Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Side 3
þeim, enda talið að isöld væri um þessar mundir á Marz. Á meðan hringsólað var um jarð- stjörnuna, var reynt að ná sambandi við ibúa hennar gegnum útvarp skipsins, á ýmsum bylgjulengdum. Var það lengi vel árangurslaust, en loks kom svará ókunnu, mjög hljóm- fögru tungumáli. Röddin, sem talaði, var mild og vingjarnleg, og þótti geimförunum sem hún byði þá vel- komna, þótt ekki skildu þeirorðin. Var nú ákveðið að lenda skammt frá stærstu hvelfingunni i gróðrarbelt- inu, og heppnaðist það vel. Kom skipið niður i lítið, grasi gróið rjóður, en lágvaxinn skógur varallt um kring. Nákvæm rannsókn á andrúmsloftinu sýndi að það var gott mönnum, og ekki fundust i þvi neinar ókunnar sóttkveikjur. En allir geimfararnir, svo og börnin, eftir að þau fundust, höfðu fengið bólusetningu með nýfundnu undralyfi, er talið var útiloka smitun allra þekktra sjúkdóma. Voru nú opnaðar dyr geimfarsins, en þær voru tíu metrum fyrir ofan jörð, og söfnuðust geimfararnir þang- að til að virða fyrir sér hið nýja og óþekkta umhverfi. Loftið var svalt og hressandi og í því mikil gróðrarangan, en hitinn líkt og á íslenskum júlídegi, þegar best lætur. Skógurinn var þéttur og lauf trjánna stór og þykk sem leður, en öll voru trén þakin litlum blómum, gul- um að lit, og stórum ávöxtum. Grasið varfölgrænt, með digrum punti, sem bar marglitt blómskrúð. í útjaðri rjóðursins varfremurlág en stór hvelfing, Ijósrauð á litinn og sem gerð af gljáandi málmi. Leið ekki á löngu áður en dyr opnuðust á henni og komu þar út þrjár mannverur, tveir karlar og ein kona. Þau voru naumlega í meðallagi há, öll klædd litfögrum kyrtlum, er náðu þeim niður á hné, og berfætt í ilskóm. Fólk þetta gekk í átt til skipsins, en ■ geimfararnir hleyptu niður stiga og fóru fjórir þeirra til móts við það. Árni og Gerða höfðu látið lítið á sér bera, en fylgdust vel með öllu. Faðir þeirra var einn af þeim er mættu Marsbúum fyrstir. Hann varekki há- vaxinn maður, en ekki náði hæzti Marzbúinn honum nema rétt í öxl. Annars var þetta fólk ekki sjáanlega mjög frábrugðið Jarðarmönnum, það var mjóslegið nokkuð, en sam- svaraði sér vel, með hjartalöguð and- lit, stór, Ijósgul augu, og eirrautt hár, er féll í snúnum lokkum niður á axlir karlanna, en náði konunni í mittis- stað. Það hafði fíngert og fagurmótað andlitslag, beint nef, litinn munn og ávala höku. Var það mjög svipað hvert öðru, en þó bar konan af, að þokka og fegurð. Þegar hóparnir mættust, tóku Jarð- armenn að baða út öllum öngum og reyndu á þann hátt að gera sig skilj- anlega. En gert hafði verið handa þeim merkjamál, á vísindalegum grundvelli, og átti það að duga til að ná einskonar talsambandi við állar skyni gæddar verur. Svo virtist og sem Marsbúar skildu gestina, því að þeir kinkuðu kollum í óða önn og gerðu marskonar tákn á móti. Skildu Jarðarmenn þau svo, að þeim væri öllum boðið til veizlu í hinni miklu hvelfingu, sem þar var skammt frá. Réðu þeir um þetta ráðum sínum, og varð það úr að fjórir þeirra tóku heimboðinu, en hinir urðu eftir í geimfarinu, ásamt börnunum. Var nú biðið afturkomu þeirra þann dag allan, en ekkert bólaði á þeim; hvelfingin lokuð og enginn sást á ferli utan dyra. Loks hneig sólin til viðar og myrkur skall á. Tók þá fljótt að kólna svo mjög, að loka varð geimfar- inu. En verðir voru við gluggana, sem að hvelfingunni snéru, allt kvöldið og nóttina. Þeir sáu tvö litil tungl líða allhratt um himinn, en litla birtu báru þau. Ekki komu geimfararnir til baka daginn eftir, né heldur þann næsta, og afréðu þá þeir, sem eftir voru í skipinu, að reyna að ná sambandi við þá eða Marsbúa. Gengu þeirsiðan allirtil hvelfingarinnar, og voru þeir ekki fyrr þangað komnir en dyrnar opnuðust. Sáu börnin að faðir þeirra kom út, ásamt tveimur Marsbúum; átti hann alllangt samtal viðfélaga sína og endaði það með því, að þeir hurfu allir inn um dyrnar, sem þeg- ar lokuðust á hæla þeim. Árni og Gerða voru nú ein eftir í skipinu. Höfðu þau jafnan gætt þess að láta Marsbúa ekki sjá sig, en gluggar geimfarsins voru þannig gerðir, að vel sást út um þá, en ekki inn. Gátu þau því fylgst með öllu, sem gerðist fyrir utan, án þess að á bæri. Leið nú dagurinn til kvölds, svo og nóttin og næsti dagur en ekki komu geimfararnir aftur og ekkert heyrðist frá þeim. Þótti þá börnunum lang- samt orðið að biða, sem von var, og ákváðu að fara sjálf á stjá, áður en birti morguninn eftir, og reyna að komast að því, hvað tefði geimfarana svona lengi. Þau bjuggust hlýjum fötum siðla nætur, fóru út i skóginn, földu sig þar í runnagróðri og biðu morgunns. Þá var býsna kalt, svo að nálgast myndi frostmark, en ekki létu þau það á sig fá. Og þegar sólin kom upp, varð strax vel hlýtt i skógin- um. Árni og Gerða skriðu nú út úrfylgsni sínu, en höfðu hægt um sig og tóku vel eftir öllu. Skógurinn var þéttur og trén þakin ávöxtum; voru þeir gulir að lit og mjög líkir stórum melónum. Gerða skrældi einn þeirra og smakk- aði á honum, var hann einna likastur banana á bragðið og mjög Ijúffengur. Gaf hún Árna með sér og borðuðu þau bæði fylli sina af þessu góðmeti, án þess að þeim yrði meint af. Síðan læddust þau í átt til rauðu hvelfingarinnar. En hvergi gátu þau séð neinar dyr eða glugga á henni, og ekkert lifandi bærðist þar og algjör þögn rikti, nema hvað stöku sinnum heyrðist tist i litlum fugli, er flögraði milli trjánna og virtist mjög spakur. Er þau höfðu verið þarna á gægjum allan morguninn til hádegis, héldu þau aftur inn í skóginn og gengu alllengi, þar til að þau komu að annarri hvelfingu, miklu minni, og var sú Ijósblá. En á henni voru opnar dyr og utan þeirra stóðu tvö börn, piltur og stúlka. Voru þau bæði smá- vaxin, svo sem tiu ára krakkar á jörðinni, en að öðru leyti lik þeim Marsbúum er Árni og Gerða höfðu áðurséð. Grönn voru þau og fíngerð, fagurvaxin, með hjartalöguð andlit. Þau horfðu í átt þangað sem jarðar- börnin leyndust í skógarjaðrinum, en hvelfingin bláa var í grasi grónu rjóðri. Litlu síðar komu þau svo beina leið til þeirra, eins og þau vissu af þeim. Voru þau brosleit og vingjarn- leg á svip, svo að Árni og Gerða áræddu að ganga til móts við þau. Námu hvorutveggja staðar, þegar ekki voru nema tveir eða þrír metrar á milli þeirra. Marsbörnin heilsuðu með uppréttum höndum og sögðu nær samtímis: ,,lla anó!" Þau voru ber- sýnilega mjög forvitin, en góðleiki og blíða skein úrstórum, Ijósgulum aug- um þeirra. „Komið þið bæði blessuð og sæl!" svöruðu Árni og Gerða. Marsdrengurinn benti þá á brjóst sér og mælti „Aríon," en síðan á telp- una og bætti við: llleia." Jarðarbörn- unum skildist strax að þetta væru nöfn þeirra, og sögðu þau einnig nöfn sín á sama hátt. Hófu börnin nú samræður á sln hvoru tungumáli, en notuðu jafn- framt tákn og bendingar. Gekk þeim furðu vel að skilja hvert annað, og ekki leið á löngu áður en Marsþörnin fóru að hafa eftir hinum íslenzk orð og jafnvel stuttar setningar. Er þau höfðu ræðst við I rúma klukkustund, skildu hvor hin nokkurn veginn, og þótti Árna og Gerðu mikilli furðu gegna frábært flugnæmi og skilning- ur Marsbarnanna. Allt í einu benti Aríon til himins og mælti: „Koma þar?" Og Árni kinkaði kolli. „Já, koma með geimfari frá jörð." „Geimfar?" endurtók Aríon, en virt- ist skilja það þegar og hélt áfram: „Við lika geimfar — aðra jörð." Héldu þau Árni og Gerða nú enn áfram kennslunni lengi dags, og þar kom að börnin gátu rætt saman því- nær viðstöðulaust. Sagði þá Arion brosandi: „Magi minn tómur — ykk- ar lika — þið borða hjá okkur!" Árni og Gerða gátu ekki neitað þvi, að þau voru orðin svöng, og þótt þeim væri um og ó, afréðu þau að þiggja heimboð Marsbarnanna. En fyrst reyndu þau að leita frétta hjá þeim af félögum sinum úr geimskip- inu. Það gekk dálítið erfiðlega í fyrstu, en loks brosti Arion og sagði: „Þeir líka fylla maga sinn — gott mat, gott drekka — við láta ykkur sjá." Því næst tóku þau í hendur Jarðar- barnanna og leiddu þau gegnum skóginn til stóru, rauðu hvelfingarinn- ar. Þar gengu þau niður mjóan, hringlaga stiga, sem Árni og Gerða höfðu ekki séð um morguninn. Komu þau brátt að litlum dyrum, er opnuð- ust sjálfkrafa, er þau komu að þeim. Jarðarbörnin hikuðu litið eitt og litu tivort á annað: Skildi þetta vera óhætt, var ekki verið að leiða þau i einhverja gildru? En Arion hristi höf- uðið, eins og hann skildi ótta þeirra, og sagði: „Ekki vont ykkur — bara gott — sjá allt í lagi." Þau gengu þá inn í bjartann, en heldur þröngan gang, er virtist fóðr- aður með gljáandi, litlausu plasti, og komu brátt að öðrum dyrum, gegn- sæum, og sást þar inn i stórann og mjög fagrann sal. Sátu geimfararnir það í hægindastólum, kringum stórt borð, ásamt álíka mörgum Mars- búum, og hafði verið sett fyrir þá ávextir i gullnum skálum og einhver drykkjarföng. Virtust þeir allir glaðir og ánægðir, en eitthvað sýdist Árna samt athugavert við útlit föður sins. Hann var sæll á svip, en því likast sem hann væri i hálfgerðri leiðslu. Þótti drengnum það skrítið, því að hann vissi að faðir hans bragðaði aldrei áfenga drykki. Samræður virt- ust fjörugar við borðið og notuðu Jarðarbúar ekki táknmál það, er þeir höfðu lært, en þó var svo að sjá sem hvorir skildu áðra. Árni leit á Aríon og spurði: „Við tala við þá?" En Marsdrengurinn hristi höfuðið brosandi. „Ekki núna — þeir læra mál — tala — við góðir alla — gera gott — gefa fallegt. Þeir koma geimfar búnir — kannski morgun." Ekki voru Jarðarbörnin allskostar ánægð með þetta svar, en fylgdu þó Aríon og llleiu aftur út í sólskinið og inn i skóginn. Þeim var mjög létt um gang og allar hreyfingar á Mars, því að þar vógu þau aðeins lítinn hluta af þyngd sinni á jörðinni. Þó var það enganveg- inn til óþæginda, eins og á tunglinu, en þangað höfðu þau farið alloft með föður sinum. Og er þau komu inn í skóginn að þessu sinni fóru þau að reyna hve hátt þau gætu hoppað, og það sýndi sig að þau komust bæði jafnhátt toppum trjánna, sem voru flest um tíu metrará hæð. Marsbörn- in störðu á þetta með undrun og aðdáun, en þau gátu aðeins hoppað liðlega hæð sína — en það var raunar meira en Árni og Gerða gátu á jörðinni. Léku þau sér nú að þessu þar til Aríon sagði hlæjandi, að hann væri orðinn svangurog magi hans heimt- aði mat. Fóru þau þá öll saman til bláu hvelfingarinnar og inn t hana, á sama hátt og þá rauðu. Komu þau inn í stóra og skrautlega stofu, og var þarfyrirung og fögurkona. Mars- börnin ræddu við hana stutta stund á sinu eigin máli, en þvi næst heilsaði hún Árna og Gerðu með uppréttum höndum og blíðu brosi. Siðan fór hún inn i annað herbergi, en kom aftur að vörmu spori með stórt, logagylt fat, hlaðið hinum gulu ávöxtum, og fjóra, gulina bikara fulla af Ijósrauðum drykk. Lagði hún þetta á allstórt borð í stofunni og færði að þvi fjóra stóla. Arion og llleia tóku þegar til snæð- ings, og Jarðarbörnin fylgdu fordæmi þeirra. Þau vissu að þeim var óhætt að borða ávextina, en hikuðu við að snerta drykkinn, þótt þau væru orðin þyrst. Arion tók eftir þessu og sagði brosandi: „Gott — vel — alveg ágætt!" Drakk hann þvi næst drjúgan teyg úr glasi sinu. „Við hættum á það," hvíslaði Árni að systur sinni, og var drukku þau bæði. Var drykkurinn einna likastur jarðarberjasafa og fjarska bragðgóð- ur. Ekki var hann áfengur, en þó svo hressandi, að er þau höfðu lokið úr

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.