Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1979, Side 14

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1979, Side 14
Krossgáta Lesbókar Morgunblaðsins Lausn á síðustu krossgátu »OG HVAÐAN ER MAÐUR- INN“ Framhald af bls. 6 Guömundur Thor- steinsson (Muggur) viö málaratrönurnar, sennilega í votviðri því hann hefur brugðið regn- kápu yfir trönurnar til skjóls. Leiðrétting í frásögn minni Dagur á slóð- um J.S. Bachs í Leabók 27. okt. hefur prentvillupúkinn gert á mig hörðustu árás til þessa. Efsta málsgrein í öðrum dálki (beint undir einkennistákni Lesbókar tengt músik) er svona: „Harð- svíruð er betra". Hvort sem púkanum kann að þykja það Ijúft eða leitt, stendur þarna skýrum stöfum í handriti mínu þessi klausa, sem púkinn hefur alveg sprengt burt: „Harð- svíruð vopnaleit var gerð á hverj- um manni. Á mér tísti nokkuð. Kom þá fát á leitandann en ég dró upp úr vasa mínum lyfjadós úr blikki er á var letrað: Nozinan 25 mg ein tafla fyrir svefn eftir þörfum. Létti þá vopnaleitar- manni og mér svona heldur bet- ur“. Frekari skæruhernað hefur prentvillupúkinn ekki í frammi í frá8ögninni og semjum við því vopnahlé. Sig. Guðjónsson. stigann svo hrikti í og fékk sér pípu. Fjárhagsáhyggjur hvíldu líka þungt á honum og peningaleysi setti svip á þessi ár. Ég minnist þess að einu sinni komu menn frá skattheimtunni og settu kross með krít undir hús- gögnin hjá okkur. Þá varð ég hrædd og undrandi því hann haföi aldrei látiö mig gjalda peningaleysisins — ég var mesta dekurbarn —. Ég spuröi hvort nú ætti aö taka hús- gögnin af okkur, en þaö varö nú ekki. Eiginlega gekk ekki á ööru en víxlum og lánum þennan tíma og pabbi komst ekki úr fjárhagsörðugleikum fyrr en síðustu árin. En hann átti alltaf gott fólk aö. Áriö 1936 varö hann fyrir óhappi og fékk blóðtappa í fótinn. Blóðtapp- inn fór í gegn um hjartað og í lungun og gekk síöan upp úr honum en haföi sært hann mikið innvortis. Þetta var um sumar og ég var þá úti í Danmörku. Þegar Ijóst varö hvaö komiö hafði fyrir var hann orðinn svo veikur að ekki þótti fært aö flytja hann á sjúkrahús svo tvær hjúkrun- arkonur stunduðu hann heima. Þegar ég kom voru mér kennd hjúkrunar- störfin en hann átti í þessum veikind- um í heilt ár og náöi sér reyndar aldrei fylliiega. En hann tók til viö vinnu sína aftur af sömu eljusemi og fyrr og fannst aldrei nógu vel gert. „Ég þyrfti aö veröa 150 ára til þess aö ná góöum árangri," sagöi hann oft. Níní var beðin aö víkja svolítið aö sjálfri sér í Ameríku: „Af mér er þaö að segja aö ég vann í 20 ár hjá útgáfufyrirtæki Bonniers í New York, fyrst í bóka- búöinni en síðan var hún stækkuö og þar haldnar sýningar á allskonar listiðnaöi, húsgögnum o.fl. Ég vann við aö setja upp þessar sýningar og viö útstillingar í glugga ásamt tveimur öörum. Síöan vann ég á teiknistofu sem vinkona mín rekur og sá þar um skrifstofuhald — ég var skrifstofan ef svo má aö orði komast. Nú erum viö Norman bæöi komin á eftirlaun og ég hélt upp á þann áfanga meö því að setjast á skólabekk í menntaskóla. Þaö eru forréttindi þeirra sem hafa náö vissum aldri aö fá aö taka þrjár valgreinar frítt. Ég valdi „humanist- isk“ fög, sögu, bókmenntir og frönsku — tók ekki próf en skilaði ritgerðum og fékk bara sæmilegt fyrir. Nú erum við flutt úr borginni og búum þar sem áöur var sumarbú- staðurinn okkar. Þess má reyndar geta aö í bænum okkar er hús frá 1790 fullbúiö húsgögnum frá þeirri tíð og í húsinu er unniö á sama hátt og þá var gert, eldaö á eldstæöi, steypt kerti, sýnd handbrögö viö vefnað, spunniö o.fl. Skólabörn heimsækja húsiö og þeim sýnt allt sem þar fer fram en húsiö er opið almenningi á sunnudögum. Allt er unniö þarna í sjálfboöavinnu og ég er ein í þeim hóp. Hópurinn er svo stór aö viö skiptumst á og ég vinn ekki þarna nema tvo daga í mánuði. Þá hefur komið sér vel fyrir mig aö ég læröi aö spinna á Þingeyrum þegar viö pabbi vorum á okkar feröalagi. Mér fyndist tilvalið aö komiö yröi upp slíkri starfsemi í Árbæ. Maöurinn minn Norman vann hjá einu stærsta verkfræðifyrirtæki í Bandaríkjunum, ef ekki því stærsta í heimi, viö þaö sem er kallaö „com- bustion engineering". Hann er þó aldeilis ekki iöjulaus þótt hann sé hættur verkfræöistörfum. Hann hefur alltaf haft mikinn áhuga á barnaleik- föngum þ.e. þroskaleikföngum fyrir börn. Nú teiknar hann þau og smíöar „modelin" sjálfur og þaö er mikil listasmíöi — allt úr viði. Hann geymir þau í kössum úti í bílskúrnum — svo bíllinn stendur úti allt árið — og er alltaf aö endurbæta þau — finnst þau aldrei nógu góö til þess aö setja þau á markað —."

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.