Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1980, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 31.05.1980, Qupperneq 13
Honda Civic hefur veriö endur- hannaður, en breytingar veröa samt að teljast mjög litlar á árgerö 1980. ARSINS úr flokki innfluttra bíla í Bandaríkjunum Bandarísku bílablööin velja á ári hverju bíla ársins, bæöi úr flokki hinna innlendu og þeirra, sem fluttir eru inn frá útlöndum. Bílainnflutning- ur til Bandaríkjanna er geysilega mikill, einkum frá Japan og áhugi Bandaríkjamanna á litlum bílum frá Evrópu og Japan hefur valdiö þeim þungum áhyggjum í Detroit. Blaöiö Motor Trend valdi sjö bíla úr allri súpunni meöal innfluttra geröa og þá voru lagöar til grundvallar ýmisskonar nýjungar og framfarir, sem höfðu átt sér staö. Annaðhvort var verið aö hefja innflutning á þessum bílum til Bandaríkjanna (Rov- er 3500) eða þá aö gerðar höföu veriö gagngerar breytingar frá fyrra ári og taldar horfa til framfara. Athyglisvert er og um leið tímanna tákn, aö af þessum sjö bílum eru fimm frá Japan, einn frá Vestur- Þýzkalandi og einn frá Bretlandi. Nýja geröin af Honda Civic varö yfirburöa sigurvegari í stigakeppn- inni, sem síðan fór fram, byggöri á prófun í tíu atriðum. Svo miklir voru yfirburöir Hondunnar, að hún varö í efsta sæti í sex greinum prófsins, en í öðru sæti í fjórum. í fyrsta lagi komst Hondan lengst á galloni af bensíni, en Roverinn er þar eðlilega í síöasta sæti, enda stór bíll og búinn 8 strokka vél. í ööru lagi var Hondan fljótust aö hemla á 100 km hraöa (Hemlunarvegalengd 150 fet). Einnig þar varö Roverinn í aftasta sæti. í þriöja lagi varö Hondan fyrst í ööru hemlunarprófi, nú á 30 mílna hraöa. Þá þurfti Hondan aðeins 38 fet til stöövunar og var langfyrst. Toyota Tercel varö síðastur meö 50 fet. í fjóröa lagi varö Honda hæst við gæðaprófun meö 834 stig, en lægst- ur varð Subaru meö 695 stig. í fimmta lagi fékk Hondan flest stig fyrir hönnun, eða 413, en einnig þar varö Subaru í neösta sæti meö 298. í sjötta lagi var metiö dollaraviröi (dollar value) og þar kom Honda bezt út en Audi 4000 lakast. Auk þess var prófaö í beygjuakstri á „svigbraut“ og þar var Honda í 2. sæti á eftir Rover 3500, sem stóð sig best, en Toyota Tercel varö síðastur í þeirri grein. Varöandi þægindi lenti Honda í 2. sæti á eftir Audi 4000, en Subaru varö aftastur. Þá var og prófuö mýkt og ökuhæfni og kom Roverinn best út úr þeirri prófun en Honda var í 2. sæti. Þegar öll stig voru lögð saman, sigraöi Honda Civic meö 93,179 stigum, í 2. sæti varð Mazda 626 meö 86,866 stig, í 3. sæti varö Rover 3500 meö 86,833 stig, í 4. sæti varö Audi 4000 meö 86,591 stig, í 5. sæti Toyota Tercel meö 85,253 stig, í 6. sæti Datsun 200 SX meö 81,804 stig og í 7. sæti Subaru meö 75,554 stig. IMPORT CAR OF THE YEAR: TEST RESULTS IMPORT CAR OF THE YE AR POINTS/STANDINGS 65,000 70,000 75,000 80,000 85,000 90,000 95,000 100,000 1 I 1 1 1 1 HONDA CIVIC (93,179) y- MAZDA 626 (86,866) ROVER 3500 (86,833) AUDI 4000 (86,591) TOYOTA TERCEL (85,253) DATSUN 200SX (81,804) SUBARU GL (75,554) I T............ I Laufey Steingríms- dóttir, næringar- fræöingur MJÓLK MEÐ MAT Telst þaö ósiöur, aö fullorönir drekki mjólk meö mat? Síst af öllu tel ég aö mjólkin eigi svo haröan dóm skiliö, en þó birtist þessi yfirlýsing í myndatexta er fyigdi viötali viö undirritaða í Lesbók Morgunblaösins þann 18. apríl 1980. Blaöiö telur sig hafa haft þetta eftir mér, en þaö er byggt á misskilningi. Mjólkurneysla íslendinga hefur oröiö fyrir töluverðu aökasti síðastliöin ár, og víst er þaö, aö margir neyta óhóflega mikils mjólkurmatar. Mjólkin er, eins og allir vita, orkurík og nokkuð feit fæöa og leggur þar meö sitt af mörkum til söfnunar aukakílóanna. Hins vegar eru mjólkurafurðir meöal næringarríkustu, kalk- og vítamínríkustu fæðutegunda sem völ er á. Þaö er því alrangt aö halda því fram, aö fulloröiö fólk eigi ekki aö drekka mjólk. Þaö þarf aö vísu aö stilla mjólkurneyslunni í hóf, rétt eins og neyslu annarra matvara, og er þá gjarnan miöaö viö aö hæfilegur dagskammtur fulloröinna jafngildi tveim mjólkurglösum, eöa sambærilegu magni annarra mjólkurvara, en dagskammtur barna, unglinga og vanfærra kvenna jafngildi þrem glösum. Samkvæmt þeim útreikningum, sem geröir hafa verið á íslensku faBöi, þá er mjólkurneysla íslendinga aö öllum jafnaði a.m.k. helmingi hærri. Þar með telst aö sjálfsögðu ostur, en ostur ofan á eina brauösneiö jafngildir t.d. háifu mjólkurglasi, aö ótöldum öörum mjólkurvörum svo sem súrmjólk, skyri og jógúrt. Þaö er því óhætt aö fullyrða aö ýmsir gætu sér aö skaölausu dregið töluvert úr mjólkurþambinu. Ofneysla mjólkurvara er þó í sjálfu sér ekki helsti meinbugur á íslenskum matarvenjum, heldur miklu fremur hitt, aö hér skuli enn ekki vera á boöstólum fituskert mjólk, eöa svokölluö léttmjólk. Meö tilliti til okkar miklu mjólkurneyslu er oröiö tímabært aö viö fetum í fótspor nágrannaþjóða okkar og gefum fólki kost á fjölbreyttara úrvali fituskertra mjólkurafuröa. • v

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.