Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1979, Síða 4
Hvað getur einn maður gert? tempruöu beltum Afríku, Suöur-Asíu og Suður-Ameríku, sem bezt sézt af því, aö áriö 1966 áætlaöi Alþjóöaheilbrigöismála- stofnunin, aö fjöldi holdsveikra í öllum heimi væri um 11 milljónir og af þeim fjölda fengu aöeins 1/5 hlutinn læknis- meöferö. Allir áðurnefndir sjúkdómar eru þess eðlis, aö hægt er aö lækna þá eöa halda þeim í skefjum meö lyfjum. Einn maöur getur þess vegna meö atorku sinni og nauösynlegum áhöldum og lyfjum frelsaö hundruö eöa þúsundir manna úr greipum þjáningar og dauöa og þaö meö kostnaöi, sem er óverulegur miðaö viö óþarfa eyöslu margra í velferöarþjóö- félagi. Hvers vegna fór Albert Schweitzer til Lambaréne? Einn af mörgum aödáendum Schweitz- ers, sem vildi bjarga hugverkum hans frá glötun var bandaríski ritstjórinn Norman Cousins. Hann fór til Lambaréne áriö 1957 og skrifaði bók aö ferö lokinni. í þessari bók kemur greinilega fram ástæöan fyrir því, aö Schweitzer fór til Lambaréne og mótaöi lífstefnu sína eins og öllum er nú kunnugt. Til gamans má geta þess, aö Cousins 'haföi fært Schweitzer persónulegt bréf frá Eisenhower Bandaríkjaforseta, sem Schweitzer var nú aö svara. Hann lét svarbréfiö í ólokað umslag og rétti Cousins þaö til þess aö hann gæti fært forsetanum þaö persónulega. Að því loknu hallaði hann sér aftur á bak í stólnum og spuröi Cousins, hvort hann væri ánægöur meö aö hafa tekið ákvöröun um aö koma til Lambaréne. „Mjög ánægöur," svaraði Cousins og notaöi tækifæriö og sagöi viö Schweitzer, aö hann vonaöist til, aö hann tæki þaö ekki sem vott um hvatvísi þó aö hann spyrði hann sömu spurningar. Schweitzer sagöist hafa haft um fjörutíu ár til umhugsunar til þess aö svara þessari spurningu svo aö ekki þyrfti aö veröa hik á svari hans. Já, hann var ánægöur, að hann kom til Lambaréne, mjög ánægöur. Það var þegar hann var aö sigla upp eftir Ogowe ánni dag nokkurn fyrir mörgum árum, framhjá einni af hinum frjósömu eyjum í ánni og horföi upp í hin vaöandi ský, sem hugmyndin um lotningu fyrir lífinu gagntók hann. Lambaréne haföi einnig gert honum kleift aö gera líf hans aö rökstuðningi hans, sagöi Schweitzer. Þetta kom Cousins á óvart og hann lei't upp spyrjandi. „Sem ungur maður var mitt megintak- mark að verða góöur prestur,“ sagöi Schweitzer. „Ég lauk námi og fljótlega eftir þaö hóf ég kennslu. Ég varö skóla- © stjóri prestaskólans í Strassborg. Einnig héit ég áfram aö rannsaka og hugsa um líf Jesú og þýöingu þess. Og því meira sem ég rannsakaöi og hugsaöi þeim mun fullvissari varö ég, að kristin guöfræöi væri oröin of flókin. Á fyrstu öldum eftir Krists burö, varð feguröin og einfaldleik- inn varöandi Jesú dálítiö ógreinilegur vegna mismunandi skýringa og ótrúlega flókinna kennisetninga, sem stöfuöu at deilum um guðfræöileg efni. Melra en öld eftir Krists burö stóöu deilur, sem fjölluöu um spurningar eins og þessar: „Er Jesú raunverulegur Guö eða sonur Guös? Ef hann er Guð, hvers vegna þjáöist hann? Ef hann var sonur Guös, hvers vegna var hann látinn þjázt? Hvaö er átt viö meö anda Jesú? Hver er hin rétta staöa Maríu f kristinni guöfræöi?" Flókin guðfræði, sem fékkst viö slíkar spurningar olli mér hugarangri vegna þess, aö hún leitaöist viö aö leiöa hugann frá hinum mikla og einfalda sannleika, sem birtist í oröum og lífi Jesú, Jesú Kristur lýsti ekki sjálfan sig Guö eöa son Guös. Hlutverk hans var aö vekja fólk til meðvitundar um Guös ríki, sem hann taldi vera á næsta leiti. í tilraunum mínum til þess aö komast hjá torskilinni kristinni guöfræöi, sem byggöist á síðari tíma skýringum, þróuöust meö mér mínar eigin hugmynd- ir. Þessar hugmyndir gengu í berhögg viö þær hugmyndir, sem mér höföu verið kenndar. Hvaö átti ég nú aö gera? Átti ég aö kenna þaö, sem mér haföi veriö kennt, en trúöi nú ekki sjálfur? Hvernig gat ég sem skólastjóri prestaskólans axlað þá ábyrgö aö kenna ungum mönnum þaö, sem ég trúöi ekki sjálfur? Eöa áttl ég að kenna þaö, sem ég trúöi sjálfur? Ef ég geröi þaö, mundi þaö þá ekki valda lærifeörum mínum vonbrigöum? And- spænis þessum tveimur spurningum ákvaö ég aö gera hvorugt. Ég ákvaö aö yfirgefa prestaskólann. I staö þess aö reyna aö vinna kenningum mínum fylgi, sem mundi hafa í för meö sér óæskilegar deilur, ákvaö ég aö gera líf mitt aö rökstuöningi mínum. Ég ætlaöi aö játa trú mína með lífsstarfi mínu. í staö þess að prédika trú mína á tilveru Guös meö sérhverjum okkar, vildi ég reyna aö láta líf mitt og starf segja þaö, sem ég trúöi á.“ Lotning fyrir lífinu Ef tiltaka ætti þá þætti í lífsstarfi Schweitzers, sem mest áhrif hafa haft á líf hans og annarra, sem aöhyllast kenningar hans, er fullvíst, aö þeir séu annars vegar mannúöarstörf hans í Lambaréne í meira en hálfa öld og hins vegar siöfræöikenn- ing hans um lotningu fyrir lífinu. Þessir tveir þættir eru opinberun þeirrar trúar og skilgreiningar á Guöi, sem Schweitzer setti fram á ungum aldri og er í sem skemmstu máli þannig, aö í alheimsgeimi ei Guö ópersónulegt náttúruafl, en í sjálfum mér er hann siöfræðilegur per- sónuleiki. Hinn heimspekilegi Guö og sá Guö, sem ég hef reynslu af sem siöfræöi- legum vilja eru ekki sammiöja. Þeir eru einn Guö, en á hvern hátt þeir eru einn skil ég ekki. Mannúöarstörfin í Lambaréne eru knúin af hinum siöfræöiiega vilja, sem er svo þroskaöur í Schweitzer, aö hann lítur á sitt starfssviö jafn eölilegum augum og starfssviö annarra manna. Þetta afl er stundum nefnt köllun. Sennilegt er, aö af þessari ástæöu sé þaö nauösynlegt bæöi fyrir trúarheill og sálarheill sérhvers einstaklings aö fá tækifæri til þess aö hlýöa köllun sinni, að geta sinnt sínum siðfræðilega vilja, aö geta hlýtt Guöi í sjálfum sér. Hann er sá þáttur, sem hugsun, vilji og skilningur vaxa af. Hinn þátturinn, lotning fyrir lífinu, er þá lotning fyrir Guöi í alheimsgeimi, lotning fyrir hinu ópersónulega náttúruafli, sem viö skynj- um alls staöar í kringum okkur. Þessi siöfræöihugmynd er algjör, því aö hún gerir ráö fyrir aö lotning og ítrasta tillitssemi sé höfö gagnvart öllu lífi, hvort sem um svokallaö æöra eöa lægra lífsform er aö ræöa, hún gerir ráö fyrir lotningu gagnvart sköpunarverki Guös. Þessi hugmynd á vafalaust eftir aö halda nafni Schweitzers á lofti löngu eftir aö önnur verk hans eru gleymd og eru þau þó hvorki lítilvæg né lítil aö vöxtum, svo fremi maöurinn veröi áfram búinn skyn- samlegu viti og þroska. Hugmyndin um lotningu fyrir lífinu er hvorki frumleg né djúpstæö viö frumathugun, en sé skyggnzt dýpra er hún kjarni eöa tær kristall allrar sannrar siöfræöi og trúfræöi. Hún er sú dýpsta speki, sem boöar líf og > friö. Þessa siöfræöi hefur heimurinn nú meiri þörf fyrir en allt annað. Áþekkar heimspekilegar hugmyndir höföu komiö fram á 13. öld hjá Fransi af Assisi, sem umgekkst allt lifandi og reyndar dauöa hluti líka eins og þeir væru bræöur hans og systur og ekki verður betur séö en, aö eftirfarandi hugsun meistarans frá Fagraskógi sé runnin af sömu rót: Allt lofsyngur lífiö, og lífiö er þú, þú mikli, eilífi andi, sem í öllu og alls staðar býrö. Þinn er mátturinn, þitt er ríkiö, þín er öll heimsins dýrö. Ekki er hægt aö segja annaö en, aö öll hin margvíslega starfsemi Alberts Schweitzers hafi veriö ein samfelld lotning fyrir lífinu. Eftirfarandi frásögn hans af starfinu í Lambaréne er dæmi um þaö. „Skuröaögeröinni er lokiö og í hinum dauflýsta svefnskála bíö ég eftir því, aö sjúklingurinn vakni. Varla hefur hann náö fullri meövitund, þegar hann byrjar aö skima í kringum sig og segir meö snögg- um áherzlum hvaö eftir annaö: „Ég finn ekkert til lengur. Ég finn ekkert til lengur" Hönd hans þreifar og leitar aö minni og heldur henni fastri. Þá segi ég honum og öllum hinum sjúklingunum í skálanum, aö Jesú hafi sagt lækninum og konu hans aö fara til Ogowe og aö hvítu mennirnir í Evrópu gefi þeim peninga til þess aö búa hér og lækna veiku negrana. Síðan verö ég aö svara spurningum um það, hverjir þessir hvítu menn séu, hvar þeir eigi heima og hvernig þeir viti, aö hinir innfæddu þjáist svo mikið af sjúkdómum. Afríkusólin skín í gegnum kaffirunnana inn í dimman-skálann, en viö, svartir og hvítir, sitjum hliö viö hlið og finnst viö skilja af eigin reynslu merkingu oröanna: „en þér allir eruö bræöur" (Matt. 23.; 8). Ég vildi óska, aö mínir rausnarlegu vinir í Evrópu gætu komiö hingaö og lifað meö mér slíka stund." En lífiö er margbreytilegt og höfundur kenningarinnar um lotningu fyrir lífinu var dyggasti fylgjandi hennar í sínu daglega lífi, enda hændust bæöi menn og dýr aö honum. Schweitzer ætlaöist líka til þess, aö aörir færu eftir henni. Adlai Stevenson, sem sjálfur var mikill mannvinur, var mikill vinur og aödáandi Alberts Schweitzers og kenninga hans. Eitt sinn kom hann í heimsókn til Labaréne og sýndi Schweitzer honum sjúkrahúsiö. í þeirri för varö forsetaframbjóðandanum fyrrver- andi litið á handlegg Schweitzers og sá sér til nokkurrar skelfingar, aö stór moskítófluga var sezt á hann og sló þegar í staö til hennar. „Þetta áttir þú ekki aö gera,“ sagöi Doktorinn heldur hranalega. „Þetta var mín moskítófluga. Og auk þess var ekki nauösynlegt aö kalla á sjötta flotann til þess aö fást við hana.“ Þetta er enn eitt dæmi um þá tegund kímni, sem honum var svo eiginleg. Hér að framan hefur í stuttu máli veriö lýst nokkrum þáttum í lífi merkilegs mannvinar og siöfræöings, sem tókst aö samræma orö, trú og athafnir á undra- veröan hátt ekki sízt, ef höfö eru í huga hans margvíslegu áhugamál svo sem heimspeki, guöfræöi, læknisfræöi, tónlist og friðarmál og þeir yfirburöahæfileikar, sem hann var búinn á mörgum sviðum, er hér hafa lítt eöa ekki veriö geröir aö umtalsefni. En þótt fáir kunni aö geta fetað í fótspor þessa fjölhæfa og merka mann- vinar og velgjörðarmanns, þá getur sér- hver einstaklingur lagt sitt litla lóð á vogarskál lífsins og haslaö sér völl undir gunnfána þess. Engin vandamál leysast af sjálfu sér Öll hjón, allir foreldrar eiga viö vanda- mál aö stríða, mismunandi mikil og meö ólíkum hætti. Viö lærum einnig aö mæta vandamálunum meö ólíkum hætti allt frá bernsku. Ekkert er eölilegra en aö erfiöleikar veröi sífellt ööru hverju í nánum viöskipt- um, samskiptum, hjónabandi eöa sam- búö tveggja eöa fleiri aöila. Menn alast upp viö ólík skilyröi meö ólíkum hætti, hljóta mismunandi menntunaraöstæöur, hafa óiíkar skoöanir og frábrugöin viöhorf til margra hluta o.s.frv. En erfiöleikarnir geta oröiö okkur til aukins þroska og dregiö okkur nær hvort ööru. Engin vandamál leysast af sjálfu sér, aöeins meö því aö Þegja um þau. Viö veröum aö taka þau upp, ræöa um þau, heyra álit hvors annars, reyna að setja okkur í spor hins aöilans o.s.frv. Hver fjölskylda á bæöi sína eigin sögu og menningu, reglur og siöi. Hún mótast og verður til bæöi af persónunum sjálfum, samskiptum þeirra og samspili. En hún mótast einnig af ytra umhverfi, ríkjandi stjórnmálum og stefnu þeirra, fjárhagi o.s.frv. Stundum er sögu fjölskyldna skipt niöur í ákveðin tímabil eins og t.d.: 1. Ung hjón — Engin börn. 2. Frá fæöingu fyrsta barns til hins síðasta. 3. Uppeldi — þar til fyrsta barn fer aö heiman. 4. Börnin fara aö heiman og yfirgefa foreldra og heimili. 5. Miðaldra og eldri hjón — Engin börn. Þó aö niöurrööun þessi sé einföld, getur hún hjálpaö okkur til þess aö átta okkur á, aö fjölskylda á einnig sína eigin sögu og ákveönu tímabil. Börn eru mismunandi sjálfstæö og fjölskyldubönd- in binda okkur foreldrum okkar meö ólíkum hætti. Hrútur og Unnur, sem rætt var um í síðasta þætti, eru hjón meö engin börn. Dýpsti samleikur þeirra hjóna í ástarleikj- um og samförum olli þeim erfiöleikum. Svo miklum, aö Unnur leitar til fööur síns og segir honum að lokum „allt af létta“. E.t.v. hafa ættartengslin veriö sterk og hún óvenju háö fööur sínum. Kannski. hefur hann átt sinn þátt í því aö „vernda hana um of“, gera hana háöa sér. — Og þegar til kastanna kemur, verður ráölegg- ing hans „lögfræöilegs eðlis“. Hann legg- ur á ráöin meö þaö, hvernig best sé, aö skilnaöurinn fari fram eftir „löglegum" hætti. Og hvernig sem á því stendur, bíegöur til hins betra, þegar Unnur kemur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.