Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Síða 4
Ein af myndum norska teiknar- ans Björns Björneboe í norsku útgáf- unni af Geisla: Krypplingar í dómkrikjunni. Síðari hluti GE/SL! Ritgerð Knut Ödegárds um íslenzkt miðaldakvæði sem hann hefur þýtt á norsku Fyrsta norska krossfararskipiö fór á veg- um „Arnarunganna“. Þeir voru sérkennileg ætt sem kom mikiö við sögu Noregs á þessari trúskiptaöld kristni og heiðni í landinu. Arnarungarnir er ein af ríkustu og voldugustu ættum sem lifaö hafa í Noregi. Hún rekur forfeðratal sitt langt aftur í goð- sögutíð til gullaldarinnar, er guöirnir gengu um í döggvotu grasinu og höfðu á skjaldar- merki sínu nafn sitt og örn sem var gunn- fáni þeirra. Arnarungarnir eru í rauninni fulltrúar goösögunnar hvað snertir konungstign í Noregi. í arnarmerkinu er ættin komin fram áður en goösögn og saga renna saman, komiö þar fyrir sem ormur- inn fer á kreik eftir að hafa allt frá forsögu- legum tímum hringaö sig eins og til varnar gullfjársjóönum frá döggvotum norrænum morgni við hafiö. Sem höfðingjar með kon- ungsnafni æða arnarungarnir út yfir hafið með orminn — drekann — sem nú hefur yfirgefið gullaldarfjársjóð sinn. Ættin iítur á Harald hárfagra sem jafningja. Arnarung- arnir eru þeir sem Kálfur Árnason er fulltrúi fyrir þegar Ólafur var ráöinn af dögum, en það eru líka þeir sem sækja Magnús til Rússlands. Og fulltrúi þeirra er hæsti kirkjuhöfðinginn, Eysteinn erkibiskuþ, sem er foringi ættarinnar í baráttunni við upp- skafninginn Sverri. Og Arnarungablóöið svellur í æöum Ólafanna beggja. Þaö er eins og ættin mæti sjálfri sér á Stiklarstöð- um þegar Kálfur Árnason heggur Ólaf — og hans eigiö ættarblóö rennur yfir völlinn. Það er skýrt í sögunni með því að Finni og Kálfi Árnasonum — bróður gegn bróöur af Arnarungablóði — er teflt hvorum gegn öðrum á Stiklarstöðum: Úr orrustunni, sem samkvæmt arfsögninni ber blæ guðsdýrk- unar og fórnargjörðar, ganga bræðurnir fram sem burðarásar Guðsríkisins. í gerfi nýja krossriddarans er Arnarung- inn endurfæddur konungur. Nýtt ríki verður til og kirkjan skiptir um svip: Þjóðríkið fest- ist smámsaman í sessi um leið og Evrópa — Róm, Þýzkaland og Frakkland færist nær. Það er Karl mikli, Karl sem tók sæti í þjóðkvæðunum sem hinn hugumdjarfi Karlamagnús, og verður fyrirmynd hins nýja kristna konungs eftir að hann árið 800 hafði verið krýndur af Leó páfa þriðja („Romanorum gubernans imperium") til keisara. Með því endurfæddist rómverska ríkið í hinu heilaga rómverska ríki: ríki Krists, Guösríkinu. Þetta var sú Evrópa, sem víkingarnir þekktu og þessa mynd fluttu víkingarnir, sem orðiö höfðu fyrir afturhvarfi, Ólafur fyrsti og annar, með sér. Hún var samofin konunglegri köllun þeirra: Það var ekki ríki Haralds eitt sem endurreisa skyldi í kon- Qrein'"rlk -he,aa- Helgimyndafræðingurinn yioM.íf hratt einvaldskonung, Karlungann, sem öðlazt hafði vald sitt frá guðdóminum. „Frá sólarkonunginum", segir Einar Skúla- son í „Geisla“, fær Ólafur vald sitt, frá Guði: Og sólarkonungurinn, — jarðnesk háborg hans var í Róm, kringum stól Sankti-Péturs: Smám saman er hugsjónin um Guðsríki full, samfara því aö Róm verð- ur andlegur alríkissmiður. Jórsalaferð Siguröar konungs var farin á árunum 1108—1111. í henni tóku þátt eitt þúsund krossfararriddarar á sextíu skiþ- um. Það segir sína sögu um stærð þessara leiöangra og hvaða verkanir þeir höfðu og breytingar í norsku þjóðlífi. Helgir dómar berast til Noregs. Einar Skúlason segir í kvæöinu: hér er heilagt brot af Herrans píslar-krosstré. Krossflísin var gjöf frá Baldvin Jórsala- konungi til Siguröar Jórsalafara. Riddarinn og farandsöngvarinn spretta fram úr vík- ingahamnum: Rögnvaldur Orkneyjajarl — einnig af Arnarungakyni — verður hreinn evrópskur riddari, krossfari og farand- söngvari. Á þessum tímum gerist þaö líka að norska kirkjan snýr sér til suðurs í fullri alvöru og sogast inn á rómverska vald- svæðið: Róm hafði allt frá því á níundu öld, á dögum Karlamagnúsar og Ansgars, lagt Norðurlönd undir Hamborg (seinna Ham- borg-Brima) og heimsborgarlegt umráða- svið sitt, án þess að sú skipan hefði veru- legt aö segja þar til nú. En með því aö Hamborg-Brimar reynd- ust vera harla ótryggt virki fyrir Róm í þeim mörgu árekstrum og styrjöldum sem áttu sér stað milli páfa og keisara og einnig af því að kirkjuleg þróun á Norðurlöndum gaf það til kynna, var norrænt erkibiskupssetur stofnað í Lundi 1104. Það lítur samt sem áður út fyrir að norsku biskuparnir — þó svo að þeir væru vígðir af erkibiskupinum — hafi stýrt biskupsdæmum sínum nokk- urn veginn aö eigin geöþótta til að byrja meö, án fastbundins kirkjulegs skipulags í landinu, og þó var miklu minna um að ræða veruleg tengsl við alkirkjulegu hreyf- inguna i Evrópu. Róm hafði lengi vel engin bein áhrif á kirkjulega skipan klaustranna — einkum átti þaö við um sistersíensa-klaustrin — en hún fer einnig að láta hér til sín taka á 10. öld, og þar kemur að allir þræöir í þessari kirkjulegu alheimsklausturhreyfingu ná saman í Róm: Á árunum áður en Niðarós var gerður að andlegri miðstöö vest- norðurumráðasvæðisins, með erkibisk- upsstólnum 1152, sat aöeins einn sistersí- ansi á páfastóli — Evgenius III — og reglan stýrði þá kaþólsku kirkjunni að vissu marki. þar Ólafur helgi hvílir hækkar erkistóllinn segir Einar Skúlason í Kristskirkju í Niðar- ósi 1153. Með kórkápunni til Jóns Birgis- sonar og erkjbiskupsstóli í Niðarósi er verk Rómar fullkomnað í megindráttum hvaö varöar útvörðinn í norðri í alríkiskirkj- unni. Af sýnilegum byggingum ber dómkirkj- una hæst í vorsólinni, þar sem lífsnærandi lind Ólafs vellur einnig fram viö rætur þessa stórfenglega guöshúss, sem nú læt- ur að stjórn í kirkjulegu allsherjar umhverfi. En hér eru fleiri fallegar byggingar til þjón- ustu viö Guö. Gamla Klemenskirkjan, verndari þeirra sem sigla sjóinn, og reist af sjálfum konunginum helga. Hún stóð við gamla konungsgarðinn upþi á Eyrunum. Við Saurhlið stóð Ólafskirkja, sem Magnús góði helgaði föður sínum. Þar voru tvö guöshús, sem Haraldur harðráði hafði byggt: Gregoríusarkirkja og Maríuklrkja. Rétt viö nýja konungssetrið hafði Eysteinn konungur Magnússon reist Nikulásarkirkju. Og þar var krosskirkja, Jónskirkja, Mar- grétarkirkja og aðrar minni háttar kirkjur. i kirkjuhverfinu voru þar að auki tvö klaustur og dómskóli, eða prestaskóli. Aðeins einni öld eftir orrustuna á Stikl- arstöðum er Niöarós stórkostleg sýn mörg- um pílagrímum sem koma fótgangandi leiöina löngu að Ólafsbrunni: Frá Fegins- brekku renndu þeir sjónum yfir landslagið, sem er laugað sól, unz augun nema staðar við dómkirkjuna sem geymir helgiskríniö og hið lífgandi vatn: greitt má grunnum letta guös riddari stridum rauskr þiggr allt sem æskir Ólafr af gram solar. En innan gnæfandi bygginga og við aö því er virðist stórstökk í sögulegum atburö- um, sprettur upp andlegt líf sem spinnur þræöi milli Evrópu og Noregs — og Islands — sem eru traustari og þéttari en sýnilegar byggingar og kirkjupólitískt skipulag og samningar gátu komið til leiöar. Eigi menn að gera sér nokkra grein fyrir forsendum aö kaþólsku andlegu lífi sem skömmu eftir fall konungsins helga blómg- aöist svo ríkulega í vest-norðlægu landi, verðum við aö hverfa til mikilvægra miö- stööva f kaþólskri Evrópu þessa tíma, eins og til dæmis Parísar og Lincoln, þar sem við allt frá 9. öld rekumst á Norðmenn og íslendinga sem stúdenta og læröa menn í hámenningarborgum latneska heimsins: f miðstöð skólaspekinnar, Sankti Viktors- klaustrinu í París, þar sem dulfræði tengdi saman guðfræði, heimspeki og vísindi, rek- umst við á Sæmund fróða Sigfússon sem eftir heimkomu til íslands undir lok elleftu aldar stofnaöi mikiö lærdómssetur á óöali sínu í Odda, og Snorri Sturluson m.a. ólst upp. Skömmu seinna rekumst við þar á Norðmann, sem er kanúki við klaustriö. Þaö er Eiríkur ívarsson, sonur Niðaróss- biskups, Ivars skrauthanzka Kálfssonar ranga. — Eiríkur varð síðar erkibiskup í Niðarósi. Áhrifin frá París, þar sem svo margir Norðmenn og Islendingar voru viö nám fram eftir 11. öld, verða varla ofmetin. Niðarós gnæfir yfir sem náttúruleg andleg miðstöð í nýju kirkjunýlendunni: Þar er aö finna hálæröa andlegrar stéttar menn, sem hafa öðlazt menntun í helztu lærdómssetr- um Evrópu. Þar hljómar dýrlegur kirkju- söngur undir kirkjuhvelfingunni — og ekki sízt blómgast þar bókmenntalíf þar sem var um Provincia Nidrosiensis aö ræða sem þá var nýstofnað. Auk Noregs náði þaö til fslands, Grænlands, Færeyja, Orkneyja, Suðureyja og Manar. Hluti þess- ara bókmennta, t.d. Lux illuxit lætabunda (Ljósið glaöa geislar inn) sem ort var fyrir messuna, sýnir sambandið við Sankti Vikt- orsklaustriö. Meginland Evróþu og róm- versk-latneskur heimur kristninnar höföu togað Noreg og vest-norrænu eyjarnar til sín. En úrslitaáhrifin sem bárust svo snemma frá írlandi lifa ennþá sem hluti bænageröarinnar á 11. öld. „Geisli“, snjallasta helgikvæðið frá þess- um tímum. Það ber vissulega sterk ein- kenni andrúmsloftsins í Niöarósi, en höf- undurinn er líka án efa fslendingur. Nú gætir töluvert þeirrar venju síðar aö deila andiegu lífi milli íslendinga og Norðmanna: Á 11. öld er vart möguleiki fyrir því að setja glögg mörk milli þessara tveggja bræðra- þjóöa, þar sem markmiðið var eitt og hið sama og ættirnar fléttuöust inn í hver aöra. Þaö var varla litiö á islendinga sem út- lenda menn í Noregi. Sjá má þaö Ijóslega af því að skáldið Einar Skúlason var ekki einungis hirðskáld, en svo síöla sem á seinna helmingi 12. aldar var hann þar að auki stallari — fulltrúi — hjá Noregskon- ungi. Svo var einnig afi Eysteins erki- biskups, íslendingurinn Úlfur Óspaksson, sem giftist inn í Arnarungaættina. Allt liggur Ijóst fyrir hér um „Geisla" í Niðarós-arfsögninni og eins stendur það föstum fótum, að Einar Skúlason var ekki aðeins fæddur á fslandi, heldur bjó þar að minnsta kosti svo lengi aö nafn hans stendur í prestatali frá vestanverðu (slandi. Og á fyrri hluta 12. aldar fslands, sem hann óx upp á, var að finna ótrúlegan auð þekk- ingar — ekki sízt hvað bókmenntir snerti. Einar var af Mýramannakyni, þ.e.a.s. af ætt Skallagríms (Egill Skallagrimsson var langa-langa-langafi hans), og um leiö faeddur svo að segja í miöstöð andlegs lífs á íslandi. Næstum untantekningarlaust var þaö kirkjan, prestlærðir menn og munkar, sem stóðu að baki bókmenntalífinu á ís- landi. Áriö 1106 — svo snemma — var stofn- aö fyrsta klaustriö á fslandi, Þingeyrar- klaustur. Þaö geröi Jón Ögmundsson Hólabiskup. Klaustriö veröur brátt miöstöö skáldskapar og vísinda með Sankti-Viktor og Lincoln að fyrirmynd. Þar liföl hálæröur sagnfræöingur, Ásgrímur Vestliöason ábóti, um miöja 12. öld, og munkarnir Oddur Snorrason og Gunnlaugur Leifsson munu hafa skrifað sögurnar af Ólafi Tryggvasyni eftir honum — á latínu. Nokkru síöar var Karl Jónsson ábóti Þing- eyrarklausturs. Hann fór til Noregs þar sem hann m.a. reit Sverrissögu. Hvað varðar klausturfrömuðinn sjálfan, Jón biskup á Hólum, þá gerði hann, fyrir áhrif frá dvöl sinni í Róm og í Frakklandi, norölenzka biskupssetriö aö lærdómssetri fyrir guðfræöi, kirkjutónlist og skáldlist. Viö skólann kenndu m.a. franski guöfræöing-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.