Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.1979, Blaðsíða 9
Að þessu sinni kynni ég þrjár nafnkenndar finnskar listakonur:
Forsíðan er öll lögð undir myndir af miklu minnismerki um
tónsmiðinn Jean Sibelius og er eftir hina fjölhæfu Eila Hiltunen, f.
1922.
Minnismerki þetta er mjög stórt og vekur óskipta athygli, þar
sem það er staðsett í Sibelíusargarðinum við Mechelingötu. Það er
mikill og magnaður tónrænn hrynjandi í pípunum, dulúðugir og
sterkir drættir í andliti Sibeliusar. Flestir hljóta að verða fyrir
miklum áhrifum, er þeir sjá það, ganga í kringum það og skoða frá
ólíkum sjónarhornum — fara undir pípurnar og horfa í gegnum
þær upp til himna. Minnismerkið stendur á lágu klettabelti og
fellur mjög vel inn í umhverfið — svo vel, að manni verður
ósjálfrátt á að hugleiða, hve mikilvægt atriði það er, að myndir
njóti sín, þar sem þær eru staðsettar. Hér er Sibelius vissulega á
réttum stað — í fjölskrúðugu umhverfi þeirrar náttúru, sem hann
sótti til hið ríka tónasvið, er einkennir verk hans.
Ég þekkti nánast ekkert til listakonunnar Ellen Thesleff,
1869—1954, fyrr en ég sá myndir hennar á söfnum í Helsingfors á
liðnu hausti og hreifst af málverkum hennar — einkum tæknilegu
öryggi og hrífandi innileika í litameðferð. Thesleff tók út þroska
sinn á síðustu öld, svo sem mynd hennar lengst til vinstri, sem er frá
árinu 1892, ber ljóst vitni um. Seinna þróaði hún stíl sinn til
litræns, fágaðs og umbúðalauss expressjónisma, jafnframt því sem
hún málaði gíæsilegar mannamyndir (portrett), eins og meðfylgj-
andi myndir bera með sér. í þeim myndum kemur glöggt fram hinn
tæknilegi glæsileiki og tjáningarfulli innileiki, sem lífið í gegn var
aðall mynda hennar.
Sennilega er Helena Schjerfbeck, 1862—1946 þekktust þessara
listakvenna, enda mun hafa gustað mikið af henni, meðan hún lifði
Lærimeistara valdi hún ekki af verri endanum, en meðal þeirra
voru Parísarlistamennirnir Géromin, Bastien Lepage og Puvis de
Chavannes. Myndir hennar eru málaðar með miklum léttleika,
leikni og fágætum tilþrifum og bera ríkri skapgerð vitni. Myndir
Helenu Schjerfbeck hér á síðunum í neðri röð gefa nokkra
hugmynd um stíl hennar og ólgandi listamannsblóð.
n Thesleff
myndirnar í riiðinni að ofan -
ina Sehjerfbeck
myndirnar í röðinni að neðan
Hiltunen
forsíðu —