Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1981, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 17.01.1981, Blaðsíða 5
bænum líf. Þess vegna eru þaö fjár- sterkir aöilar, eins og bankar, sem leggja undir sig allt land í miöborginni, og í sjálfri Kvosinni milli Lækjargötu og Aöalstrætis, nýtist minna en helmingur húsnæöis fyrir starfsemi, sem dregur til sín fólk, svo aö einhverju nemi. Á tímabili var varla nokkuð veitingahús í miðborginni sem stóö undir nafni. Viö hljótum aö hugleiöa, hvort lausnin frá 1960 hafi ekki veriö röng, og hvort önnur hagkvæmari hafi ekki veriö fyrir hendi. Það er greinilega engin lausn, að ætla aö rífa mikið af húsum í einum vettvangi, slíkt er mjög kostnaðarsamt, og gerist aöeins á löngum tíma. Lítill áhugi viröist vera fyrir húsnæöi í nýja miöbænum, til þess er hann of langt frá þeim gamla. En þegar viö stöndum viö Tjörnina og hugleiöum þetta mál, kveöa allt í einu viö ógurlegar drunur, svo aö jafnvel syfjaö skrifstofuliðiö í Austur- stræti hrekkur upp, og gera verður hlé á fundum borgarráös og Alþingis eitt andartak, því þar heyrist ekki mannsins mál. Viö sjáum flugvél renna rétt yfir höfuö okkar og lenda hinum megin við Tjörnina. Og þarna blasir lausnin viö okkur, Reykjavíkurflugvöllur. Reykjavíkurfflugvöllur Saga Reykjavíkurflugvállar í núver- andi mynd hófst um 1940, þegar farið var aö kanna hér hugsanleg flugvallar- stæöi. Meöal þeirra staöa, sem komu til greina, var Vatnsmýrin. Áöur en ákvörð- un var tekin, var landiö þó hernumið, og Bretar tóku af okkur ómakiö og byggöu þar flugvöll, þrátt fyrir eindregin mót- mæli bæjarstjórnar Reykjavíkur. Þótti ekki ráðlegt aö hafa flugvöllinn svo nálægt miðbænum á stríöstímum, vegna hættu á loftárásum og slysum. í stríðslok var svo flugvöllurinn ásamt mannvirkjum afhentur íslendingum til eignar, og upphófust strax raddir um aö flytja hann frá miðborginni. Hvorki gekk þó né rak í því máli, því mönnum þótti þægilegt aö hafa völlinn svo nálægt sér, þar sem samgöngur á landi voru mun lakari en nú er. Reykjavíkurborg átti líka nóg landrými innan seilingar, landsvæöi flugvallarins var því ekki mjög verö- mætt. Ónæði af flugvellinum fór hins vegar vaxandi, og ýmsar athuganir hafa veriö gerðar varöandi flutning hans. Þrír staðir komu til athugunar, Álftanes, Garöarhraun noröan Hafnarfjarðar og Kapelluhraun austan Straumsvíkur. Niðurstöður athugananna voru þær, aö allir þessir staöir væru betri en núver- andi flugvallarstæöi. Ekkert gerðist þó, og enn er völlurinn á sama staö. Viökvæöi þeirra, sem eru á móti flutningi flugvallarins er vanalega það, að þaö sé of dýrt, en ekki eru þar þó allir á sama máli. Land þaö, sem fer undir Reykjavíkur- flugvöll, er um einn og hálfur ferkíló- metri aö stærð, sem er álíka mikið og allur Vesturbærinn, Melarnir og Hagarn- ir, en þar vinna hins vegar aðeins um 450 manns viö flugrekstur. Land flug- vallarins er með allra verömætasta byggingarlandi borgarinnar, og liggja til þess ýmsar ástæöur. Þarna mætti fá aukið athafnasvæöi, fyrir Háskólann, Landspítalann og ekki síst sjálfan miö- bæinn. Þar sem þetta svæöi er mjög nálægt miðborginni, yröi hér alls ekki um neinn nýjan miöbæ aö ræöa, heldur aðeins viöbót viö gamla miöbæinn meö veitingastöðum, skemmtistööum, versl- unum, skrifstofum, hótelum og ýmsu fleira, sem á heima í miöborginni, en rúmast þar ekki nú. Þessi kjarni gæti svo veriö meö yfirbyggöum götum, og hann gæti auöveldlega tengst Kvosinni með gönguleiöum gegnum Tjarnargarö- inn. Vel mætti þá lífga upp á Tjarnar- garöinn í leiðinni, og t.d. væri enginn staöur heppilegri fyrir Tívolí yfir sumar- mánuöina. Enn væri svo eftir pláss fyrir 10—12 þúsund manna íbúöarhverfi á landi flugvallarins, hverfi sem væri mjög nálægt miðbænum og allri þjónustu þar. Mjög ódýrt væri aö reisa þarna byggö, þar sem allir aökomuvegir og lagnir, svo sem vatn, hitaveita og frárennsli eru þarna þegar til staöar. Jarðvegsdýpi er yfirleitt hentugt fyrir byggö. Nýlega var unnin á Borgarskipulagi Reykjavíkur skýrsla, þar sem m.a. var Gamli bærinn í kvosinni. Hann gæti gengið í endurnýjun lífdaganna með viðbót og vexti útí Vatnsmýrina og kannski orðið raunverulegur, alvöru miðbær. athuguð hagkvæmni þess aö flytja flugvöllinn til Kapelluhrauns eöa Kefla- víkur. Þar er ekki tekin afstaöa til þess, hvort flugvöllurinn geti veriö á Álftanesi, sem er tvímælalaust hentugasti staöur- inn fyrir hann, en lítill innanlandsflug- völlur nyrst og austast á nesinu mundi ekki einu sinni trufla forsetann í hugleið- ingum sínum. í drögum aö aðalskipulagi Reykjavíkur til 1995, sem samþykkt voru fyrir nokkrum árum, en aldrei staöfest, var áætlun um aö þenja byggöina í Reykjavík alla leiö austur aö Korpúlfsstööum og Úlfarsfelli. í flugvall- arskýrslu Borgarskipulagsins er gerður samanburður á því, hve mikið kostar aö byggja 10 þúsund manna íbúðarhverfi á flugvallarsvæöinu, samanborið viö jafn stórt hverfi í landi Keldna eöa Korpúlfs- staða. Einnig er borinn saman aksturs- kostnaöur íbúa sömu svæöa, metinn stofnkostnaöur nýs flugvallar og akst- urskostnaðar til og frá flugvelli. Um 70% af atvinnutækifærum höfuðborgar- svæðisins eru vestan Elliöaáa, og þ.a.l. má ætla, aö sami hluti íbúa nýju svæðanna þyrftu aö sækja þangaö vinnu. Það er gífurleg vegalengd fyrir íbúa Korpúlfsstaöasvæðisins, en stutt fyrir íbúa flugvallarsvæðisins. Aksturs- vegalendir eru reiknaöar nokkuö ná- kvæmlega út frá reiknilíkani umferðar og dreifingu íbúöa, vinnustaöa og þjón- ustu á höfuöborgarsvæðinu. í Ijós kem- ur, að það er nokkur hundruð þúsund- um (gamalla) króna ódýrara á ári fyrir hverja fjölskyldu aö búa á flugvallar- svæöinu en að búa á Korpúlfsstaða- svæöinu. Ef þetta er reiknaö fyrir 10 þúsund manna byggö og metið meö öðrum kostnaði, kemur í Ijós, aö þjóöfélagiö sparar nokkra milljarða (gamaila) króna á ári meö því aö flytja flugvöllinn. í skýrslunni er auk þess bent á hávaöa, umhverfisspjöll og slysa- hættu, sem fylgir flugvellinum á núver- andi stað, en borgarlæknir, slökkviliös- stjóri og fleiri hafa raunar bent áður á þessa sömu hluti. Varöandi álag á umferðarkerfi borgarinnar, þá er Ijóst, aö meö því aö byggja íbúðarhverfi á flugvallarsvæðinu og færa íbúana þann- ig nær atvinnusvæöunum, mundi álag á götur eins og Miklubraut, Sætún og Kringlumýrarbraut minnka á mestu álagstímum. En hvers vegna í ósköpunum er þá ekki flugvöllurinn fluttur? spyrja menn, og þaö er von aö þeir spyrji. Flugvall- arskýrslan hefur m.a. verið kynnt fyrir æðstu ráðamönnum þjóöarinnar viö Austurvöll, en þaö er eins og vanalega, aö helst þarf alvarlegt slys til aö þeir ranki viö sér. Ef flugvél hrapaöi niöur í miðbæinn, gæti hún þó allt eins lent á þeim sjálfum, en viö skulum vona aö þeir vakni við flugvélardrunurnar, áöur | en þaö veröur. Á meðan bíða ónotaöir i stórkostlegir möguleikar til aö bjarga hjartasjúkdómi Reykjavíkur, bjarga miöborginni frá hægfara hrörnun vegna plássleysis, meöan verslunin lekur út í nýja miöbæi suður meö sjó, og jafn- framt möguleikar fyrir 10—12 þúsund manns til að búa nálægt miðborginni. Er þetta allt ekki einhvers viröi, og hefðum viö ekki átt aö grípa þessa lausn strax áriö 1960 í staö þess aö vera meö stórveldisdrauma um aö rífa hálfa miðborgina og byggja hraðbrautir á brúm og nýjan miöbæ úr tengslum viö þann gamla? Hugmynd grein- arhöfundar um nýtingu flugvall- arsvæðisins: Hluti miðbæjarins teygjist suður fyrir Hringbraut og út í Vatnsmýr- ina, Háskólinn fær til umráða aukið rými, en 10—15.000 manna byggð alla leið út í Skerjaf jörð og Nauthólsvík. REYKJAVIK 1:20000 0

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.