Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1976, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1976, Blaðsíða 11
um og héldu á brautir æskunnar til að fagna góðum gesti og hlýða á mál hans í hópi unga fólksins. Fólkinu sóttist ferðin fremur seint. Lítið var um upphleypta vegi og engar ár voru brúaðar í sveitinni. Niðurgrafnar götur voru fullar af snjó. En það sem seinkaði ferðinni mest voru hin víðáttumiklu og glerhálu svell, sem voru að leggja undir sig, ekki einast vatnsföll mýrar og flóa, heldur einnig mestallt láglendi. Það var ógerningur að þræða fyr- ir svellin, jafnvel þótt á björtum degi væri. Fólkið safnaðist saman í þing- húsinu. Kalt hafði verið þar fyrir tveim vikum en kaldara var þar nú. Enginn ofn var í þinghúsinu. Þó fólkið væri búið hlýjum skjól- fötum, setti fljótt að því, þegar það kom heitt af göngunni. Var nú mörgum litið út á Akursleiti, því að þaðan áttu menn von á fyrirlesaranum, formanni ung- mennafélagsins og meiri hluta fé- lagsmanna. Allt frá því að ung- mennafélagið var stofnað hafði verið bæði fleira og áhrifameira fólk i því úr útsveitinni heldur en úr uppsveitinni, þó að í uppsveit- inni væru fleiri býli og fleira fólk. Hinsvegar var stundum haft orð á þvi, að unga fólkið úr útsveitinni væri stundum nokkuð óstundvíst. Þegar um þetta var deilt, tóku menn upp vasaúrin sin og báru þau saman. Kom þá fyrir, að klukkan var stundum tveim tim- um fljótari á einum bænum en öðrum. Er ekki ósennilegt að ein- mitt misfljót klukka hafi átt drjúgan þátt í því að rótfesta óstundvísina i sveitum landsins, sem virtist víða landlæg þangað til útvarpið kom til sögunnar. 1 þetta sinn fannst flestum biðin löng. Ungir menn fóru að taka hvern annan hryggspennu og jafnvel glímutökum, en ekki gátu allir leikið sér að fangbrögðum. Nokkrar ungar stúlkur voru þarna til að prýða hópinn og eitt- hvað varð að gera fyrir þær. Eng- inn gat haldið þarna kyrru fyrir vegna kulda og i önnur hús var ekki að venda. Þá var talað um að fara að dansa. Sú tillaga var sam- þykkt án atkvæðagreiðslu. En hvar var hljóðfærið, og hver var líklegur til að leika fyrir dansi i þessum kulda? Allir litu til Jóns á Leysingjastöðum, kirkjuorgan- leikara. Hann lék lika á harmon- ikku. Ungmennafélagið geymdi harmonikku sína í lokuðum kassa i þinghúsinu, en kassinn var læst- ur og fyrir honum lás. Allir vissu að lykill að lásnum var geymdur hjá formanni félagsins úti í Knarrarhöfn. Nú var rætt um það af miklu kappi hvernig ætti að opna kassann. Stúlkurnar vildu að farið væri að dansa. Þær voru því sem næst farnar að skjálfa af kulda. Karlmennina langaði mikið til að opna kassann, en eng- inn vildi verða til að brjóta hann upp. Frammi i skúrnum var lít'ð borð og við borðið var stór steðji. Þar voru geymd áhöld, sem notuð voru við járningu hesta. Þegar umræður beindust sem mest að hormonikkukassanum, varð ein- um piltanna, Magnúsi Lárussyni, fyrrverandi barnakennara i sveit- inni gengið fram i skúrinn. Hann kom aftur með stóran naglbít í hendinni. Hann brá tangarkjaft- inum tafarlaust utanum kenginn, sem hélt lásnum á kassa harmon- ikkunnar og tók síðan á af öllum kröftum. Eftir stutta stund var kengurinn laus. Lásinn fylgdi, og hluturinn, sem bjó yfir töfra- mætti tónánna, var gripinn hraðri hendi og honum brugðið á loft. Allur hópurinn laust upp fagnað- arópi, en Magnús kvaðst mundi standa fyrir máli sinu og gera upp reikningana við formann félags- ins, þeir voru vinir. Harmonikkan var nú notuð um stund, og fólkið hleypti úr sér hrollinum. En ekki hafði verið lengi dansað, þegar einhver kall- aði og sagði að nú sæist til fólks úti á leiti. Reyndist það satt vera. Utsveitungarnir gengu von bráð- ar í hlaðið í Hvammi. I fylgd með þeim var fyrirlesarinn sjálfur. Fá- ir af þeim, sem biðu hans höfðu séð hann áður. Þess vegna var það fyrst og fremst hann, sem vakti athygli fólksins. Jón Á. Guð- mundsson var meðalmaður á hæð. Viðmót hans var ljúfmannlegt. Hann fór strax að afsaka það, hversu seint hann kæmi. Þegar fólkið, sem beðið hafði. hafði lýst kuldanum í þinghúsinu, kom öll- um saman um að tæplega væri leggjandi upp að flytja fyrirlest- urinn þar. Málið leystis’t á þann veg, að fengin var að láni stofa í suðurhorni íbúðarhússins. Inn af þeirri stofu var lftið herbergi, sem fólkið fékk einnig að vera í. Engin upphitun var í húsakynn- um þessum, en vegna þess að, húsrúmið var þéttskipað fólki hlýnaði þarna fljótt, og undu menn umskiptunum vel. Þegar allir, sem mættir voru, höfðu komið sér fyrir, hóf fyrir- lesarinn mál og talaði samfleytt á annan klukkutíma. Honum lá fremur lágt rómur, en hann gaf orðum sínum sterkar áherslur og tók stutta málhvíld að loknum þeim setningum, sem honum virt- ust hugstæðar. Honum tókst furðu fljótt að ná lifandi sam- bandi við áheyrendur, og fljótlega hlustaði fjöldinn á hann með vök- ulli athygli og hélst svo til loka. Aðalefnið í ræðu Jóns voru ung- mennafélögin, störf þeirra og stefna, áhrif þeirra á æskuna. möguleikar til meiri átaka o.s.frv. Fyrirlesturinn var vel samin, í honum var gott samhengi, og hann virtist vera einkenni mikils áhuga fyrir þeim málstað, sem dvalið var við. Var athyglisvert hversu allir voru hljóðir, þótt yngstu áheyrendur væru á bernskuskeiði en þeir elstu hálf- sextugir. Aðeins einu sinni sáust merki þess, að athyglin væri ekki nógu vökul. Einunt bændanna inni íherberginu varð á að geispa. Magnús Lárusson vék sér þegar að honum og sagði lágt I eyra hans en þó svo hátt, að þeir heyrðu, sem næstir stóðu: „Skammastu þín ekki að vera að geispa undir fyrirlestrinum?" Ungur maður vék sér strax að Magnúsi og sagði lágt: „Mér sýndist þú sjálfur vera að geispa áðan, góði.“ „Já, en ég ætla ekki að gera það aftur,“ sagði Magnús. Þegar Jón Á. Guðmundsson hafði lokið máli sínu, talaði for- maður ungmennafélagsins nokk- ur orð. Hann var vel máli farinn og talaði þarna i líkingum. Að síðustu gekk hann til fyrir- lesarans, tók i hönd hans og óskaði að orð hans mættu berg- mála í gróandi lífi frjálsrar þjóðar. Þessu næst setti formaöur fund í ungmennafélaginu. Söfnuðust meðlimir félagsins öðru megin i stofunni. Var verkefni fundarins að taka ákvörðun um eitt mál, stofnum sambands ungmennafé- iaganna i Dalasýslu. Mál þetta hafði áður verið rætt i félaginu, en Jón fyrirlesari skýrði nákvæm- lega fyrirkomulag og verksvið sambanda ungmennafélaganna. Iíann vék að þvi, að skipulag þeirra væri kerfibundið eftir fyr- irmyndum annara félagsheilda i landinu. Fyst væru hin einstöku félög, er takmörkuðust venjulega við eina sveit. Þar færi aðalstarf- semin fram. Þá kæmu héraðssam- böndin. Þau gæfu fjölbreytni, veittu meira víðsýni og möguleika til stærri átaka. Loks væri svo landsambandið, sem tengdi allar greinarnar saman í eina heild. Málgagn ungmennafélaganna, Skinfaxa kvað Jón eiga að vera boðbera hugsjónanna og samteng- ingarafl þeirrar kynslóðar, sem innan tíðar ætti að geyma framtíð lands og þjóðar. Þessu næst var samþykkt í einu hljóði að ungmennafélagið Auður djúpuðga yrði einn aðilinn að stofnun sambandsins. Fyrirhugað var, að haldinn yrði undirbún- ingsfundur að stofnun héraðs- sambandsins að Hjarðarholti í Laxárdal næsta dag, og meiningin var, að 3 fulltrúar frá hverju að- ildarfélagi mættu á fundinum, nema frá u.m.f. Stjarnan. Jón A. Guðmundsson var meðlimur þess félags og hugðist mæta einn á stofnfundinum fyrir það. Þegar kom að því að velja fulltrúa a Hjarðarholtsfundinn á fundinum i Hvammi, var það ekkert auðsótt verk. Sigmundi formanni fannst ekki ráðlegt að ganga beint til kosninga á fulltrúunum. Hávetur var og búist var við að þessi fund- arsókn tæki minnst 2—3 daga, en flestir piltarnir í félaginu voru annara þjónar og bundnir við heimilisstörf. Formaðurinn taldi, að konur í félaginu kæmu tæp- lega til greina í sliku tíðarfari og yfirfærð, sem þá var um aö ræða. Var ekki laust við, að betri helm- ingnum finndist sér misboðið með þessu. Árið 1917 var að visu ekk- ert kvennaár i nútima merkingu, en landnámskonan i Hvammi var höfðingborin i minningu þeirra er sátu umgetinn fund, og heil- brigður netnaður betri helmings- ins virtist hafa viðulegan sess í vitundinni. Formaðurinn kvaðst mundi reyna þá aðferð, að biðja þá félagsmenn að gafa sig fram, sem íi« fðu ástæðu til að fara á fundinn. Enginn gaf sig fram. Þá lagði Jón Á. Guðmundsson til, að þeir gæfu sig fram, sem ekki gætu farið. Þetta var reynt en ,fór á sömu leið. Þá reyndi formaðurinn að ganga á röðina og láta hvern einn segja til um hvort hann gæti farið á fundinn og ef svo væri ekki að tilgreina þá ástæður. Þeg- ar hann hafði yfirheyrt einn fundarmanna, sem gaf neikvætt svar, kom röðin að aldursforseta félagsins, Jóhannesi Guðmunds- syni, bónda í Teigi. Jóhannes sagði nei. „Hver er ástæðan?" „Ég er svo latur.“ Þetta svar framkallaði almennan hlátur þarna i stofunni. Fundarmenn voru nú yfirheyrðir hver eftir annan. Þegar þvi var lokið höfðu allir sagt nei, nema formaðurinn og Oskar Kristjánsson, seinna bóndi á Hóli. Voru allir því fylgj- andi að þeir færu á fundinn. En þá vantaði þriðja manninn. Marg- ir vildu gera litið úr leti Jóhann- esar. Hann var einn af stofnend- um félagsins, hafði starfað i því að miklum áhuga, var aldursfor- setinn i félaginu og glöggur á viðhorf dagsins. Og þó að hann ætti mikið starf að baki á veg- um félagsins og væri orðinn fjörutiu og þriggja ára gamall, voru félagsmenn ekki gæddir meiri nærgætni honurn til handa en það, að þeir vildu ekki Sjá nœstu I síðu Vera Nordin Svefn- bœjar Blues Ég veit ekki hversvegna ég er döpur getur þú skilið hversvegna ég er döpur og á erfitt með að anda við aðeins gráta af engu — af alls engu læknirinn sagði stálhraust sagði hann og samt er ég með höfuðverk og sef illa og er leið á lífinu öllu ég skil það ekki ég sem hef plasthúðað parkettgólf ísskáp ryksugu niðurfall fyrir rusl þurrkara neonljós þvottavél þeytivindu hrærivél baðherbergi brauðrist rafmagnseldavél ofn slma plotuspUara hraðsuðupott útvarpstæki suðursvalir allt sem hægt er að óska sér og sjálf á ég nylon orlon farða púður magabelti lífsstykki andlitsþurrkur háhælaða skó varalit kinnalit fölsk brjóst og fölsk augnahár hár plasthúðuð ég er öll plasthúðuð og slitsterk ekki þarf ég að sækja vatn I brunn við túnfótinn á meðan sólin skin og hunangsflugan suðar og í fjarska heyrist lítill lækur hjala ég þarf ekki að raka saman heyi á sumrin meðan lævirkinn sveimar og syngur hátt á himni og loftið er mettað lykt af hestum gróðri og sveittu fólki ég þarf ekki að ganga langleið gegnum skóginn til að versla þarf aldrei að skola þvott við vatnsbakkann þarf aldrei að hnoða rúgmjölsdeig aldrei þarf ég að leggjast til svefns með harðsperrur eftir erfiði dagsins og aldrei þarf ég hljóðandi að ala barn þvi við höfum séð svo um að við eignumst enga óþæga krakka en annars höfum við allt geturðu því skilið hvers vegna ég er döpur ég sem hef ísskáp ryksugu niðurfall fyrir rusl þurrkara neonljós þvottavél. . . . Þytt Guðrún Þórarinsdóttir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.