Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1980, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1980, Síða 8
Eins og margir vita, bjuggu þau hjónin Valtýr Stefánsson og Kristín Jónsdóttir viö Laufásveginn. Þangaö var ætíð hátíð aö koma fyrir okkur sem vorum að fást við heldur vanþakklát störf í myndlist, að síðari heimsstyrj- öldinni lokinni. Kristín Jónsdóttir list- málari var ein merkilegasta mann- eskja, sem hægt er að kynnast. Hún hafði á unga aldrí brotist til mennta í list sinni úti í þeirri Kaupmannahöfn, sem þá var ekki í þotu-seilingu, ef þannig mætti orða það. Þá var langt til kóngsins, og gullnir turnar glóöu í draumnum um fjarlægðina, listina og menninguna. Þá hluti, sem íslendingar margir hverjir álitu sig vanta til aö geta talist fullveöja þjóð, er væri þess megnug að stýra sínum eigin málum án hjálpar þeirra dönsku. Kristín Jónsdóttir var einn sérstæð- asti persónuleiki, sem ég hef oröiö það lánsamur að fyrirhitta í lífshlaupi mínu. Hún var glæsileg á velli og fluggáfuö. Hún gat tekið þannig á hlutunum að unun var á aö hlýöa. Og hún hafði mjög ákveðnar skoðanir á myndlist og list yfirleitt, sem hvergi voru úr lausu lofti gripnar. Kristín var föst fyrir og kunni allra kvenna best aö halda á málstaö sínum. Hún var vel á verði um þær nýjungar, sem svo tíöar urðu í málverkinu í hennar samtíð. Hún var djörf og framsýn. Óaði sér ekki við að taka upp vettlinginn fyrir okkur yngra fólkið, sem á stundum fórum nokkrar krókaleiöir, svo aö meir sé ekki sagt. Hún var ótrúlega ötul baráttumann- eskja, kjarkmikil, og það sópaði að henni, er hún gekk fram fyrir skjöldu yngri listamanna, sem áttu erfitt upp- dráttar. Hún ræddi þaö oftar en einu sinni viö mig persónulega, hvert þrek þyrfti til að standa í þeirri lífsköliun aö halda listinni ferskri og ungri. Hvað sem hver sagðí, var það örugg trú hennar, að ekkert mætti forpokast í böndum vanans og verða að bráð værukæru borgaralíferni. Ég verö ekki svo gamall, aö ég gleymi því, hve fast Kristín stóö bak viö okkur á þeim stundum, er verulega syrti aö. Ég get til að mynda, komiö hér með eina litla sögu, sem segir sannarlega sitt, þótt ekki sé löng: Þaö var einhverju sinni, aö ég haföi skammað einn af okkar eldri málurum í Morgunblaðinu. Úr þessu varö dálítill hvellur, og margir þutu til og sendu mér þaö óþvegið. Fundum okkar Kristínar bar saman nokkru seinna viö opnun á listsýningu í Listamannaskálanum gamla. Kristín kom brosandi til mín og heilsaði mér með handabandi um leið og hún sagði hátt og snjallt, svo að allir heyrðu: Sæll og blessaður, nú stendur Moggi sig vel. Ekki var svo sest niður á Laufásveg- inum, að myndlistin væri þar ekki til umræðu. Það var Kristín, sem réöi því. Hún vildi fá að kynnast því, hvernig við yngri menn litum á hlutina, og hún var ódeig að halda sínu fram. Það bar oft við í samskiptum okkar, að skoöana- mismunur var mikill. Þá voru málin rædd og enginn meðalvegur farinn. Hver sat viö sitt og framvinda tímans látin skera úr, sem auövitað er eina leiöin, þegar listir eiga í hlut, allt annaö eru sleggjudómar. Ég segi frá þessu nú vegna þess, að þannig kemur mér þaö fyrir sjónir, þegar minningarnar eru teknar fram úr þeirri persónulegu geymslu, sem er einkahólf hvers og eins, ef nota mætti þá samlíkingu. Kristín og Valtýr voru bæði víkingar til verka. Heimiliö var erilsamt, og bæði höfðu þau hjón mikið umfangs. Margir áttu erindi við húsbóndann og húsmóðlrin á Laufásveginum haföi mörg járn í eldi. Hún vann að list sinni, gaf sér tóm til að hugsa mikiö um félagsmál listamanna og sýningar þeirra bæði heima og erlendis. Það má einnig nefna hér, að Kristín Jónsdóttir fylgdist vel með því, sem efst var á baugi í myndlist samtíöarmanna. Hún var á frönsku línunni, eins og kallað var meöal listamanna, þ.e.a.s., Mat- isse, Cézanne og fleiri af því sauöahúsi voru hennar menn. Hún dáði marga listamenn á Norðurlöndum og yrði of langt mál að tíunda það hér. En þeir listamenn, sem ég held, að oftast hafi verið nefndir á heimili Kristínar og þaö meö mestri hlýju, voru Muggur og Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Kristín sótti efniviö í málvek sín, mestmegnis í íslenska náttúru, blóm og mannlíf. Mér veröur þaö minnis- stætt, þegar íslenska sýningin var haldin í Moskvu hér á árunum og þeir þar austurfrá voru heldur fálátir yfir flestu á þeirri sýningu, nema mynd Kristínar frá Þvottalaugunum. Málverk í eigu Listasafns íslands, sem mig minnir aö heiti „Þvottakonurnar". Þaö verk skildu þeir hjá Krútséff og þaö skildum við, aö þeir skildu. En svo vill til, aö einmitt þetta verk er eitt af öndvegis verkum íslenskrar málaralist- ar. í annað sinn á ég svolitla endur- minningu um verk Kristínar Jónsdóttur á erlendum vettvangi, það var í Róm. Árið 1955 var haldin mikil norræn sýning í Róm, og var mikiö um hana rifist hér á landi, eins og venja var á þeim árum ef vandaö var til sýningar. En nú keyröi svó um þverbak, að varla eru dæmi um slíkt í listasögu okkar. Látum það liggja í þögn aö sinni, en Kristín Jónsdóttir stóð sig eins og hetja í þeirri rimmu, og er það löng og merk saga. Svo víkur sögu suður til Rómar. Þarlendur listfræöingur, sem var til aöstoöar viö uppsetningu sýn- ingarinnar, hafði veriö mér innanhand- ar um margt og var oröinn góður vinur, þegar viö höfðum loksins gengið frá undirbúningi og sýningin var tilbúin fyrir gesti. Gengum viö saman um sýningarsalina svona til að renna augum yfir hlutina til aö sannfærast um, aö allt væri nú eins og það ætti aö vera. Þegar viö komum aö verkum Kristínar, staldrar hann við og segir: Hafiö þér tekið eftir, hve sérstæður listamaöur er hér á ferð? Hér er viss litameðferð, sem er svo sérstök, að ég man ekki eftir að hafa séð sambæri- legt áður. Ég bað um nánari skýringar og fékk þær. Og eftir því, sem árin hafa liðiö, hef ég sannfærst betur og betur um, að sá í Róm hafði rétt fyrir sér. Stundum virtist Kristín Jónsdóttir nokkuð hrjúf í dagsins önn, en ef litið er á blómamyndir Kristínar, kemur í Ijós mikil og mannleg hlýja, sem var hennar innsta eðli og meöfæddir mannkostir. Hún haföi mikla reisn, sem kemur vel fram í verkum hennar. En viökvæmni hennar og næmleiki er allsstaöar aö finna í málverkum henn- ar. Það er sama, hver fyrirmyndin er: Landslag, blóm eða mannlíf, hinn mikll persónuleiki Kristínar er hvarvetna fyrir hendi. Vonandi verður þetta ár tll þess, aö þjóöin vakni til meðvitundar um list Kristínar Jónsdóttur, og það er vel til fundiö aö halda sýningu á verkum hennar aö Kjarvalsstööum á Listahátíö. Kristínu Jónsdóttur hefðl þótt vænt um það. Hún átti sinn þátt í, að nýr Listamannaskáli hefur risiö, en þaö er margþætt saga og of löng til aö veröa rakin hér. Valtýr Pétursson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.