Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Page 2
Daginn sem þrumuveörið mikla gekk yfir Vínarborg skoðaði ég Fíg- aróhúsið. Það hellirigndi og Stefáns- dómkirkja var haröleg og köld. Skammt frá henni er þröng gata og við götuna er óhrjáleg húsaröð. í einu húsanna bjó Mozart árin sem Brúð- kaup Fígarós varð til og hinir dýrlegu kvartettar tileinkaðir Haydn. Bústaður Mozarts er á þriðju hæð. Fyrst er fariö um saggasaman gang og upp þreyttan stiga. En íbúö meistarans er stærri en ég bjóst við og hlýtur aö hafa þótt sæmileg vistarvera aö þeirra tíma hætti. Þarna voru nokkrir húsmunir fjölskyldunnar, fjöldi mynda af fólki og atburðum í lífi Mozarts og auðvitað sýnishorn af handritum hans. Safnið er þó fremur formlegt og kuldalegt eins og flest söfn af svipuöu tæi. í þessum húsa- kynnum hittust Mozart og Beethoven og sáust aldrei aftur að því er flestir telja. Ég lét hugann reika til þeirra manna og málefna er sköpuðu húsinu sögu. Þá bar fyrir mig sýn. Ég sá Mozart. í nokkur andartök leit ég skýra mynd hand líða um vinnustof- una. Yfirbragö hans var ákaflega hugsandi og alvarlegt. Myndin hvarf jafn skyndilega og hún birtist, og ég varð furðu lostinn. Þó svipuð atvik hendi mig stundum komu áhrif þess- ararýmr mér á óvý ~ ^ mM( & róti á þeim hugmyndum er ég hafði gert mér um þennan mann og tónlist hans. Ég var vanur að sjá Mozart sem áhyggjulausan og glaðværan snilling er samdi meira blátt áfram tónlist en nokkur hinna miklu meistara. En yfir þessum manni hvíldi þungur ein- manaleiki og djúp heimshryggð. Þaö var eins og hann væri dæmdur til þeirra örlaga að vera af engum skilinn, vera sjáandi en ekki séður. Mannkyniö fær seint þakkað þá birtingu eðlileika og jafnvægis er ríkir í list Mozarts. Maður fær á tilfinning- una að þar syngi hamingjusamur maður er hlotið hafði sjaldgæfa blessun. En þaö er aðeins hálf sagan. í bréfum Mozarts og öðrum upplýs- ingum sem til eru um ævi hans má nokkuð greina skapgerð hans og viðhorf. Sumir kynnu að undrast hve þar er allt hversdagslegt, jafnvel frumstætt og barnalegt. Þaö er fátt í þessum bréfum sem bendir til þess að höfundur þeirra sé einhver feg- ursti snillingur mannkynsins. Og þaö er einmitt kjarni málsins. Mozart var dæmigeröur hversdagsmaður. Hann kannaði ekki ókunna stigu. Hann bylti engu við. En hann felldi saman. Alls engum hefur sem honum tekist aö fella tilfinnlngar sínar i*'- —„ega að vnja og viti. Þegar viö heyrum tóna hans er það sviþað og heyra andar- drátt náttúrunnar í kyrrö. Þaö er eðli náttúrunnar aö starfa hljóðlega. Hún fer hamförum aöeins þegar upplausn ríkir. Lognskír sumarmorgun er þó hlaðinn jafn streymandi orku og geisandi vetrarnótt. Hversdagslegt ástand náttúrunnar er látleysi sem veit ekki af sér. Maðurinn er hluti þessarar heildar. Honum er líka sjálfsagt að starfa án strits. Blátt áfram líf er hamingja. Og Mozart var svo eðlilegur hversdagsmaöur í svo öruggu jafnvægi lífsaflanna að fyrir honum var líkami og sál, gleði og sorg, sæla og þjáning ekki aðskilið heldur órjúfandi eining þess sem við köllum líf, ekki einhvers afbrigðilegs snillingslífs heldur hins átakalausa lífs venjulegs manns er starfar í sátt við lög náttúrunnar. Þó var eitt, og aöeins eitt, með frávikum í fari Mozarts er greindi hann nokkuö frá ööru fólki, það var snilligáfa hans í tónlist. Og það var þessi náðargjöf sem geröi hann einhvern mesta einfara listasögunn- ar. Mozart hlýtur aö hafa séð eða heyrt þá mannlegu örlagavalda sem öörum eru huldir. Annars hefðu óperur hans ekki iafnast x „,,anespeare í sálskyggni. Þessi hæfileiki Mozarts þroskaöist til hinsta dags. En hann var ekki greinandi Frh. á bls. 16 Sveinbjörg Alexanders ballett- dansari hefur getið sér góðan orðstír á sviði danslistarinnar. Hún hefur dvalist erlendis síðastliðin 16 ár, fyrst við Stuttgart-ballettinn hjá John Cranko en síðan við óperuna í Köln með Trans-Forum ballett- flokknum. Sá flokkur telur 28 manns og er hann í miklu áliti í listaheiminum. Hann hefur ferðast um víða veröld og er afar eftirsóttur og hefur m.a. haldið sýningar á listahátíðum víöa um lönd. Tans- Forum ballettflokkurinn er eini modern-dans flokkurinn í Þýska- landi og sá eini sem þjálfar eftir Martha Graham-kerfinu. Tans-Forum flokknum hefur ver- ið boðiö í tveggja vikna sýningar- ferð til London næsta vor og einnig hefur honum verið boðið til Sví- þjóðar, Frakklands og Ísrael á næsta ári. í febrúar síöastliðnum kom SVeinbjörg til íslands og setti á svið „Danskokkteil" með íslenska dans- flokknum sem hún samdi sjálf en fyrir tveim árum vann hún einnig með flokknum og setti þá á svið „Symþhonische Etuden" eftir Schumann en koreógrafían var eftir Jochen Ullrich. Sveinbjörg hefur farið með flest aðalhlutverk hjá Tans-Forum flokknum á síðustu árum, t.d. í ballettinum „Rómeó og Júlía“ og í „Syndunum 7.“ Á þessu ári var hún í hlutverki Evitu Peron í ballettinum „Grosse Gesang" eftir Pablo Ner- uda og í hlutverki Nönu í ballettin- um „A la Jaques" sem frumsýndur var 7. júní síðastl. í Köln. í ballettinum „A la Jaques" er tónlistin eftir Offenbach en koreó- grafía eftir Jochen Ullrich og Jörg Burd. Á þessu ári er 100 ára afmæli Offanbachs og mikið um að vera víðs vegar í Þýskalandi í tilefni þess. M.a. verður sérstök Offen- bach-vika í Köln í byrjun október en Tans-Forum flokkurinn opnar þá viku með sýningu á „A la Jaques“ og halda þær sýningar áfram allan næsta vetur. Einnig mætti geta þess að Svein- björg fór meö aðalhlutverkiö í stykkinu „Relache" eftir Erik Satie með kóreógrafíu eftir Jochen Ull- rich en það stykki var frumsýnt á hollensku listahátíðinni í fyrravor og sjónvarþaö um Evrópu. Eins og kunnugt er, var Svein- björgu boðið að dansa á Listahátíð hér í júní síðastl. Tók hún boöinu að fengnu samþykki yfirmanna sinna. Svo fór þó að ekki varð af þeirri heimsókn vegna þess aö of mikil hætta þótti á því að hún næði ekki sýningu á „A la Jaques" sem ákveðin haföi veriö í Köln 19. júní og ógerningur var að fá aðra dansmær í hlutverkið. Heföi hún ekki náð til Kölnar í tæka tíð heföi hún þurft að borga sýninguna eins og venja er í slíkum tilvikum eða 15.000 mörk. (ca. 5 millj. ísl. króna). Á næsta ári hefur Sveinbjörgu veriö boðiö aö koma fram á hátíðasýningu í Feneyjum ásamt mörgum heimsþekktum lista- mönnum og SGmúiöiðÍs að koma fram í hinum vönduöu þáttum bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC sem fjalla eiga um Mozart og verk hans. H.V.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.