Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1980, Page 9
'■v:
Sjá einnig bls. 10.
Gamla samkomuhúsið á Húsavík með tvístæðri röð
bogadreginna glugga er sérkennilegt og verður vonandi
varðveitt. Ungmennafélagiö Ófeigur í Skörðum byggði
það 1927—28 og eftir aö hafa afhent þaö Húsavíkurkaup-
stað, lognaöist félagið útaf, en upp reis íþróttafélagið
Völsungur. Því miður þurfti endilega aö reisa það á lóð,
þar sem þá stóö eitt merkasta húsið í plássinu,
svokallaður Baukur. Það hafði veriö byggt sem sýslu-
mannsbústaður og var með elztu timburhúsum á
Húsavík. Þegar Benedikt Sveinsson varð sýslumaður,
keypti hann jöröina Héöinshöfða og flutti embættíð
þangað, en þá keypti húsið Sveinn Víkingur, faöir
Benedikts Sveinssonar alþingismanns og ráku hann og
Kristjana kona hans þar veitingasölu og einnig var hægt
aö fá þar gistingu. Þá var brennivín selt í staupum, en
Húsvíkingar nefndu þau bauka og vínsöluna baukasölu
og dró húsið nafn þar af. Bjarni Benediktsson kaupmaö-
ur á Húsavík eignaðist síðan húsið og lét verkafólk búa
þar, en þegar sú krafa kom upp, að Baukurinn yröi að
víkja fyrir samkomuhúsinu, lét Bjarni taka það í sundur í
flekum og úr þeim var síðan smíðuð verbúö við höfnina.
Beint á móti samkomuhúsinu, sem missti hlutverk sitt
meö tilkomu félagsheimilisins í sambýli viö hótelið,
stendur útibú Landsbanka íslands á lóö, þar sem eitt
sinn var tugthús Húsavíkur. í sögu þess var aöeins einn
fangi geymdur þar, en hann var dæmdur uppá vatn og
brauð í 14 daga og dómnum framfylgt. Fyrir það hlaut
sýslumaður ákúrur stiftamtmanns, þar sem ekki var
leyfilegt að loka mann inni uppá vatn og brauð lengur en
viku.
næstefst:
í vitund eldri Þingeyinga og Húsvíkinga er þetta hús og
verður sýslumannshús og ekki annaö. Þaö var reist í
byrjun aldarinnar og gerði það Sigurjón Þorgrímsson frá
Hraunkoti. Húsið ætlaði hann til hótelhalds og var það
skýrt Fensalir. En skömmu eftir Í1920 keypti húsiö
ástsælt yfirvald Þingeyinga, Júlíus Havsteen og bjó hann
þar sína embættistíð. Meðan Júlíus gegndi embættinu,
var sýsluskrifstofan einnig í húsinu.
neöst til vinstri
Gamli barnaskólinn, byggður 1906. í fyrstu var húsið
byggt ofaná háan kjallara og því hærra þá. En þegar
byggður var nýr barnaskóli, var þeim gamla breytt í
íbúðarhús.
neðst til hægri
Stórhugur og glæsibragur einkennir skipulagið í mið-
hluta bæjarins og vegna þess nýtur hin fagra Húsavík-
urkirkja sín eins og vert er.