Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Side 6

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Side 6
_ ELDFJALL A BORÐ VIÐ HEKLU ó Sundunum og Reykjavíkursvœðinu Gísli Sigurðsson ræðir við INGVAR BIRGI FRIÐLEIFSSON jarð- fræðing unl Kjalarneseldstöðina, sem var virk fyrir um 21/2 milljón ára og hvernig hægt er að finna heitt vatn með því að rekja sig eftir móbergslögunum. INGVAR BIRGIR FRIÐLEIFSSON er fæddur í HafnarfirSi 1946. Hann nam við Flensborg og Menntaskólann í Reykja vik og tók stúdentspróf þaðan 1966. Að þvi búnu sneri hann sér að jarðfræðinámi og tók B.Sc-próf í jarðfræði frá Háskólanum í St. Andrews í Skotlandi 1970. Hann stund aði rannsóknir og framhaldsnám í Oxford og varði doktors- ritgerð um jarðfræði Esjunnar 1973. Eftir að Ingvar kom heim frá námi hefur hann starfað hjá jarðhitadeild Orku- stofnunar og viðfangsefni hans hefur verið jarðhitaleit á höfuðborgarsvæðinu. Kona Ingvars er Þórdis Árnadóttir blaðamaður, sem um tíma starfaði við Morgunblaðið. 1 Esjunni skiptast á hraunlög og móbergslög. Þegar grannt er skoðað, má sjá, að þessum lögum hallar til austurs; þaf hafa jarð- lögin sigið niður undan þungan- um, vegna þess að eldstöðvarnar fluttust til austurs með tfmanum. Eldfjallið, sem eitt sinn var á Sundunum og Reykjavíkursvæð- inu, hefur komið f beinu fram- haldi af Esjunni, en verið eitt- hvað hærra. Þegar móbergslög Esjunnar eru framlengd til austurs og horað niður f þau á hæfilegu dýpi, eru miklar líkur á heitu vatni. Ingvar Birgir Friðleifsson. Mannlíf í iðnaðarþjóð- félögum nútímans rís á tækni og tæknin er háð orku í einhverri mynd. Fátt er eins brennandi nú um stundir og framvinda orkumála. Karnorkan sýn- ist skapa eins mörg vanda- mál og hún leysir; auk þess er úraníum af skornum skammti í heiminum. Olíu- leitin er gullæði vorra tíma; samt vofir það yfir, að síðasta olíudropanum verði upp ausið. ísland er að vísu ekki meðal þeirra landa, sem dæla upp hinu svarta gulli. En svo er hnattstöðu landsins fyrir að þakka, að við búum að orku, sem ekki gengur til þurrðar; að minnsta kosti ekki á meðan lægðirnar halda hefðbundnum far- vegi sínum norðaustur eftir Atlandshafinu. Virkjanlegt vatnsafl liggur nokkurnvegin ljóst fyrir. Hitt er aftur á móti óráðin gáta, hversu miklu magni af heitu vatni má ná úr iðrum jarðar framyfir það sem nú er kunnugt um. Eftir oliukreppuna svonefndu varð fyrst í alvöru ljóst, hvert verð- mæti felst í jarðhita og það hafa þeir fundið bezt á sjálfum sér, sem nýlega hafa fengið hitaveitu eftir að hafa stunið undir olíu- reikningunum uppá síð- kastið. Ekki er að sjá, að jarð- hiti hafi fyrr meir verið talinn til meiri háttar hlunninda; að minnsta kosti ekki á móti góðum útslægjum, reka eða lax- veiði. Húsmæður báru þvott sinn á hveri og bök- uðu brauð við hitann; það var allt og sumt. Nýting jarðhitans hefst að ein- hverju marki á stríðsárun- um með Hitaveitu Reykja- víkur og gróðurhúsa- búskapnum. Samt var svo til eingöngu notazt við það vatn, sem streymdi sjálf- krafa uppá yfirborðið. Það er ekki fyrr en á sfðustu 20 árunum, að tæknin og vísindin koma til skjalanna og farið er markvisst að leita að jarð- hita og bora eftir^heitu vatni. Nú höfum við eign- Ef litið er á dreifingu upptaka- staða jarðskjálfta á jörðinni kem- ur i ljós, að jarðskjálftaupptökin raða sér mjög greinilega á ákveönar lfnur á hnettinum. Á þessum Ifnum er jarðskorpan mjög sprungin og á hreyfingu, en á milli línanna eru eins og stórir flekar eða plötur, þar sem engra hreyfinga verður vart. Þannig skipta jarðskjáiftalínurnar yfir- borði jarðar í nokkrar mismun- andi stórar plötur. Þessi svæði eru nefnd plötur vegna þess að meirihluti jarðvísindamanna tel- ur, að yzta skorpa jarðar fljóti ofan á möttlinum, sem er dýpra, og það má teljast sannað, að plöt- urnar hreyfast hver gagnvart annarri. Þar sem tvær plötur mætast eru nefnd plötumót. ast sérfræðinga á þessu sviði og einn þeirra er Ingvar Birgir Friðleifsson, jarðfræðingur, sem starfar hjá jarðhitadeild Orku- stofnunar. Ingvar skrifaði doktorsritgerð um jarð- fræði Esjunnar, en segja má með gildum rökum að jarðlögin þar gefi hald- góða vísbendingu um heitt vatn til handa höfuðborg- arsvæðinu eins og fram kemur síðar. En hvernig má það vera, að lesið verði úr berglögum Esjunnar, hvar fýsilegt sé að bora

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.