Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Síða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Síða 9
▲ MORG- UNN (1958) Um árstíma haföi ég vinnustofu í húsakynnum Jóns Loftssonar viö Selsvör en þar var þá Gagnfræöa- skóli verknáms. Til mín kom þá stundum ung stúlka og sat fyrir. Upp úr þelm myndum geröi ég nokkur málverk í stíl, er gæti minnt á kúbisma, og er þetta ein þeirra. Ég vann ósjaldan fram undir morg- un á fögrum sumarnóttum, og eru þaö síkvikul litbrigðin í hafi og hauðri, svo sem þau komu mér fyrir sjónir, sem ég leitaöist viö aö fanga í þessa mynd. SOMAKONAN (1950-51) Teikningu þessa gerði ég fyrsta vetur minn í Kaupmanna- höfn og er hún af matmóður minni og húsráðanda, Steinunni Ólafsdóttur Jónsson. Hún mun hafa veriö fyrsta útlærða hjúkrunarkona holdsveikra á íslandi og starfaöi meö Sæmundi Bjarnfreössyni lækni. Steinunn fluttist til Kaup- mannahafnar áriö 1909, aö ég held, og giftist Þóröi Ó. Jónssyni, tollveröi er hún kynntist ytra. Heimili þeirra var athvarf íslendinga í Kaupmannahöfn í hálfa öld, og þangaö sóttu listamenn mikiö. Laxness, Þórbergur, Stefán frá Hvítadal, Kristmann, Davíö frá Fagraskógi, Finnur og Ríkharöur Jónssynir, Ásgeir Bjarnþórsson o.fl. o.fl. — Hjá þessari konu leiö vísast öllum vel, enda var hún stórbrotinn persónuleiki og mannþekkjari meö gnótt af hjartahlýju, er hún miölaöi óspart. Þá má þaö koma fram hér, aö hún heimsótti sjúka íslendinga á Ríkisspítalann svo til daglega, svo lengi sem fæturnir báru hana, aöstoöaöi þá og taldi í þá kjark. Meöal þeirra var m.a. ólæs sveitapiltur dauövona af tæringu og firrtur allri lífslöngun. Hún kenndi honum aö lesa og tók þaö undraskamman tíma, nýr heimur opnaöist hinum helsjúka pilti, er fylltist nú lífslöngun, reis upp af sjúkrabeöi og sökkti sér niöur í íslenzkt mál. Siguröur Kristófer Pótursson hét hinn ungi maður, og hann lét ekki staðar numiö, fyrr en hann haföi ritaö bókina „Hrynjandi íslenzkrar tungu“. Þá lézt hann, líkast til sáttur viö guð og menn. Ég fann þessa teikningu í fórum mínum fyrir nokkrum árum og setti liti í hana í samræmi viö útlit Steinunnar og áhrif hennar á mig, síöast þegar ég sá hana. Þau hjónin Steinunn og Þóröur liggja í Garnisonkirkjugarö- inum á Austurbrú í Kaupmannahöfn, sem er í nágrenni þar sem fyrrum voru Stokkhúsiö og Þrælareiturinn, sem tengjast margri íslenzkri harmsögu frá liönum öldum. Ég heimsæki leiöið í nær hvert skipti, er ég kem til Hafnar og á þar hijóða stund. Einhvern veginn er jafnan léttara yfir mér, er ég hverf á braut, mér finnst ég betri maöur og tengjast nánar íslenzkri sögu. ANDÓFSMAÐURINN (1979-80) Þetta er ein af nýjustu myndum mínum, gerö á síöasta ári, er Vladimir Bukovskí haföi hér viðdvöl, en einnig á þessu ári, því aö mér þótti eitthvaö vanta í hana. Myndin skýrir sig sjálf. Á tímum ofurmanna, geimfara og eftirlíkninga þeirra í smækkaðri mynd er börn okkar leika sér að, blómstrar einnig ofbeldið og þjáningin um allan heim. Myndin er skírskotun til þessa, en ekki endilega til afmarkaðs fyrirbæris.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.