Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1978, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 15.01.1978, Síða 16
-*«r P£,ss STAÐUR. UPPfí M06ULEIKA ... fíNDRÚMSLOFT{£> EC? FRjfíLSMANNLEGT OG BNG/NN SBG/R. „ Mfí EKK/ " AHA, EG HEF MK/£> . fíTHFGL/ UNGRfíR KLEOPÖTRU SfíNNKA L LfíDR. PR TÚLÍU... . ^ ^ N_/ r FURS.T V4,,, S/PAN, E/NS OG O'SJMlF- HOPFUMST RfíTT NALGUMST W/Ð /fíUGU [//£> HVÓRT fíNNAÐ ■■■ UM STUND. _ (t rERTþÚ EKK! SÆMÍfS'^ þú ERT EKKI SÆMI? Ó, EN LEIÐ/NLE&T- ÉG TÓK þ,G FyR/R fíNNAN ! EG HEF WER/Ð AÐ / EN HVfíÐ RÖDD LE/TA þ'N í HlJÓMAO/ ÖÐRU Ffífí UPP- \ y/'s, l'j/MfíNUM.1 HfíFt VEGA’ V_____________________ r HVERN/6 STENPUR ANNARs'fí þuí,fl£> fíLL/R l//ROfíST KOMfíST fí KVENNfíFfíRj NEMfí ÉG? SÆMlþ HVEfí ER. SRMI? Þrettándajól Framhald af bls. 9. 1 700 algjört bann við þvi, að kirkjan kysi sér nýjan patríarka, þar sem keisaranum þótti orðið meira en nóg um völd patríarkans i Moskvu. Árið 1721 tók hin heilaga sýnóda eða klerkaþing við æðstu yfirstjórn rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunnar fyrir at- beina Péturs mikla. Hélzt sú skipan kirkjumála allt fram til októberbylting- ar bolsévika árið 1917, en á þvi ári endurreistu byltingarmenn embætti patríarkans með aðsetri í Moskvu. Hefur svo verið siðan, að patriarkinn (erkibiskupinn) i Moskvu hefura.m.k. að nafninu til, haft yfirstjórn rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunnar í sinni hendi. Áhrif Býsanz Ásamt með kristninni meðtóku Rússar einnig býsanzka byggingarlist frá Miklagarði Allt frá 10. öld og fram á daga Péturs mikla um 1 700 var býsönzk byggingarlist og helgi- myndalist alls ráðandi í Rússlandi: grunnflötur kirkjuhússins var kross- inn, og oftast fimm fremur lágar turnspírur með lauklaga hjálmþökum krýna rússneskar kirkjubyggingar. Laukkúplarnir eða hjálmþökin eru oft- ast með gullnum lit, — hjálmarnir á sumum veglegustu kirkjunum eru lagðir örþunnu þlaðgulli, en stundum eru hjálmþökin steind i grænum eða bláum lit. Helgidómurinn Það sem mest ber á, þegar komið er inn i rússneska orþódoxkirkju er íkonstasis eða íkonaveggurinn, sem aðskilur altarið og hið allrahelgasta frá kirkjusalnum og þar með kirkju- gestunum. Gegnum hinar gullnu dyr (zolotyjé vorota) inn i sjálfan helgi- dóminn mega aðeins hinir vígðu guðsþjónar, prestarnir, ganga. Eng- inn óvígður færi að stiga fæti þangað inn. Á ikonstasis eru hinar hefðbundnu helgimyndir, íkonarnir, hengdir upp í sérstakri skipan, þannig að mynd Frelsarans i hásæti með Guðsmóður og Jóhannes skírara, sitt til hvorrar handar, hangir fyrir miðju yfir gullnu dyrunum inn í helgidóminn. Útfrá þessari aðalmynd koma svo nákvæm- lega niðurraðaðir íkonar af erkiengl- um, postulum, spámönnum og rúss- neskum kirkjufeðrum. Táknræn messa Messan i orþódox kirkjum er mjög löng á okkar mælikvarða eða tvær stundir og stundum lengri og er ávallt sungin. Fram eftir öldum var notað sérstakt fornrússneskt kirkjumál við messugjörðina, en núna á síðustu áratugum er messan jafnan sungin á nútima rússnesku. Orþódox- söfnuðurinn stendur á kirkjugólfinu allan timann meðan hin langa, flókna og táknræna messa er sungin, og er hlutverk safnaðarins i messugjörðinni sjálfri mjög mikið. Kirkjugestirnir svara í sifellu tóni prestanna, flytja trúarjátninguna, bænir, tendra vax- kerti fyrir framan helztu íkonana, kné- falla og þylja um leið fyrirbænir Á sjálfri jólanótt er vitaskuld sungin sérstök jólamessa með ævafornum íbúrðarmiklum helgisiðum og tákn- máli. Flestir helgisiðir hinnar rúss- nesku orþódox-messu eru þúsund ára gamlir og nokkra þeirra má jafnvel rekja beint aftur til grisk-kaþólsku kirkjunnar á 4. og 5. öld eftir Krists burð. H.V. Uppgjörið Framhald af bls. 13. þeir félagar voru bornir, voru flóknar og hve erfitt það var einatt að kenna ákveðnum einstökum mönnum ákveðrta stríðsglæpi, svo að hægt yrði að dæma þá fyrir. Um Jodl er það að segja, að þeir glæpir, sem hann ..framdi'' voru flestir eða allir framdir að skipan Hitlers. Jodl hafði yfirleytt aðeins „látið þær ganga ", En hann hafði vitanlega orðið að undir- rita þessar skipanir og sjá til þess, að þeim yrði framfylgt. Jodl var hermað- ur í húð og hár og það er efalitið, að hann átti oft i baráttu við sjálfan sig, er hann þurfti að framfylgja einhverj- um skipunum Hitlers, sem ekki sam- rýmdust hugmyndum hans um „heiðarlegan hernað". Jodl lýsti yfir því fyrir réttinum, að hann hefði jafnan haft Haagsamkomulagið um reglur í landhernaði og Genfarsátt- málann „á borðinu hjá sér", og hefur hann e.t.v. verið af vilja gerður til að fara eftir þeim. En þá hefði hann orðið að óhlýðnast Hitler. Og til þess treystist hann ekki. Þjónkun hans og undirgefni við Hitler varð honum til dómsáfellis. Hann var dæmdur sekur um öll fjögur ákæruatriðin og hlaut dauðadóm. Wilhelm Keitel, fyrrum formaður þýzku herstjórnarinnar og helzti hernaðarráðunautur Hitlers öll stríðs- árin, var líka dæmdur fyrir skilyrðis- lausa þjónkun sina við Hitler. Keitel var lítt reyndur í hernaði og þótti heldur lítilfjörlegur hershöfðingi. Hann gerði ekki nema framfylgja hernaðaráætlunum Hitlers, enda hafði Hitler tekið sér æðstu völd yrir hernum um það bil, sem hann skípaði Keitel formann herstjórnar. Það varð Keitel til dómsáfellis, einsog Jodl, að hann hafði hlýtt Hitler án þess að mögla nokkurn tima. Fyrir kom, að sóttu að honum efasemdir um rétt- mæti skipana Foringjans. En hann lét þær varla nokkurn tima i Ijós, og gerði yfirleitt alltaf það, sem fyrir hann var lagt. M.a. undirritaði hann orðalaust skipanir um líflát striðs- fanga og fleira, sem braut i bága við alþjóðalög. Hann var fundinn sekur um þátttöku i „samsæri um það að stofna til styrjaldar, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu" og hlaut dauðadóm fyrir.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.