Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Blaðsíða 8
MODEL (1951)
Mynd þessi er gerö í Kaupmannahöfn veturinn 1951 og er af ungri fyrirsætu
í listaháskólanum. Þetta er sennilega ein af örfáum myndum, sem ég geröi í
Kaupmannahöfn, þar sem koma fram dönsk áhrif í litameðferð, en ég var t.d.
ekki ginnkeyptur fyrir því aö nota mikið af grænum litum í myndir mínar,
sennilega til aö storka Dönunum. Þegar prófessorinn minn Kræsten Iversen
sagöi viö mig: „mer grönt“, var ég vanur aö segja: „ja, og ogsá mer rödt“!
Dönsku áhrifin koma hér jafnt fram í pensil- sem litameðferð. Þessi fyrirsæta
var í senn einþykk og mjög skapmikil, og reyndi ég aö láta þessi einkenni koma
fram í mynd minni. Eg geröi margar fleiri myndir af henni, en þær eru því miöur
flestar ef ekki allar glataðar.
— Þetta atriöi, aö ég fór aö ánetjast dönskum áhrifum, gerði þaö að
verkum, aö ég hvarf frá Kaupmannahöfn til Oslóar áriö eftir^ ysr þáð míkiö til
fyrir áeggjan Jóns Stefánssonar. !i5tmSÍSPá, sem mælti meö mér viö
skólatrcösr sinn rrá Parísarárunum hjá Henri Matisse, Jean Heiberg, er þá var
prófessor og rektor listaháskólans í Osló.
Yfirlits-
ming
SSára
I tilefni sýningarinnar velur
BRA GIASGEIRSSON
9 myndir eftir sig til
birtingar og bregöur Ijósi
á tilurð þeirra og
tíma með nokkrum orðum
SJÁLFSMYND (1948)
Á skólaárum mínum í Handíðaskólanum, svo sem Myndlista-
og handíðaskóli íslands var rétt og slétt nefndur á þeim árum,
gerði ég mikiö af sjálfsmyndum í heimahúsum. Sennilega voru
það áhrif frá sjálfsmyndum Van Goghs, Rembrandts o.fl. sem
ég kynntist úr listaverkabókum, en þó frekar, að ég hafði
einhvers staðar lesiö þau ummæli málara, að leiðin til að
kynnast sjálfum sér og sínum innri manni, lægi í gegnum
sjálfsmyndir. Ég sat því iðulega fyrir framan spegil með
rissblýið á lofti og rýndi á sjálfan mig. Eitt er alveg víst og það
er, að ég tók miklum framförum í teikningunni við þessa iðju
mína. Mynd þessi er kannski fyrsta sjálfsmyndin sem ég gerði
og reif ekki í tætlur.