Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1980, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1980, Síða 6
SKAK Margeir Pétursson Viðureign Horts og Kavaleks í Þýzkalandi Hér með hefst í Lesbókinni þáttur, þar sem teknar verða fyrir athyglisveröar skákir úr nýlegum skákmótum. Aöeins ein skák birtist í hvert sinn þannig að unnt er að gera hverri þeirra beyti skil en unnt hefur reynst í skákdálkum Morgun- blaðsins vegna þrengsla. Skákfréttir og skákir þeim tengdar munu þó halda áfram að birtast í aöalblaðinu, auk þess sem helstu skákviöburöa er jafnan getiö í hinum almennu fréttadálkum blaðsins. Skákin sem verður efni þessa fyrsta þáttar er fyrir margar sakir athyglisverð. Hún var tefld í marz í vestur-þýzku deildakeppninni. Slíkar flokkakeppnir hafa aldrei náð miklum vinsældum meðal skákmanna, enda skáklistin í eðli sínu einstaklingsíþrótt. Mörgum þykir þó slík keppni góö tilbreyting og deilda- keppnir svo sem sú íslenska skipa nú fastan sess í starfsemi flestra skáksam- banda. Venjuiega eru þaö aðeins áhuga- mannafélög sem taka þátt í slíkum keppnum, en í Vestur-Þýzkalandi er deildakeppnin aðalskákviöburöurinn á hverjum vetri og taflfélögunum í landinu mikiö kappsmál aö standa sig þar sem bezt. Hafa þau því gripiö til þess ráös aö fá til liös viö sig erlenda stórmeistara og láta þá tefla fyrir sig á háu kaupi til þess aö fá sem flesta vinninga. Því er þó ekki aö neita aö þaö kemur mörgum spánskt fyrir sjónir aö menn fari landa á milli aöeins til þess aö tefla eina skák. Skákin í dag er einmitt á milli tveggja slíkra aðkeyptra meistara, þeirra Horts, sem teflir fyrir Oporz og Kavaleks, sem er á launaskrá í Solingen. Reyndar eru þeir báöir Tékkar, en Kavalek fluttist til Bandaríkjanna 1968 og Hort hefur að undanförnu búið í V-Þýzkalandi. Venju- lega þegar þessir tveir landar hafa mætst á mótum hafa þeir samiö janftefli eftir fremur stuttar viðureignir, enda ágætir vinir. Að þessu sinni tóku forráðamenn Porzklúbbsins þó ekkert friðarhjal í mál og Hort varö aö hafna jafnteflisboöi félaga síns, er staöan var 2:1 fyrir Solingen. Þeir félagar eru báðir vel kunnugir Kóngsindversku vörninni, sem uppi varö á teningnum. Hort meö hvítu, og Kavalek meö svörtu. Hinn fyrrnefndi beitti uppá- haldsafbrigöi sínu, Samisch afbrigöinu, en 6. f3 markar upphaf þess. Hort hefur dálæti á leiknum 9. d5, hann beitti honum t.d. í skák viö Júgóslavann Bukic á skákmóti árið 1977, en þar varö framhaldiö 9.... Re5, 10. Rg3 — 6c, 11. f4 — Reg4, 12. Ba7! — Ha8, 13. Bgl — h£, 14. h3 — Rh6, 15. Bd3 og hvítur stóö betur. Kavalek lumaöi á endurbót og uppskar ágæta stööu eftir framhjáhlaup- ið 13. dxe6 — fxe6, þar eö 13. h3 gekk ekki vegna exf4, 14. Dxf4 — Re5. Hvítur.kæröi sig ekki um aö stööva framrásina b6 — b5 í 19. leik, meö því að leika 19. a4 — Bc6, 20. Bf3 — Hfc8, 21. Dd3, en lagði hins vegar gildruna 19. Bf3 — Bc6, 20. e5! — Bxf3, 21. exf6 fyrir svart. Hin djarfa veiking 20. .. . h5l? var liöur í viöleitni svarts til þess aö grafa undan hvíta miöboröinu. 23. leikur svarts, e6 — e5 veikti vitanlega d5 reitinn, en hvítur hótaöi sjálfur 24. e5l, 26. exd5? gekk ekki vegna hins skemmtilega gaffals 26.. e4 sem vinnur liö. Eftir 28. ... Bc8 hótaöi svartur 29. ... c4 þannig aö hvítur sá sig tilneyddan til aö víkja biskupnum til e2. Staðan virtist nú fyllilega í jafnvægi, þar eö öflug staö- setning svarta riddarans á e5 vó upp hina veiktu kóngsstööu svarts. í stööunni á stöðumyndinni hafnaði hvítur boöi svarts um þráleik og lagöi út í tvísýnar aðgeröir. Tímahrakið kom nú til sögunnar, en keppendur uröu aö Ijúka 50 leikjum fyrir fyrri tímamörkin. Hort reyndi síöan enn aö slá ryki í augu Kavaleks meö 41. Re6! en sá síðarnefndi brást hárrétt við og eftir 43. ... Hd8 virtist svartur eiga jafntefli í hendi sér. En nú fóru undarlegir hlutir aö gerast, í staö 44. Bg3 tók hvítur mikla áhættu meö 44. Df4?! þar eö eftir 44. . . . Hxd6, 45. Dxd6 — Dxe2, 46. Dd8+ — Bf8, 47. Df6 — De7 eöa 47. Ha1 Kg7 hefur hvítur engan veginn nægileg færi fyrir skiptamuninn. Eftir 44. . . . Bxd5? 45. Bc4! lék svartur síðan tapleiknum 45. . . . Bxc4?, en hann gat enn haldiö jafnvægi með 45.. . . De6 í framhaldinu heföi svartur átt að láts sér nægja peðstap og leika 47. ... Kg8 staö 47. ... Bh6? sem gerði hvíti kleifl aö Ijúka skákinni samstundis meö 48 He1! Eftir 48. Bf4 leysti Df8 engan vands vegna 49. Hf3! og er skákin fór í biö eftir 51. leik svarts -var Ijóst aö Hort haföi auöunnið tafl. Skemmtileg hrókstilfærsla í 57. leik tryggöi síðan sigurinn. Spenn- andi skák, en auðvitaö ekki gallalaus. Þessi vinningur nægði þó Porz- mönnum ekki, því aö þó aö Hiibner ynni Hecht á ööru boröi gekk þeim illa á neöri boröunum og keppninni lauk meö sigri Solingen, 5:3. Hvítt: Vlastimil Hort Svart: Lubomir Kavalek Kóngsindversk vörn 1. d4 — Rf6, 2. c4 — g6, 3. Rc3 — Bg7,4 e4 — d6, 5. f3 — 0-0, 6. Be3 — Rc6, 7. Rge2 — a6, 8. Dd2 — Hb8, 9. d5 — Re5, 10. Rg3 — c5, 11. f4 — Reg4, 12. Bgl —• e5, 13. dxe6 — fxe6, 14. h3 — Rh6, 15. Be3 — Rf7,16. Be2 — b6,17.0-0 — Bb7, 18. Had1 — De7,19. Bf3 — b5, 20. b3 — h5, 21. Dd3 — h4, 22. Rge2 — b4, 23. Ra4 — e5, 24. Rb6 — Bh6, 25. Rd5 — Rxd5, 26. cxd5 — exf4, 27. Rxf4 — Re5, 28. Dd2 — Bc8, 29. Be2 — a5, 30, Kh1 — Bg7, 31. Rd3 — Rf7, 32. Rf4 — Re5, 33. Rd3 — Rf7. 34. 05 — Rxe5, 35. Bg5 — Hxf1+, 36. Hxf1 — De8, 37. Bxh4 — Bf5, 38. Rf4 — a4, 39. Bg3 — axb3, 40, axb3 — Ha8, 41. Re6 — Bxe6, 42. Bxe5 — Bf7, 43 Bxd6 — Hd8, 44. Df4 — Bxd5, 45. Bc4 — Bxc4, 46. Dxc4+ — Kh7, 47. Dh4+ — Bh6, 48. Bf4 — g5, 49. Bxg5 — Hd6, 50. Bxh6 — Hxh6, 51. Dg4 — De7, 52. Hf5 (biðleikur) Hg6, 53. Df4 — Kg7, 54. Kh2 — Dd6, 55. Dxd6 — Hxd6, 56. Hxc5 — Hd3,57. Hg5+ — Kf6, 58. Hg3 — Hc3,59. h4 — Kf5, 60. h5 og avartur gafst upp. Endre Nemes viö vinnu sína. Hljóðlátur kom, sást ekki, og fór fyrir ofan garð í maímánuði síöastliönum fór fram í Norræna Húsinu og á vegum þess einhver fyrirferöarminnsta listsýning í sögu þessa ágæta húss. Og þegar rætt er um fyrirferö, þá er ekki átt viö plássiö sem hún tók eöa fjölda mynda, heldur þaö, aö hún fór hreinlega fyrir ofan garö og neöan. Veröur aö telja þaö heldur sorglegt í Ijósi þess, aö þarna var á feröinni einhver merkasta sýning frá útlandinu, sem okkur hefur veriö gefinn kostur á í áraraöir. Endre Nemes hefur fundiö svo persónulega ieiö, aö hann líkist ekki neinum, — og enginn líkist honum þaö ég veit. Hann er hliöstæður Erró aö því leyti, aö hver mynd er saman sett úr urmul smámynda; annars eru þeir ólíkir og Nemes hefur tileinkað sér „malerískari" leið aö markinu. Þetta eru myndir, sem útheimta mikinn tíma og gott næöi, enda synd aö segja, aö þaö væri ekki fyrir hendi. Það stund- arkorn, sem ég dvaldist viö hina dulúðugu fegurö í myndheimi Nemes- ar, kom ekki nokkur lifandi sála inn í sýningarsal Norræna hussins. Þó var þaö á helgidegi. Og einn af myndlistar- mönnum okkar, sem lagöi leið sína þangaö og dvaldist lengi, sagöi svo frá, að svefnhöfgi sótti á hann í einverunni; hann settist á stól og svaf þar góöa stund án þess aö nokkur raskaöi ró hans. Þaö er góðra gjalda vert að stofnan- ir eins og Kjarvalsstaöir og Norræna Húsiö fái hingað verk framúrskarandi listamanna. Ekki veitir nú af í afskekkt- inni. En um leið veröur aö gera sér Ijósa þörfina á rækilegri auglýsingu til þess aö heila gilliö fari ekki fyrir ofan garö og neöan. Á sama tíma og Nemes sýndi hér, eöa aðeins fyrr, var Ivan Rebrof á ferðinni og hlaut fádæma viötökur. Kannski er þaö ekki alveg sambærilegt; söngur höföar ugglaust meira til fjöldans. En sé litið á þann mikla mun, sem þarna varö á athygli og aösókn, mætti halda, aö íslend- ingar væru fullkomlega vanþróaöir í myndlist og heföu nánast lítiö frétt af því fyrirbæri. Fáein orð um Endre Nemes og sýningu hans í Norræna Húsinu Eftir Gísla Sigurösson Endre Nemes kom sjálfur til Islands aö vera viöstaddur opnun sýningarinn- ar og nokkra daga til viöbótar. Hann fylgdist meö aðsókninni og þaö var dapurlegt aö vita til þess aö svo ágætur gestur væri aö telja á fingrum annarrar handar þá, sem hann sá slæöast innúr dyrum. Sennilega telur hann íslandssýninguna ekki mjög merkan áfanga á ferli sínum. Endre Nemes er fæddur í Ungverja- landi 1909 og nálgast nú sjötugt. Kornungur barst hann meö sínu fólki til Tékkóslóvakíu; átti þar heima til 1924, en sneri þá aftur til fööur síns í Ungverjalandi og lauk stúdentsprófi í Budapest 1927. Raunar hét hann Nágel, en tók upp listamannsnafnið Nemes 1928 og tók aö skrifa. Hann gaf út Ijóöabók, fékkst viö blaöa- mennsku og síöar við skopmyndagerö. Frá 1930—35 stundaði Nemes nám viö listaakademíiö í Prag og fyrstu sýningu sína hélt hann 1936. Höfuðborg Tékka var um þetta leyti mikil menningar- og listaborg í gam- algrónum Evrópustíl. En nú fóru í hönd viösjárverðir tímar og ekki langt aö bíöa þess, aö Hitler hremmdi landið í upphafi útþenslu sinnar. Nemes gat ekki unaö viö þaö ástand, sem upp kom og flýöi land; setti kúrsinn á Finnland og kom sér * þar fyrir sem málari, en sýndi í Noregi og eignaöist vini þar. Af einhverjum ástæöum var hann talinn óæskilegur í Framhald á bls. 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.