Lesbók Morgunblaðsins - 21.06.1980, Side 11
— Endre Nemes
Framhald af bls. 6
Finnlandi til langframa. Hann leitaði þá
á náðir Norðmanna og þar var tekiö
við honum, en 6 dögum síðar gerði
Hitler innrás. Nemes brá við skjótt og
gerðist sjálfboöaliði í norska hernum,
en viö uppgjöf hans, flýði hann enn og
í þetta sinn yfir til Svíþjóöar. Þar kom
hann sér fyrir og átti þátt í að mynda
listamannahóp, sem kallaðir voru Út-
lagarnir og voru menn, sem svipað
stóð á um. Síöan hefur Endre Nemes
haldiö geysimargar sýningar, bæöi þar
og annarsstaöar og í sumum tilfellum
veriö einasti fulltrúi Norðurlanda á
alþjóölegum samsýningum. Hann varð
sænskur ríkisborgari 1948 og hefur
látiö mikiö til sín taka í samtökum
listamanna þar í landi. Um tíma var
hann kennari viö Valand listaskólann í
Gautaborg og veitt nafnbótin Prófess-
or í listum.
Alf-Jörgen Aas, sem skrifar pistil um
Nemes í bók um hann, segir þar aö
Nemes hafi veriö „svo duglegur að það
var pirrandi". Hann reyndi allar hugs-
anlegar aðferöir í myndlist: lagði
gjörva hönd á grafík, málverk, klipp-
myndatækni og teikningar. Hann fór til
Spánar og stúderaði Stucco-tækni
vegna útimynda; einnig emaleringu og
notkun á rharmara. Hann var einum of
duglegur og það kallar alltaf á sömu
viöbrögö eins og við þekkjum harla
vel. Einn kunnasti málari Svíþjóöar
sagði við fyrrnefndan Alf-Jörgen Aas,
aö myndir hans væru ó-sænskar, aö
hann ætti ekki að hafa leyfi til að telja
sín verk sænsk og jafnvel aö þaö ætti
að reka hann úr landi.
Vel er það kunnugt, aö Svíar hafa
ekki haft af miklu að státa á myndlist-
arsviðinu á liðnum áratugum og
kannski svíður þeim það, aö Endre
Nemes, sem er eitt stærsta nafniö í
sænskri myndlist síöustu áratuga,
skuli ekki vera Svíi í raun og veru. En
þegar betur er aö gáö, þá geröi El
Greco garðinn frægan á Spáni — og
gerir enn — en hann var raunar Grikki
eins og nafnið segir til um.
Ekki eru allir á eitt sáttir um að
Endre Nemes sé súrrealisti; sumir
þeirra sem skrifa í bókina fyrrnefndu,
telja að í raun sé engin sérstök hilla til
handa honum og vilja kenna hann viö
fantasíu fremur en súrrealisma. Það
kann aö vera mjótt á munum þarna, en
hitt er víst, að Nemes vinnur alveg í
anda súrrealistanna, en viöurkennir
sjálfur, að oft sé myndmálið táknrænt.
Fyrst og fremst er þaö þó myndrænt
og vinnubrögðin aldrei vélræn eins og
stundum vill verða í nútímalegri mynd-
list af þessu tagi.
í Norræna Húsinu sýndi Nemes
einnig klippmyndir, sem ekki gáfu
þeim máluðu eftir. Og klippmyndirnar
hafa greinilega orðiö honum upp-
spretta, sem honum gagnast vel aö
ausa af. Eins og aö líkum lætur, hefur
honum áskotnast ýmiskonar heiður í
seinni tíö: Boö um að sýna á Docu-
menta II í Casel og í Kunstnernes Hus
í Osló. Hann hefur sýnt í ísrael, í
Motreal í Kanada og síöast en ekki sízt
í heimalöndum sínum, sem veröur að
telja tvö: Ungverjaland og Tékkóslóv-
akíu. Nú vilja þeir gjarnan eigna sér
hann á gömlu heimaslóöunum og hafa
beitt sér fyrir yfirlitssýningu á verkum
hans í Prag. Norræna Húsið á þakkir
skildar fyrir að hafa stuðlaö að því aö
gefa okkur kost á að sjá þessi
mögnuðu verk í Vatnsmýrinni en
vonandi hendir þaö slys ekki aftur, aö
svo merkur menningarviöburður detti
uppfyrir.
Gísli Sigurðsson.
- Æi, nú er ég ekki
með tölvuna -
Sezt ekki ryö á maskínuna í
höföinu, ef vélin á borðinu eða
tölvan í vasanum er látin leysa hana
af hólmi, fyrst í skóla síöan í starfi.
Tapast ekki minni, ef unglingar
læra aldrei neitt utanbókar, minnk-
ar ekki hugsanaskerpan, ef hlaupiö
er meö einföldustu hugardæmi í
tölvur?
Kynslóö eftir kynslóö tyggur
gamalt fólk sömu tugguna „allt var
ööruvísi og betra í mínu ungdæmi,
uppeldið, vinnusemin, sparsemin,
þrekið og allur manndómur. “ Þetta
eru mannlegar hillingar sem fylgja
ellinni, en hefurgamalt fólk aföllum
kynslóðum rangt fyrir sér? Það
getur varla verið. Ef um væri aö
ræöa stööuga framför með hverri
einustu kynslóð og aldrei bakfall,
hlyti mannkynið aö vera betur á
vegi statt miðaö við þekkta fortíð
en reynd er á. Það er því eflaust
rétt kenning, að kynslóðirnar
stökkvi fram og til baka eftir
aðstæðum. Gott er einnig að vona,
að það sé rétt, að stökkin framávið
frá því sögur hófust af manninum,
séu orðin hænufetinu lengri en
stökkin afturábak.
Nútíminn er ævinlega íloftinu, og
í framtíöinni mælist, hvort hann
hefur stokkiö fram eöa aftur, en
hvort heldur nú er, að viö sem lifum
erum að stökkva fram eða aftur,
vitkast eða heimskast miðað við
næstu forfeður, þá skulum við
treysta því aö það komi kynslóö,
sem jafnar metin og síöan enn
önnur, sem stekkur hænufetinu
lengra fram. En það var þetta með
þjálfun minnis og skarpleika.
í verzlun: Tvær stúlkur um tvítugt
aö verzla. Þær ætluðu báðar að
kaupa sama hlutinn og spurðu um
verðiö á honum. Það reyndist 995
krónur. Þá segir önnur:
— Höfum við nóga peninga?
Hvaö ætli þetta sé mikiö saman?
Hin greip ósjálfrátt til tösku
sinnar, en áttaöi sig og sagöi:
— Æi, nú er ég ekki meö tölvuna.
Afgreiðslukonan, sem var á þeim
aldri, að hún hafði alizt upp við að
nota heilann til daglegs brúks,
heyrði samtalið og kom stúdentun-
um til hjálpar:
— Tvisvar 995 eða 1990, stúlk-
ur mínar.
Stúlkurnar urðu ókvæða við svo
skyndilegri lausn á flóknu máli og
reyndust hafa næga peninga. Af-
greiðslukonunni lék hugur á að
vita, hvort þær hefðu íraun og veru
verið í vanda með aó leysa þetta
dæmi í huganum. Þær sögðu þá
báöar, aö þær heföi ekki borið viö í
þrjú ár að reikna eitt eða neitt í
huganum, ekki smæstu tölur, ævin-
lega gripið til vasatölvunnar. Mað-
ur, sem heyrði á þetta tal, spurði:
— „Ætlið þig í framhaldsnám?“
Það læddist að honum, voóalegur
grunur.
— Já, þær bjuggust við því,
„eitthvað höldum við áfram. “
— Ætlið þið í fiskifræði?
— Ja, því ekki það.
í banka: Það var maöur með
svonefnt spariinnlegg í banka og
það var um daginn að hann fór til
að fá lán út á það. Stúlka ein,
laglegasta hnáta, afgreiddi hann,
þegar henni gafst tími til frá
mikilsverðu símtali. Hún útfyllti fyrir
hann umsóknarform um lánið. Þeg-
ar aö því kom að skrifa á formið
innleggsupphæðina, sagðist hann
hafa lagt inn 25 þúsund krónur á
mánuði allt áriö, eins og ráð er fyrir
gert í þessum lánsformi. Honum
láðist að nefna heildarupphæðina
og stúlkan kallaöi: (nöfnum breytt)
— Gunna, geturðu fariö með tólf
sinnum tuttugu og fimm í vélina
fyrir mig?
— Nei, sagöi Gunna, ég er með
í vélinni, hún Ásta getur þetta í
sinni vél. Og Ásta gat þetta. —
Þetta eru þrjú hundruð þúsund —
kallði hún, og hin endurtók til vonar
og vara áður en hún skrifaði töluna.
— Þrjú hundruð þúsund, sagðirðu
þaö? Já, þrjúhundruð þúsund. —
Og þá var nú þetta komiö á hreint
og stúlkan skrifaði óhrædd og
ákveðiö töluna þrjú hundruö þús-
und í formið og maðurinn skrifaði
undir.
Ungu fólki finnst ekkert tiltöku-
mál, þótt gráhæröir karlar spyrji
asnalegra spurninga, það er reynd-
ar sjálfpefiö, og maðurinn spurði:
— I hvaða skóla varst þú bless-
unin mín?
Hún nefndi skólann og sagöist
hafa útskrifast nú í vor.
— Af hverju spyrðu?
— Þaö er nú bara af því, sagöi
karlinn, að ég hélt að mín kynslóð
væri sú vitlausasta, sem ,heimurinn
hefði alið, en ég held hún sé að
tapa metinu.
Eins og að líkum lætur skyldi
stúlkan ekki svona langsótta at-
hugasemd, hún komst ekki með
harta í vél, og lét henni því ósvarað.
í þósthúsi: — Ég ætla aö fá 10
frímerki innanlands (þau kostuðu
þá 190 krónur stykkið, hvað sem
þau kosta nú, þegar þessar línur
eru ritaðar viku seinna).
Elskuleg stúlka, íslenzkar af-
greiðslustúlkur eru yfirleitt elsku-
legar, þegar þær hafa tíma til þess
fyrir símanum — afhenti þessi tíu
frímerki greiðlega, en í stað þess
að nefna upphæðina strax, sneri
hún sér að rafmagnsvélinni sinni,
stimplaöi inná hana og lét hana
velta tölunni 190 tíu sinnum og þá
hafði hún fengið vissu um útkom-
una og gat nefnt hana af öryggi.
— Hvað hefðirðu gert, sþurði
kúnninn, ef ég hefði keypt þúsund
frímerki?
— Það er hérna önnur vél, sem
margfaldar líka, sagði stúlkan kurt-
eislega, en mér fannst ekki taka því
að fara í hana.
Þessi stúlka reyndist ekki komin
langt á menntabrautinni. Hún lýkur
ekki sínu fjögurra ára mennta-
skólanámi fyrr en næsta vor og á
því eftir heilan vetur til að læra aö
margfalda í huganum tíu sinnum
hundrað og níutíu. Það er þó borin
von henni lánist þaö, fyrst henni
hefur ekki tekist það, í barna- og
unglinganáminu og þessum þremur
árum, sem hún hefur verið í
menntaskóla.
Ásgeir Jakobsson.