Lesbók Morgunblaðsins - 12.10.1975, Side 15
Á ellefu hundrað ára afmæli byggðar í land-
inu, hélt þjóðin sjálfri sér dýra veizlu, sem hún
vitaskuld hafði engin ráð á, og gaf sjálfri sér
veglega afmælisgjöf: Veg og brýr yfir Skeiðarár-
sand. Naumast mun það hafa verið rætt í
alvöru, hvort framkvæmdin borgaði sig í bein-
hörðu klinki; veizla er veizla og gjafir eru utan
við lögmál hagfræðinnar.
En veizlur geta verið ótímabærar og óverj-
andi. Um þessar mundir er samgönguráðherr-
ann fyrir hönd þjóðarinnar að efna til veizlu við
Borgarfjörð. Þar er senn búið að dúka borðið;
Borgnesingar eiga að njóta, en þjóðin að
splæsa.
Sá tími kemur vonandi, að réttlætanlegt geti
talizt að brúa Borgarfjörð. En eins og sakir
standa er verið að fara af stað með ótlmabær-
asta mannvirki á íslandi og við skattborgarar
eigum að kyngja þvl steinþegjandi að misvitrir
pólitíkusar fari að eins og þeir eigi allt heila
gillið. Upphaflega mun hafa verið áætlað, að
þetta mannvirki kostaði 800 milljónir og það
var nokkuð örugglega vísvitandi eða af barna-
skap, of lágáætlað. Á þessu ári er varið 135
milljónum og 390 milljónum á næsta ári af
vega- og brúafé landsmanna. Viðurkennt er þó,
að þessi 800 milljón króna áætlun sé út I
bláinn; aðeins Framkvæmdastofnun rlkisins
virðist enn ganga út frá þeirri tölu.
En nú kemur það sem vert er allrar athygli og
sýnir okkur inn I spillingu stjórnmálaheimsins:
Ekki er hægt að fá uppgefið, hvað líklegt sé að
veizlan kosti. Tveir hátt settir verkfræðingar
hjá Vegagerðinni, viðurkenndu hreinskilnis-
lega, að þeim hefði verið skipað að þegja þunnu
hljóði og nefna enga upphæð, ef spurt yrði.
Kvaðst annar þeirra ekki þekkja dæmi þess, að
upp hefði komið hjá Vegagerðinni annað eins
pukursmál, sem ekki þyldi dagsljósið.
Vegamálastjóri staðfesti I samtali við undir-
ritaðan að 800 milljónirnar væru óraunhæf
viðmiðun. Hann nefndi einn til tvo milljarða;
nákvæmar vildi hann ekki spá. Hinsvegar hef
ég heyrt það eftir verkfróðum mönnum, að
þessi tveggja kílómetra langa brú yfir Borgar-
fjörð, muni samkvæmt núgildandi verðlagi ekki
kosta minna en tvo og hálfan milljarð og ef til
vill þrjá.
ÖTÍMABÆR
VEIZLA
Því er borið við til réttlætingar, að arðsemi
þessarar fjárfestingar sé mjög mikil og í annan
stað þurfi að endurnýja brýr á Andakílsá, Hvitá
og Ferjukotssýki. En góðir hálsar; þessar brýr
verður allar að endurnýja hvort eð er, svo
sparnaðurinn þar af verður næsta Iftill. Hvað
arðsemina snertir, þá tek ég ekki minnsta mark
á þéirri útkomu. Hlýtur ekki að vera auðvelt að
gefa sér einhverjar þær forsendur, sem gefa
alltof hagstæða og þar af leiðandi blekkjandi
útkomu. Trúlega yrði miklu meiri arðsemi af
því fé, sem færi I að gera nýjan Norðurlandsveg
um Dragháls og Hvítárslðu og stytta þarmeð
leiðina norður um nærri 30 km. Sú hugmynd
hefur þó alveg verið söltuð I bili vegna brúar-
innar, sem styttir norðurleiðina næstum ekki
neitt, eða 3—5 km.
Að vísu styttist leiðin vestur á land um
eitthvað nálægt 25 km, ef ég man rétt, en
hlutfallslega munar mestu fyrir Borgnesinga
sjálfa, og þyngstir á metunum eru ugglaust
hagsmunir einstaklinga og fyrirtækja þar á
staðnum, sem hagnast geta á umferðinni.
Vert er að gera sér grein fyrir þvi hvað hægt
væri að framkvæma á öðrum sviðum fyrir allt
það fé, sem brú yfir Borgarfjörð kostar. Til þess
að vera ekki ósanngjarn, ætla ég að fara bil
veggja og áætla að brúin kosti „aðeins" tvo og
hálfan milljarð, eða með öðrum orðum: Tvö
þúsund og fimm hundruð milljónir króna. Höf-
um við nokkursstaðar þörf fyrir slika smámuni?
Hvað um spítala fyrir langlegusjúklinga, sem
mér skilst að séu á sorglegum hrakhólum í allri
velferðinni.
Ef til vill er það utan við rammann að spá í
slikt. Þetta eru eyrnarmarkaða/ vegakrónur;
kannski yrði „arðsemin" ekki rýrari af því að
púkka dálítið uppá einn vegstubb. Samkvæmt
upplýsingum frá sérfræðingum Vegagerðarinn-
ar, er meðalverð á veginum austur á Selfoss
15—20 milljónir króna á kílómetra. Sé tekið
meðaltal af þvi, kostar frágenginn, steyptur
vegur 17,5 milljónir króna pr. kilómetra. Sam-
kvæmt því mætti leggja 150 km langan,
steyptan veg fyrir brúarandvirðið, eða allar
götur út úr Reykjavík og upp í Borgarfjörð, —
þriðjung leiðarinnar til Akureyrar.
Hvað er hér á ferðinni; hagsmunastreð, at-
kvæðaveiðar? Hverskonar ráðstöfun er þetta á
almannafé, hver skipar embættismönnum að
leyna upplýsingum; hverskonar mél er það,
sem þessi samgönguráðherra hefur i pokahorn-
inu?
Pólitíkusar halda víst ennþá, að böllin verði
að kontinúerast, en Borgarfjarðarveizlunni má
að skaðlausu fresta um óákveðinn tima og
skattkrónunum okkar er auðvelt að ráðstafa til
þarfari hluta. Spurningin er aðeins, hvort við
höfum manndóm til að taka í taumana — eða
hvort við þegjum bara eins og verkfræðingarnir
hjá Vegagerðinni.
Gísli Sigurðsson
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
- <*■ ■ . • .. • i ÍILlu TRtnn
mp —» F L u 4 S L i S eULL (5 u M
... y L ’A 4 R áUDlR Æ 5 1 ft FAHC1 M O
i TlUfl ÍKK.I Hn Tónu 0 4 U Nf P'HTl- A Ð l l J> S
F R O 5 T FM6U1 w A ft A u MÍui Hu»fí A T V ft T
HtUT' L Æ R 1 mjd K*ert- A R A R A r jKÍTf Hf>U A N A R
o' U 4 c. A ±> VoT*R K A Kr A R KtelK- uR 4 /
fúí.- LEao 4 T A R M A N R A P l R íeKK ru 0 NJ
VflRN IM6- V A R A N «,e iv f£7rT M F Sar R A T A R R íT«’
'E Wr fHKgi A U U R 6«»*« vt«« A k a ft S
P L A R LK.H 01 5K/T N A Nj SPIL L A' Ð IrtMr, FlUtL M A N
'JoH L e H b 1 R Á 4 S 1 Á* A
MflfH O J> J> íí$ R auf> A F T R A V ÍÖí A u
Hitrr lí. 5 R I> l ** HIKItL FTót-D 'o T 'A L M A ft r
VP K H Á r r Cntt> ID L a N D \ N Brte- PflM A T
ccfe 'W <Á <£&> flFTfl- regh luL ■pl UK - RcA>H- vflí. EfFiNPU
ÍÍÉI % í % flF- ko- Æ- 1 STÓ- MrtPUR Ku<-p|
S ? 1 L CV/?&/M Vf/o/lR- FÆR 1
HftTÍi) \Z6RaR. SVCRlFl
i J/ÝRlN KVEÍ>I
rvvnKins SÆTtI |OU(X STÉTt ICflRL' F UCkL ýfi^' (fJU * UKT
yC«> KVEN- DýK XÐRi
EWPWÍ. tíflTT- lÁRu- Ffl R. g/.ÓHUt MfltífJS- NAFtíl
P ÆG.TI? GÆLU- HftFW
if íflURG- H-DI Ki/ÆÐIS RSKufi MXL- Oýfll
srXv- /VR,- Dý'R KoSTUíZ U HCX- \noif> gLDiT- /e©i© + inpe/w- ■T01- 1 0*
#ft KEíJMI VMDI fuus
(flflHHS ÍTrtR©' l\)ERS- REVKl Lf* Ka£^- S> yR 'oDRutc- VCiHN
PÆHIf) ntannj- NA PN i u u - Ox-pRl fcSJc-r /JftFtí tlKTfh maí?k
< > >
w T\>em
. /frt ift! ■
l^v Ctft' kom*} UfJH 1 □