Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1976, Page 13
brúðguminn kemur. Eg áminni
yður í Vors Herra og Frelsara
Jesú Christi nafni að lesa með
djúpustu eftirtekt og bæn til
Herrans þær heilögu skriftir,
bæði það gamla og nýja testa-
ment, sem klárlega vill segja ykk-
ur í hverri stöðu og tilstandi þið
eruð nú fyrir nærverandi. Pastor
Páll segir: Hver sem prédikar
annað Evangelium en við höfum
prédikað og þó það komi engill af
himni, hann veri bölvaður. — O,
mínir heitt elskuðu landar, verið
ekki þvermóðugir, ef nokkur vildi
verða sendur til yðar, ljáið eyrun
þeirra raustu, kastið þeim ekki út,
því svo sannarlega sem eg lifi og
sit hér með pennann í minni
hönd, er þetta verk af guði, eg vil
ekki ljúga að yður, þetta er ein-
mitt sú tið, sem talast um hjá
Matteum í 24. cap., að Evangelíið
skuli prédikast fyrir öllum þjóð-
um og þá vilji endirinn koma. Eg
veit að mafgir af yður, mínir
kæru, sérdeilis gamalt fólk, hafa
lesið það gamla og nýja testa-
menti i gegnum, máske marga
ganga, i það minnsta einn stóran
deil, en ekki skilið 1/20 part þar
af. Hver er orsökin? Eg vil segja
yður mína meiningu. Margir
þenkja, að eg trúi, prestarnir
mégi vita hvernig það eður það á
að skiljast, því þeir eru lærðir og
mega vita og skilja meira en við,
og við megum ekki skyggnast inn
í guðs leyndardóma. En eg vil
segja yður, að ekkert af því, sem
stendur skrifað í bibliunni, eru
leyndardómar, en skrifað við guðs
anda og verður þess vegna að
skiljast við þann sama anda. Mín-
ir elskulegu, sem þessi fáu orð
kunnið að heyra, takið þau sem eg
meina þau, því Guð veit eg meina
það af minu hreinu hjarta hvað eg
skrifa yður, og eg vil ekki skrifa
nema hvað eg veit með vissu er
sannleikur.
Ef þú heyrir nokkra, sem hafi
löngun að fá bréf frá mér, þá bið
eg þig segja þeim að skrifa mér,
eg vil borga þeim það í sama. En
eg er snart þreyttur að skrifa min-
um kunningjum og fá aldrei
bréf aftur. Það eru öll þau bréf
sem eg hef fengið, það sem eg
fékk frá þér og Magnúsi Eyjólfs-
syni siðan eg kom hér á staðinn,
fyrir fimm eða sex, sem eg hef
skrifað.
Vertu nú svo góður og skrifaðu
mér langt og fréttarikt bréf um
hvað þið hafið starfað á alþingi og
hvort þið hafið antekið þau
dönsku grundvallarlög og hvort
jarðyrkjumönnunum hefur tekizt
að reisa nokkurs slags sæði, sem
hér var áður reist, með sinni jarð-
dírkningu, og yfir höfuð hvernig
okkar kæra föðurlands ástand er.
Minn kæri Páll, gleymdu nú
ekki að skrifa mér eða upphvetja
einhvern af minum fyrrverandi
kunningjum þar til. Heilsaðu öll-
um frá mér, sem kveðju minni
vilja taka. Að endingu fel eg yður
alla á þess almáttuga vald, minir
kæru, óskandi Guðsfrið og bless-
un yfir yður.
Yðar með undirgefni
Loftur Jónsson
l'lKi fandi. Il.f. Ariakur. Ri ikjaifk
Framk\.>lj.: llaraldur Swinsson
Kilsljurar: Mallhlas Johannrssi-n
S|> rmir (iunnarsson
Kilslj.fllr.: (ifsli SÍKurflsson
AukI>sin«ar: Árni (iarðar Krislinsson
Kilsljórn: Aðalslræli (i. Simi 1(1100
Dr. Vilhjálmur Stefánsson landkönnuður.
Víð-
frœgastur
islenzkra
manna i
Vestu r-
heimi
Nafn Vilhjálms Stefánsson-
ar landkönnuðar ber vafalaust
hæst, þegar minnst er manna f
Vesturheimi sem af isienzku
bergi eru brotnir. Hann öðlað-
ist alþjóða frægð og viður-
kenningu fyrir vfsinda-
störf sín enda var hann
brautryðjandi á mörgum
þeim sviðum er snerta lif
og náttúrufar á heimskauta
svæðinu norður af Kanads.
Afstaða hans til þess fólks,
sem hann heimsótti á norð-
urhjaranum varð m.a. til
þess að brotið var blaði f sögu
landkönnuða og gömlum for-
dómum um að frumstæðar
þjóðir (eða lftt tæknivæddar)
væru að einhverju leyti óæðri
hinum, sem lengra eru komn-
ar á tæknibrautinni, var
hnekkt. Margir landkönnuðir
höfðu áður farið halloka fyrir
vetrarhörkum norðursins, en
Vilhjálmur Stefánsson sann-
aði það með eigin fordæmi, að
eiga mátti bæði þægilegt og
hamingjurfkt lff á vfðáttum
heimskautalandanna með þvf
að seinja sig að siðum og hátt-
um innfæddra.
Foreldrar Vilhjálms, Jó-
hann Stefánsson og Ingibjörg
Jóhannesdóttir voru norðlenzk
að ætt. Faðir hans var frá
Tungu á Svalbarðsströnd en
móðir hans frá Hofstaðaseli f
Skagafirði. Þau fluttust fráís-
landi til Manitoba árið 1876 og
þar fæddist Vilhjálmur árið
1879. Þegar hann var á öðru
ári, settust þau að f Norður-
Dakota og gerðust bandarfskir
rfkisborgarar, en heimilið bar
alltaf íslenzkt svipmót. Vil-
hjálmur ólst upp við lestur ts-
lendingasagna og sjálfur segir
hann að faðir hans hafi ekkert
lesið nema á fslenzku væri.
Vilhjálmur Stefánsson var
alla tfð hreykinn af hinum fs-
lenzka uppruna sfnum. Fyrst
kom hann til tslands árið 1904
og aftur 1905, þá f þeim til-
gangi að gera rannsóknir á
fornleifum hérlendis á vegum
Harwardháskólans. Hann lauk
M.A. prófi frá Ilarward 1923
og var sæmdur heiðursdoktors-
nafnbót við Háskóla tslands
árið 1930. Áður er ævi hans
var öll hafði hann verið gerður
heiðursdoktor við sex erlenda
háskóla- og hlaut auk þess
margskonar viðurkenningu
frá fjölda vfsindastofnana
bæði vestan hafs og austan.
Alls fór hann þrjá rannsókn-
arleiðangra til heimskauta-
svæðanna norður af Kanada,
þann fyrsta 1906—1907, annan
leiðangur fór hann 1910 og
þann þriðja 1913—1918.
Rannsóknir hans í þessum
ferðalögum beindust f senn að
landafræði, jarðfræði, þjóð-
háttafræði, fornleifafræði,
dýrafræði og grasafræði og
árangurinn var víðfeðmur. 1
bókum sfnum og með fyrir-
lestrum víðsvegar um heini
gerði hann sér far um að sann-
færa menn um auðævi þessara
landsvæða frá náttúrunnar
hendi og hversu rfku mannlffi
þar er lifað. Vestan hafs var
hann löngum talinn færasti
sérfræðingur um allt er laut
að málefnum heimskautaland-
anna og leituðu bæði banda-
rfsk og kanadfsk stjórnvöld til
hans um margskonar ráð varð-
andi þessi svæði.
Eftir að rannsóknarferðum
lauk, snéri Vilhjálmur sér að
ritstörfum. Alls voru gefnar út
eftir hann 26 bækur og er þá
ótalinn fjöldi blaðagreina og
fyrirlestra. Tómstundum varði
hann til að koma upp hinu
ágætasta bókasafni um allt til-
tækt efni sem að heimskauta-
svæðunum lýtur. Bókasafnið
telur nú hátt f 30 þúsund ein-
tök en það er í umsjá Dart-
mouth-skólans í Bandarfkjun-
um.
Vilhjálmur Stefánsson gat
sér vissuiega mikið frægðar-
orð f heimi vfsindanna, en
ekki er minning hans sfður
hjartfólgin almenningi á ís-
landi vegna töfrandi persónu-
leika hans og djúpstæðs skiln-
ings á manngildi hvar sem það
er að finna f heiminum.
Vilhjálmur Stefánsson lézt
26. ágúst 1962, 83 ára að aldri.