Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1981, Blaðsíða 4
Af þessari loftmynd sést, að það er
ekkert smáræðis landflæmi, sem fer
undir flugvöllinn. Þegar ný viðhorf
hafa skapast vegna samgöngukostnað-
ar innan borgarinnar, sem orðinn er
einn þungbærasti útgjaldaliður hverr-
ar fjölskyldu, er spurning hvort stætt sé
á að nýta þetta land ekki betur.
Borg er ekki bara húsin og göturnar,
sem þau standa viö. Borg er lifandi, hún
hefur sál. Húsin og göturnar eru bara
líkami borgarinnar, en fólkið, sem býr í
borginni, líf þess og athafnir, draumar
þess, gleði og sorg, þetta allt gefur
borginni líf. Um leið og fólkið hverfur á
braut, hættir borgin að vera til, og eftir
standa aðeins húsin og göturnar. Sér-
hver borg hefur hjarta, miðborgin er
hjarta hennar, þangað fer fólk til að
hittast, versla, skemmta sér, og þar er
mest öll þjónusta og stjórnsýsla borgar-
innar. Flestar eöa nær allar borgir hafa
vaxiö út frá litlum kjarna, og þessi kjarni
veröur síðar aö miöborginni. Litlar
borgir hafa litla miðborg, en þegar
borgin vex, þarf borgin að geta vaxið
líka. Ef miðborgin getur ekki vaxið,
verður borgin eins og risi með dvergs-
hjarta, sem er of lítið til aö viðhalda
þrótti hennar, og borgin veröur máttfar-
Bjarki Jóhannesson
verkfræðingur og arkitekt
Viljum við miöbœ
eða flugvöll
in og líflaus. Oftast veröur aö leysa
málið með því að rífa gömul hús og
byggja önnur stærri og hentugri í
staöinn. Oft veröur þetta þó of dýrt, og
er þá stundum gripið til þess ráðs að
byggja nýja miðborg. Mörg dæmi sýna
þó, að þaö er erfitt, og miöborg, sem
hefur þróast í margar aldir verður ekki
flutt meö einu pennastriki.
Miðborg Reykjavíkur
Reykjavík hefur fylgt þessu alda-
gamla lögmáli um vöxt borga, og fyrsti
vísir hennar var í Kvosinni, sem síðar
varð miöborg Reykjavíkur. Borgin óx
svo til austurs og vesturs, en um 1930
var öll borgin enn innan Hringbrautar og
Snorrabrautar. Um 1960 hafði borgin
vaxið alveg austur að Elliðaám, og auk
þess voru fylgibæir hennar í örum vexti.
1980 er svo borgin komin alla leið
austur að Rauðavatni, og byggðin er að
verða nokkuö samfelld suður í Hafnar-
fjörð. En lítum þá á miðborgina og vöxt
hennar.
Um 1960 sáu menn, að miðborgin gat
ekki vaxið mikið meira á sama stað,
nema gripiö yrði til róttækra aðgerða.
Til vesturs sáu menn þyrpingu af
gömlum húsum, sem þeim sýndist ekki
mikils virði, Grjótaþorp. Þótti nú upplagt
að rífa þessi hús og byggja þar í staðinn
þyrpingu af háhýsum og gera Suðurgöt-
una að hraðbraut, sem gengi undir
húsin niöur að höfninni og tengdist þar
miklu hraðbrautarmannvirki, sem gengi
á brú frá Skúlagötunni og vestur að
Granda. í leiðinni átti svo að rífa alla
húsaröðina noröan Grettisgötu, gera
hana greiðfæra og framlengja niður
Amtmannsstíg og Kirkjustræti fram hjá
Austurvelli og allt vestur á Suðurgötu-
hraðbrautina nýju. Ekki þótti þetta þó
nóg að gert, því nú skyldi einnig byggja
eitt stykki nýjan miðbæ á horni Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar, sem
smám saman skyldi taka viö hlutverki
gamla miöbæjarins.
Þetta voru stórtækar áætlanir, en
núna, 20 árum síðar, skuium viö líta
aftur á stöðuna. Það kom fljótt í Ijós, að
þetta var milljarðaævintýri, sem einung-
is stórþjóöir gátu látiö sig dreyma um.
Grjótaþorpið var aldrei rifið, háhýsin
voru aldrei byggö, brýrnar fyrir hrað-
brautirnar voru aldrei reistar, Grettis-
gatan var aldrei breikkuö, og aöeins eitt
hús er risið í nýja miöbænum, sem
líklega verður aldrei neitt meira en
meðalstór þjónustukjarni. í staöinn hef-
ur gamli miðbærinn sprengt utan af sér
skelina og flætt á óskipulegan hátt
austur með Suðurlandsbraut og Ár-
múla, þar sem nú getur að líta skringi-
legt samsafn af verslunum, skrifstofum
og iönaöarhúsnæöi. Nú mætti ætla, aö
þegar menn gáfust upp á stórveldis-
draumunum, hafi verið gripið til ein-
hverra annarra ráða til að bjarga
miðborginni, en svo er þó ekki. Engin
önnur leið hefur verið fundin til aö
tryggja vöxt miöbæjarins eða stýra
landnotkun þar, til að tryggja að þar sé
pláss fyrir starfsemi, sem gefur miö-
Með flutningi
flugvallarins
mætti meðal ann-
ars fá aukið rými
fyrir miðbæinn
og Háskólann, en
auk þess mætti
reisa 10—15 þús-
und manna íbúð-
arhverfi á því
öllurinn nær yfir
Teikning sem gefur hugmynd um stærð flugvallarsvæðisins á
nesinu annars vegar og borgarinnar hins vegar.
©