Lesbók Morgunblaðsins - 08.08.1976, Blaðsíða 15
taka því, annað væri óskynsam-
legt.
— Það er ekki, að mínum dómi,
bæði hægt að sinna börnum og
fullu starfi svo vel sé, segir hún.
Ekki á meðan möguleikar til
gæslu barnanna eru í því horfi
sem nú er. Flest störf eru meira
og minna krefjandi, en það eru
börn ekki síður. Framhjá þeim
verður ekki gengið, þegar þau
eru komin. Eins og viðhorfið er
nú er þess vænst að mæðurnar
geri nauðsynlegar ráðstafanir.
Þær virðast einar hafa þessar
skyldur við börnin, ekki feðurn-
ir, ekki samfélagið. Þess vegna
standa börnin oftar en ekki í vegi
fyrir því að móðirin geti með
góðu móti sinnt þvi lifsstarfi,
sem hún hefur búið sig undir.
Hverju er um að kenna?
— Kerfið er að því leyti gallað,
að konur eru hvattar til náms og
starfa, sem þær geta svo ekki
sinnt vegna barnanna. Þau verða
afgangs i þjóðfélaginu. Það þykir
sniðugt að faðirinn eldi matinn
og jafnvel sinni heimilisverkum
en ekki að hann annist börnin;
síst að hann láti það ganga fyrir
starfinu. Hin almenna venja er
sú, að heimilisfaðirinn heldur
áfram að sinna sínu fagi en hús-
móðirin sest heim og sér um
börnin og heimilið. Hjá honum
er starfið númer eitt, en hjá
henni verður starfið að vera í
öðru sæti.
Sigríður telur að stærsti þrösk-
uldurinn til þess að konur nái
jafnstöðu til að starfa utan heim-
ilis sé skortur á dagheimilum og
einsetnum skólum, þar sem börn
geti dvalið lengur en nákvæm-
lega tilskyldar kennslustundir.
— Eins og barnagæslumálum
er nú háttað lítur svo út, að þjóð-
félagið telji giftar konur ekki
nauðsynlega starfskrafta annar-
Staðar en á heimilunum, segir
hún. Hinsvegar tel ég nauðsyn-
legt að þeim verði gert kleift að
vinna utan heimilis, án þess að
börn þeirra þurfi að líða fyrir
það.
Gerðir þú ekki ráð fyrir þess-
um hindrunum þegar þú vald
þér starfsgrein?
— Nei, þegar ég var í skóla
gerði ég ekki ráð fyrir að gifta
mig. Ef svo hefði verið, hefði ég
sennilega tekið fyrir iéttara og
styttra nám. Flestar vinkonur
minar frá unglíngsárum, fóru i
Kvennaskólann; en mér leiddist
að sauma og hafði ekki áhuga á
húsverkum. Ég vildi vinna úti í
þjóðfélaginu og valdi þess vegna
verkfræðina. Ég gerði heldur
ekki ráð fyrir börnum, það sam-
ræmdist ekki starfinu.
En nú er svo komið, að þú
verður að velja á milli starfsins
og barnanna?
— Já, með þeirri aðstöðu, sem
nú er yrði ég annaðhvort að van-
rækja, segir Sigriður.
Hún tók börnin framyfir starf-
ið og sýnist kunna móðurhlut-
verkinu vel. Ekki er hún þó al-
veg horfin frá atvinnulifinu.
— Það er rétt, ég hef ánægju
af að vera með börnunum min-
um, segir hún. En heimilisstörfin
eru ekki nægilegt verkefni. Ég
var svo heppin að mér bauðst
stærðfræðikennsla við Fjöl-
brautarskólann síðastliðið haust.
Skólinn er hér í næsta nágrenni
og ég get betur samræmt þetta
starf gæslu barnanna og heimil-
isins. Auk þess finnst mér stærð-
fræðikennslan skemmtileg, enda
ekki alveg úr tengslum við verk-
fræðina.Starfið við skólann er
nýtt og þroskandi verkefni.
Unglingarnir virðast vera áhuga-
samir, þó ef til vill vanti meiri
stefnufestu við námið. Athyglis-
vert fannst mér, hvað góð áhrif
það hafði á unga fólkið, að nokkr-
ir nemendur voru fullorðið fólk,
m.a. konur, sem hefðu getað ver-
ið mæður unglinganna. Ég held
að of mikið sé gert að því að
flokka fólk eftir aldri, betra væri
að blanda aldursflokkum saman,
ekki sist við nám.
En hvað verður um verkfræð-
ina og þekkingu, sem þú hefur
aflað þér á þvi sviði? Nær það
ekki þeim tilgangi, sem til var
ætlást?
— Þótt ég hafi ekki tækifæri
til að vinna við það eins og er, þá
er það góð innstæða fyrir seinni
tíma, segir Sigríður. í mörgum
tilfellum held ég að of mikið sé
gert úr því, hvað erfitt sé að
hefja nám eða starf að nýju. Það
eru þá helst sálrænu áhrifin af
því að vita af jafnöldrum sínum
komnum lengra i náminu eða
starfinu en sjálfan sig, sem vaxa
fólki í augum.
Eftir þessu ert þú fremur
bjartsýn á möguleika kvenna til
að ná betri aðstöðu í starfs- og
menntunarmálum?
— Jafnréttismál kvenna eru i
mótun. Miðað við þá þróun, sem
hefur orðið á stuttum tima, má
búast við enn meiri breytingu á
næstu árum. En jafnrétti karla
og kvenna er ekki nóg: Það verð-
ur að taka börnin með i reikning-
inn. Til þess þurfa dagvistunar-
og skólamál að taka miklum
breytingum. Án þess geta konur
almennt ekki tekið þátt í at-
vinnulífinu eins og til er ætlast.
En hvað um eðlismuninn?
— Ég álit ekki að hægt sé að
færa rök fyrir mismunandi
hæfni karla og kvenna til að ann-
ast börn og heimili. Togstreita
um það spillir fyrir samvinn-
unni. Það er misskilningur að
konur eigi að keppa við karla.
Þær þurfa aðeins að lita svo á, að
þær hafi jafnmikið gildi til orða
og athafna í samfélaginu og þeir.
Svo mörg eru þau orð, og eru
þó aðeins úrdráttur úr spjalli
okkar Sigríðar um þessi málefni
sem enn eru i deiglu. Við erum
sammála um, að þótt þau verði
ekki til annars en vekja athygli á
málefninu, sé tilganginum náð.
Við höfum setið við tedrykkju
á heimili Sigríðar að Bakkaseli 2,
það er orðið áliðið kvölds og úti
fyrir er björt sumarnóttin. Uppi
á efri hæðinni sofa drengirnir,
Ásgrlmur og Erlendur værum
svefni.
Þau eru nýflutt í húsið og ým-
islegt er ófrágengið, einkum ut-
anhúss. Þar bíða skemmtileg
verkefni við að skipuleggja garð
og lóð.
Sigríður er fædd og uppaiin i
Reykjavík, hefur alltaf átt hér
heima utan námsárin i Noregi.
Áunglingsárum hafði hún áhuga
á teikningu og myndlist og teikn-
aði sjálf talsvert þegar hún var í
skóla. Hún tók þátt i námskeið-
um hjá Handiða- og Myndlista-
ekólanum m.a. vegna áhuga fyrir
listiðnum. Hún telur að ef til vill
hafi það átt sinn þátt í að hún
valdi verkfræði sem framhalds-
nám.
Nú beinist áhugi hennar og
tómstundastarf að gróðurrækt
ýmiskonar, þegar því verður við
komið. Fyrir fáum árum byggðu
þau sér sumarbústað á Miðdals-
heiði. Þar hafa þau hjón gert
nokkra tilrauri til skógræktar, en
bitur reynsla af veðrum og sauð-
fé hefur tafið það framtak meira
en skyldi. Ef að likum lætur
verður skógræktinni þar haldið
áfram og ekki lagðar árar i bát,
þótt erfiðlega gangi um sinn.
Eftir að Sigrlður lauk rtámi frá háskólanum I Þrándheimi vann hún ! rúma þrjá mánuði að prófverkefni á sjúkrahúsi!
Osló. Þetta prófverkefni fjallaði um rannsókn á stýringu og beitingu gervilima. Þessar myndir eru teknar af Sigrlði
við þetta verkefni.
Qy.