Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Page 13

Lesbók Morgunblaðsins - 18.10.1980, Page 13
eiginlega ætlast til þess þó þaö heföi aldrei komiö fram. Þaö haföi enginn veriö nefndur í því sambandi en þaö voru náttúrulega ekki margir sem komu til greina. Þaö var því ekki óeölilegt þó Bjarni heföi gert sér nokkrar vonir — auövitað haföi hann ekki nefnt þaö viö neinn en hann gat ekki neitað aö honum hafði flogiö þaö í hug. Það heföi ekki verið ósanngjarnt — hann haföi unniö þarna hjá fyrir- tækinu í átján ár, allan þennan tima haföi það varla komið fyrir að hann kæmi of seint og störf sín haföi hann alltaf stundaö af kostgæfni. Og var þá nema eðlilegt að hann geröi sér nokkrar vonir um að vera hækkaður í tign. En, nei! Það haföi veriö gengiö framhjá þeim öllum og þessi Jónas veriö ráöinn, þessi bölvaöur afglapi sem ekkert gat og ekkert kunni. Bjarni heföi fyllilega sætt sig viö þó þeir heföu gengiö framhjá honum og valiö einhvern hinna, til dæmis Óla eöa Kobba — en aö ganga framhjá þeim öllum og ráöa þennan Jónas, — þaö gat Bjarni einfaldlega ekki gúteraö. í fyrstu haföi hann verið að vona að Jónasi yröi sagt upp — yfirverkstjór- inn hlaut aö sjá að maöurinn réöi ekkert viö þetta starf. Öllu haföi hrakaö á örskömmum tíma, — já, þaö hafði fariö dagversnandi og Bjarni vissi reyndar aö framleiöslan haföi minnkaö. En honum kom þaö víst ekki viö. Og þaö var fleira sem honum kom ekki lengur viö. í fyrsta skipti haföi hann séö menn hangsa þarna hjá fyrirtækinu, — þetta voru strákageml- ingar og þeir voru ekki lengi að skella því á Bjarna þegar hann fann aö því viö þá, — aö honum kæmi þaö ekki viö. Þeim heföi ekki haldist þaö uppi meöan Þorkell var og hét. En þessi Jónas, — hann hafði átt leið þarna um og heyrt þegar Bjarni var aö munn- höggvast viö strákana. Og hvaö haföi hann sagt? Hann haföi sett upp þetta drýldna háðsglott sitt — út í annað munnvikið eins og refkeila, og lætt út úr sér: „En þú átt nú líka til aö fá þér pásu við og viö þegar þú heldur að ég sjái ekki til, Bjarni minn.“ Strákarnir höföu gripiö þetta á lofti, skellihlegið og tekið undir meö verk- stjóranum. Þeir höföu sagt aö Bjarni geröi aldrei handtak nema þegar staöið væri yfir honum en reyndi svo aö koma sér í mjúkinn hjá yfirmönnun- um meö því aö hlaupa í þá ef einhver tæki sér smá pásu. Þeim var vorkunn, greyjunum, — þeir voru ekki annaö en hvolpar. En hvaö átti Bjarni aö segja? Þaö vissu þaö allir þarna að hann lagöi ekki í vana sinn aö svíkjast um, þó hann aldrei nema fengi sér í nefiö þegar augnablikshlé varö á vinnunni. Og var það svo ekki hann sem nær undantekningarlaust var fyrstur úr mat og kaffi, — þeir áttu nú til aö vera dálítið þaulsætnir hinir en þaö hafði hann aldrei stundað. Bjarni sagöi ekki neitt, — gat ekkert sagt og kæröi sig ekki um aö segja neitt. Hann haföi gengið þegj- andi burt og heyrt í þeim hláturrokurn- ar aö baki sér. Um kvöldið, rétt þegar átti aö fara aö hætta vinnu, haföi loks soöiö uppúr. Þeir höföu verið aö losa sementsfarm af vörubíl og þurft aö láta þaö ganga hratt til aö geta gengiö frá sementinu fyrir kvöldiö. Bjarna haföi tekist eitthvað óhönduglega þeg- ar hann sletti síöasta sementspokan- um upp á færibandiö, pokinn reis upp á rönd og datt út af því þegar hann var kominn í allmikla hæö, — niður á gólfiö þar sem hann sprakk og sem- entið gusaöist úr honum út um allt. Bjarni haföi náö sér í skóflu og var aö hreinsa þaö upp þegar Jónas kom askvaöandi og byrjaði aö jamla og nudda. Þá haföi Bjarni loksins misst þolin- mæöina. Hann haföi fleygt skóflunni í gólfiö og hellt sér yfir nýja verkstjór- ann. Hann hafði rutt úr sér óbóta- skömmum og dembt yfir hann öllum þeim fúkyrðum sem í hugann komu. Sárindi sem safnast höföu fyrir á mörgum vikum og mánuöum brutust nú fram í ofsafengnum reiöilestri sem aldrei ætlaöi aö taka enda. Jónas stóö agndofa fyrir framan hann og þaö leyndi sér ekki að nú var hann hræddur. Loksins þegar Bjarni þagnaði, andstuttur og rauöur upp í hársrætur af heift, sagöi hann smjaör- andi röddu: „Ég er kannski fullaðfinnslusamur en þaö eru nú flestir verkstjórar, — ég reyni bara aö stjórna hérna eftir bestu getu. — Viö erum nú einu sinni vinnufélagar og verðum aö láta okkur koma saman, Bjarni minn.“ Nokkur augnablik langaöi Bjarna mest til að hjóla í hann en snérist svo á hæli og strunsaði út. Hann lét skófluna liggja þar sem hún var í sementshrúg- unni á gólfinu, — aldrei haföi hann skiliö þannig við að loknum vinnudegi áöur. Og þarna strunsaöi hann út götuna á leiöinni heim. Hann var ekki reiður lengur. Hann var þreyttur og alveg útkeyrður. En þaö var ekki þessi heilbrigöa þreyta sem hann haföi svo oft fundið til eftir erfiöan vinnudag, — deilurnar viö nýja verkstjórann höföu rænt hann allri vinnugleði. Þaö yrði varla skemmtilegt aö mæta aftur aö morgni. Hvernig haföi hann hagað sér? Honum haföi svo sem dottið í hug aö segja upp vinnunni en einhvernveginn ekki komiö sér aö því, — þaö var ekkert réttlæti í því ef hann segöu upp og Jónas valsaöi þarna áfram. En annar hvor þeirra yröi aö víkja, hann eða nýi verkstjórinn. Næsti dagur í vinnunni varö heldur ekki meö öllu tíöindalaus þó á annan hátt yröi en Bjarni haföi gert sér í hugarlund. Jónas tók brosandi á móti honum þegar hann mætti og sagöist hafa ákveðiö aö setja hann í aö stjórna rörasteypivélinni, — hvorki meira né minna en besta starfið í rörsteypunni! Bjarni vissi ekki hvaðan á hann stóö veðrið — hann varö alveg hvumsa viö. Þaö var ekkert minnst á þaö sem gerst haföi daginn áöur. Aö vísu sá Bjarni aö karlarnir voru aö gefa hvorum öörum olnbogaskot og líta til hans, en enginn sagöi neitt. Bjarni lét sem hann tæki ekki eftir neinu og hamaöist viö vinnuna. Ef til vill voru nú þessi vandræöi loks úr sögunni og Jónas myndi framvegis sjá hann í friði, — hann var líklega einn af þeim sem þurfti aö taka almennilega í gegn svo hann héldi sig á mottunni. Að vísu fann hann að aðstaða hans hjá fyrirtækinu var oröin allt önnur en meöan Þorkell haföi verið. Þaö var eins og vinnufélagarnir litu hann öör- um augum. Hann var ekki lengur spuröur álits um hvernig haga skyldi hlutunum og þaö var auðfundið aö þeir voru öfundsjúkir yfir aö hann haföi veriö settur á rörasteypivélina. En þessa vegsemd haföi hann hlotiö fyrir eigin veröleika og hann var vel aö starfinu kominn eftir átján ár hjá fyrirtækinu. Þegar allt kom til alls var hann nokkurn veginn ánægöur. En þessi sæla stóö ekki lengi. Þaö liðu ekki nema nokkrir dagar þar til Jónas var aftur byrjaöur aö jagast í Bjarna. Þaö var sama hversu lítið bar útaf, — jafnvel þó ekki yröi nema smátöf, óðara var Jónas kominn askvaðandi meö alls konar aöfinnslur. Hann sagðist hafa sett Bjarna í þetta verk vegna þess aö hann hefði treyst honum til aö vinna þaö sómasamlega, — hvaö átti svona sleifarlag eiginlega aö þýða — hann yröi aö leggja sig fram og reyna aö hafa hugann við þaö sem hann væri að gera .. . Bjarni fuðraði upp, en hann stillti sig og lét ekki á neinu bera. Þaö var heldur ekki einleikið hversu klaufskur hann var stundum og handtökin óör- ugg. Hann fann að Jónas gaf honum sífellt gætur tilbúinn aö koma á harðahlaupum og steypa sér yfir hann þegar minnsta tilefni gafst til. Og hinir karlarnir, — þeir höföu ekki neina samúö með honum eftir aö hann var settur á rörsteypivélina, þeir höföu bara gaman af því þegar Jónas var að taka hann í gegn. Bjarni fann að þetta gat ekki gengiö svona til lengdar. Og þaö geröi þaö heldur ekki — einn daginn var þaö búiö. Hann skyldi ekki sjálfur hvernig þaö haföi gerzt. Þeir höföu veriö aö steypa rör og haft hraðann á, því þaö bráölá á stórri rörasendingu út á land. Bjarni hamað- ist viö rörsteypivélina til að láta ekki standa á sér en gætti sín ekki sem skyldi. Hann geröi sig seken um hreint ótrúlega klaufsku, — hleypti fram rennslinu úr blöndunarvélinni en gleymdi aö opna fyrir, þannig aö lögunin komist inn í mótiö. Miklu heföi mátt bjarga með því aö drepa strax á mótornum, en Bjarni sló niöur neyöar- hemilinn í fáti og gleymdi aö kúpla sundur í fuminu sem á honum var. Afleiöingarnar létu ekki á sér standa, — þaö heyröust klíngjandi brothljóö innan úr vélinni þegar hún stoppaöi meö heiftarlegum rykk svo allt lék á reiöiskjálfi. Nokkrum augnablikum síö- ar brann mótorinn yfir, eldglæringarn- ar stóðu út úr honum og þaö gaus upp kolsvartur reykjarmökkur. Loksins sprungu öryggin. Það varð skuggsýnt inni og þeim súrnaöi fyrir augum í reykjarsvælunni. Jónas hafði ekki sagt eitt einasta orö, — þaö uröu líka nógir til aö atyrða Bjarna. Sjálfur yfirverkstjórinn húöskammaöi hann meöan veriö var aö kanna eyðilegginguna, — og Bjarni vissi aö hann haföi gert sig sekan um ófyrirgefanlega glópsku. En allt var þetta þessum Jónasi aö kenna, það hafði aldrei veriö stundleg- ur friöur fyrir honum — hann haföi legiö á honum eins og mara, og hreinlega étiö hann í sig meö kjaftin- um. Og nú haföi Jónas fengið ósk sína uppfyllta, — Bjarni var endanlega búinn aö vera þarna hjá fyrirtækinu — fyrir honum lá ekki annaö en aö segja upp. En hann geröi það ekki. Rörasteypivélin reyndist stór- skemmd og mótorinn ónýtur. Viðgerö- in tók heila viku og starfsemi fyrirtæk- isins lá aö mestu niðri á meöan. Þegar framleiðslan komst loksins í gang aftur var þaö Kobbi sem tók viö stjórninni á rörasteypivélinni, — eng- inn nefndi Bjarna í því sambandi. Hann haföi eiginlega ekkert fast starfssviö þarna lengur. Jónas skikk- aöi hann í alls kyns snúninga, — hann var látinn hlaupa meö flabbsana, berja steypu af mótunum eöa liðka færi- böndin — en þess á milli snattaði hann á lyftaranum. En Bjarna stóö á sama, — hann haföi ekki neinu aö tapa lengur. Auövitaö heföi hann átt aö vera búinn aö segja upp fyrir löngu, — en honum fannst aö hann gæti ómögulega látiö Jónas sleppa svo billega. Þetta drýldna ómenni skyldi aö honum heilum og lifandi einhverntíman fá á baukinn, og það meö rentu. Nú átti hann víst aö fara í sementiö úr því að ekkert annað kallaöi aö, — en þaö lá nú víst ekki þau ósköpin á. Bjarni stöövaöi lyftarann og fékk sér í nefiö sallarólegur. Það var víst ekki seinna vænna aö hann færi aö hangsa í vinnunni eins og hinir. Og þarna kom þá Jónas, — þetta sperta mannkerti sem haföi skemmt sér viö aö eyöi- leggja hann, og skyldi hann þá ekki mega koma. „Hvern fjandann ertu að sluksa, maður,“ kallaöi Jónas og horföi hneykslaöur á Bjarna þar sem hann sat í makindum uppi á lyftaranum, „helduröu aö þú fáir kaup fyrir aö sitja á rassgatinu — snáfaöu strax og staflaðu stóru rörunum upp í rekkann við austurvegginn. Ég segi þér svo til þegar komið er nóg í stæðuna, — já, svona komdu þér af staö, strax!“ Bjarni setti lyftarann í gang og ók aö suöurveggnum. Honum sýndist aö varla yröi hægt aö koma miklu fleiri rörum af stóru gerðinni í rekkann ef ekki ætti aö vera hætta á allt hryndi. Þorkell haföi aldrei viljaö aö þeir settu mikið í þennan rekka, — sagði að þaö gæti hlotist af því stórslys ef stoö- grindin færi. En þessi Jónas, — þessi aulabárður sem ekkert verksvit haföi — þarna stóö hann viö rekkann og þóttist vera að gera viö slípivélina, — ætlaöi aö vera til staöar svo hann gæti sagt Bjarna fyrir verkum — hvenær hæfi- lega mikiö væri komiö af rörum í rekkann — segja honum þaö ná- kvæmlega, — eins og hann væri óviti. Bjarni keyrði aö endanum á fyrsta rörinu og tók þaö upp meö lyftaranum. Þetta voru stór og þykk fráveiturör um þaö bil eitt tonn á þyngd hvert. Sérstakur búnaöur var framan á lyftaranum til aö taka þau þannig aö hægt var aö renna þeim endilöngum inn í rekkann þar sem þau voru geymd. Þegar Bjarni var búinn aö bæta viö fimmtán rörum sá hann aö rekkinn þoldi ekki öllu meira. Jónas, — þessi mannskita, haföi alveg gleymt sér viö verk sitt. Hann grúföi sig yfir slíþivélina og var greinilega alveg búinn aö gleyma Bjarna og því sem hann var aö gera. Hann þóttist þá líka getað gert viö þessa bölvaöur afglapi sem ekkert gat og ekkert kunni. Bjarni bætti fjórum rörum í stæöuna í viöbót. Hann sá aö það kom hreyfing á rekkann — stoögrindin var komin aö því aö bresta. En haföi Jónas ekki sagt honum aö halda áfram unz hann segði til, — Bjarni haföi ekki heyrt betur. Eitt rör enn, Bjarni þyrfti aö beita ýtrustu lagni til aö koma því upp, — stæöan var orðin svo há að lyftarinn geröi varla meira en rétt drulla því nógu hátt. Hann keyrði hratt aö og hækkaöi röriö á síðustu stundu þannig aö endinn á því slengdist uppfyrir en lét þaö svo skella ofaná hin. Þaö kom hreyfing á rekkann, — skyndilega brast stoögrindin og stæöan hrundi eins og spilaborg. Hávaðinn var ógur- legur þegar rörin ultu hvert um annaö og slengdust niöur í steingólfiö, — þar sem þau lágu loks kyrr í einni kös, sum mölbrotin — yfir staðnum þar sem Jónas haföi veriö aö vinna viö slípivél- ina. Bjarni sá hvernig mennirnir þustu aö og byrjuöu aö róta í rörahrúgunni þar sem Jónas var. Hugur hans var tómur og dálítiö sljór. Þetta yröi ekki aftur tekiö — það var búiö og gert. Annar hvor þeirra hlaut þaö aö veröa — hann eöa nýi verkstjórinn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.