mjólkur- flösku til Hjálmars. Svo munu og ýmsir aðrir hafa fært honum eitt og annað smávegis." — Á Fjalli bjó Ingibjörg Guðmundsdóttir, ekkja Grims Jónssonar bónda þar. Um Ingibjörgu hafði Hjálmar kveðið: Gefst á Fjalli góðvild mörg, garpar um sem beiða, enn hefir guð og Ingibjörg opnað hús til greiða. Þegar Grímur maður hennar leið af þessum heimi 1859, varð Hjálmari að orði: Velgjörða mér vinir hverfa, við eg blikna, grátur vill í geði vakna, Gríms eg má frá Fjalli sakna. I ValadaL bjuggu Pétur Pálma- son og Jórunn Hannesdóttir. Bú þeirra var stórt, sum árin hið tí- undahæsta i hreppnum. „Þau voru hin mestu rausnarhjón,“ segir Bólu-Hjálmarssaga, „og mjög örlát við snauða menn. Við Hjálmar höfðu þau lengi haldið stakri tryggð og var það regla þeirra að gefa honum eins dags búnyt á hverju sumri. Var dag- smjörið að jafnaði um fjórðung" (þ.e. 10 pund) „og skyr eftir því.“ Hjálmar mun hafa þegið í Vala- dal ýmsan velgjörning annan en smjör og skyr, því hann tók þar oft gistingu á ferðum sínum. I Valadal orti hann síðla ævinnar kvæði sem kallast Gisting I góðs manns húsum (kvæðið kom seint í leitirnar, prentað í heildarútg. verka Hjálmars 1965, viðbæti III. bindis). Þar þakkar skáldið höfð- ingsskap húsráðendá og nokkurra efnabænda úr Húnavatnssýslu sem sátu að fagnaði með Pétri bónda. Um kveðskap Hjálmars þann tíma sem hann átti heima I Brekkuhúsum er saga hans sjálfri sér ósamkvæm. Þar segir að fyrir árslok 1874 kvæði hann „Nýárs- ósk til Steinunnar á Mælifelli og færði henni. Var það siðasta kvæði hans — fyrir utan lausavís- ur. Enda kallaði hann það örverpi sitt“. (Att er við kvæði sem nefn- ist I útgáfum Sigrún). Litlu aftar í sögunni nefna höfundar, að í beitarhúsunum hafi Hjálmar að sögn ort „3 andríka sálma“. Eitt- hvað þykir mér þetta tortryggi- legt, úr því ekki er nánar vitað hver þessi kvæði voru, nema um- mælin beri að skilja svo, að sálm- arnir þrír hafi eigi varðveitzt. Á hinn bóginn virðist kvæðið Raupsaldurinn, þar sem Hjálmar telur upp verklegar og andlegar íþróttir sínar, vera frá 1875, því það ártal stendur við fyrirsögn kvæðisins I annarri af tveimur uppskriftum þess með hendi skáldsins; varla mun það samt ort I Brekkuhúsum. í Bólu-Hjálmarssögu eru prentaðar tvær stökur, lagðar i munn skáldinu eftir að hann kom I Brekkuhús, svo og fyrsta vísan af þremur sem hann orti t,il Rann- veigar Sigurðardóttur. I sögunni segir að stökurnar báðar kvæði hann í heimsókn hjá Jóni á Víði- mýri; hefði Hjálmar fyrst kastað fram vísunni „Finnst mér orðið fremur þungt um ferðastjáið“, Jón svarað með annarri: „Hugs- arðu þér að hafa dvöl“, og Hjálmar þá bætt við: Ljós á skari líf mitt er, lagt á veikdóms pressu, fyrr en varir útslökkt er inni í greni þessu. Hér framar var hafnað sögn Bólu-Hjálmarssögu um fyrri vísurnar tvær, en sögn Gísla Benediktssonar höfð fyrir satt af ástæðum sem áður eru greindar. Einnig kemur hér til, að vísurnar þrjár standa í óeðlilegri röð eins og Bólu-Hjálmarssaga hefur þær. Siðasta vísan ber öll merki þess að vera kveðin í beitarhúsunum sjálfum en ekki á Víðimýri, þótt meira en líklegt sé, að þar færi Hjálmar með hana fyrir Jón Árnason. Það er skakkt í Bólu- Hjálmarssögu, að velfarnaðarvís- urnar þrjár til Rannveigar Sig- urðardóttur („Alls kyns njóttu unaðar" o.s. frv.) kvæði Hjálmar daginn sem hann andaðist. I út- gáfu sinni á kveðskap Hjálmars segir Jón Þorkelsson eftir Guðrúnu dóttur skáldsins, að vís- urnar hafi Hjálmar ort eftir beiðni kvöldið fyrir dauða sinn, „og er þetta hið síðasta, sem menn vita til að hann hafi ort“. 1 miklu vísnasafni Guðmundar Davíðssonar frá Hraunum í Fljót- um (Landsbókasafn) geymist staka sem sögð er þar „síðasta vísa Bólu-Hjálmars“. Fyrir þessu er borinn Páll Bergsson í Hrísey. Heimildarmaður hans var aftur Sigriður dóttir Hjálmars skálds. Sigríður átti heima í Húnavatns- sýslu og má hafa lært vísuna af Rannveigu Sigurðardóttur, eftir að hún fluttist aftur vestur þangað. Mér vitanlega hefur staka þessi hvergi verið prentuð. Hún hljóðar svo: Engin huggun á sér stað, eg er að guggna af plnum; svartir skuggar sækja að sálarglugga mínum. Hér sýnist Bólu-Hjálmar hafa um vélt. Hitt læt ég liggja milli hluta, hvor þeirra systra hafði réttara fyrir sér um hinztu brag- armál föður þeirra. Nú mun fulltalinn sá kveðskap- ur sem eignaður verður Bólu- Hjálmari eftir að hann fór frá Starrastöðum, því það stenzt ekki sem skilið verður af frásöguþætti Sverris Kristjánssonar, að í beitarhúsunurr frá Brekku yrði til vísa Hjálmars: „Þekki eg óminn þessa hljóms“. Hún er fyrri vísa af tveimur undir heit- inu: Sagt upp úr þögn. Þær vísur standa báðar í eiginhandarriti höfundar, og skrifaði hann á aft- asta blað þess: „Endað 24. jan. 1873“. Vísurnar geta þannig ekki verið yngri en frá því Hjálmar var í Grundargerði. Einnig er til- búningur í nefndum þætti að tengja erindi Hjálmars, „Mínir vinir fara fjöld,“ við dvöl hans í Brekkuhúsum. Sama er að segja um niðurlagserindintvö, „Mér er orðið stirt um stef“ o.s. frv., úr kvæði því sem skáldið festi á blað aftan við ættartölu Odds á Dag- verðareyri og sögubrot af honum. VII. 25. júlí 1875 bar upp á sunnu- dag. Hjálmar skáld reis af beði um morguninn og staulaðist út á kofahlaðið. Hann hafði verið „frískur eftir hætti fram á slátt- inn“ segir saga hans og afráðið að skreppa þennan dag sér til skemmtunar upp að Valadal. Guðrún dóttir hans vissi af þeim ásetningi og beið komu föður síns. Veður höfðu haldizt allgóð það sem af var mánuðinum, þar til upp úr tuttugasta að snöggkólnaði og gekk í „norðan bálviðri með þokubelgingi og regnhraglanda" eftir því sem Ólafur ritar, um- boðsmaður í Ási. Þar sem Iljálm- ar gamli stendur hrumur fyrir dyrum úti blæs um hann kulda- stormur norðan úr hafi, en veður er þó úrkomulaust. öldungurinn sneri aftur inn í rökkvuð beitarhúsin og steig aldrei framar undir himins tjald. Hann kom inn annar maður en Framhald á bls. 16 Starrastaðir I LýtinasstaðahreoDÍ. bar sem Hiálmar var meðal vina. unz hann nevddist til að flvtia I Brekkuhús.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.