Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 26.06.1982, Blaðsíða 8
ista- safttið á Hótel Holti 140x140 cm og viö sjáum á henni konu, sem situr á rúmi og bindur skó- þveng sinn. Þessi kona var fóstra listamannsins og myndina málaöi hann áriö 1931. Litlu síöar hélt Scheving utan til Danmerkur og hefur þá myndin verið í farangri hans. Hún ílentist þar ytra unz Þorvaldur Guömundsson rakst á hana á uppboði í Kunsthallen áriö 1973 og þar var hún slegin honum. Hann hefur miklar mætur á þessu verki og haföi þaö lengi á móti skrifboröinu sínu á skrifstofunni. En nú er myndin sumsé komin í forsalinn á Hótel Holti. Sjá mynd á forsíðu. 2Fjórir hausar eftir Kjarval blasa viö þegar komiö er inn úr dyrun- um; þeir eru raunar yfir lyftudyr- unum og myndin er öll á breidd- ina og fer vel þarna. Þessi mynd var áöur í eigu Siguröar Benediktssonar uppboðshaldara, en hefur veriö í and- dyri Hótel Holts frá stofnun þess áriö 1965. Yfir bardyrunum eru einnig þrír hausar eftir Kjarval; heitir sú mynd Gísli, Eiríkur og Helgi. Þetta er gaman- söm mynd, máluö í grófum dráttum og fer vel á sínum stað. 3Þrjár abstraktmyndir eru í for- salnum; þar á meöal er ein lítil eftir Nínu Tryggvadóttur og telst mjög dæmigerö fyrir stíl hennar eins og hann varö uppúr 1960; Margir smáir fletir yfir miöjuna takast á við stóra og heillega fleti aö ofan og neð- an. Þessu líkt mun Nína hafa málað síðasta sprettinn á ævi sinni. 4íslenzkur bóndi eftir Finn Jóns- son, 60x70 cm. Þorvaldur hefur átt þessa mynd um 20 ára skeið. Finnur hefur aö líkindum málað hana ekki löngu eftir aö hann kom heim frá Þýzkalandi, því hún minnir aö ýmsu leyti á expressjónískar myndir Finns frá því tímabili. Heimkominn tók hann aö mála þjóðleg viðfangsefni og viröist þá hafa sótt í endurminningar sínar frá uþpvextinum austur á fjörö- um. Hér fer Finnur þaö langt aftur í tímann, aö bóndi borðar úr aski — situr aö sjálfsögðu meö hann á hnján- um og tekur ekki ofan hattinn á meö- an. Færeyskur sjómaöur eftir víö- kunnasta málara Færeyinga, Mykines, er til hliðar viö sjó- mann Finns Jónssonar og eru þeir góöir saman, segir Þorvaldur. Þessi mynd Mykiness er í raun portret og ákaflega magnað í einfaldleik sín- um, málaö 1963 og stæröin 80x100 8 Hvítárnes eftir Ásgrím Jónseon. SJá texta nr. 18. Þorvaldur Guömundsson hefur safnað myndum síöan 1931 og á fágætlega gott safn. Nú er Þorvaldur aö taka í notkun nýjan og stóran sýningarsal í Hafnarfiröi og sést hann á efri myndinni. Salurinn verður opnaður og vígöur í dag meö sýningu Jóns Gunnarssonar í Hafnarfirði. Töfrar íslands eftir Jón Engilberts. Sjá texta i Ásgrlmsmyndin í mat sínum tíma gefin dan hún um 700 krónur fr sem er ur „tredobbel þrisvar sinnum meira cm. Þorvaldur keypti myndina hjá Guömundi í Klausturhólum, en Guö- mundur haföi aftur á móti keypt hana á uppboöi í Kaupmannahöfn. Síldarstúlkur á Hornafirði, 2x2 m, olíumálverk eftir Jón Þor- leifsson. Myndin er máluð 1940, þegar myndefni af þessu tagi voru í tízku og fleiri íslenzkir málarar voru einmitt þá að fást viö samskonar yrkisefni. Þrjár síldarstúlkur standa meö síldarílát á milli sín, en í baksýn eru skipin í höfninni og sjórinn. Mynd- in er í bláum og blágrænum, frekar köldum litum, tæknin og litameöferöin ættuö úr akademíinu í Kaupmanna- höfn. 7Fjörugróöur, abstraktmynd eftir Kristján Davíðsson, 2x2 m, mál- uö 1970. Þessi mynd er, eins og síldarstúlkur Jóns Þorleifssonar, innrömmuö í óvenju djúpan ramma og skýringin er sú, aö báöar voru þær á sínum tíma í Þjóöleikhúskjallaranum, sem Þorvaldur rak þá, og rammarnir voru hugsaöir sem einskonar varnar- virki til aö gestir færu síður utan í myndirnar. Nú eru þessar myndir báö- ar þar sem gengið er úr forsalnum inn á barinn. Myndina málaöi Kristján sér- staklega fyrir Þorvald og getur hún talizt mjög dæmigerö fyrir stíl hans fyrripartinn á áttunda áratugnum.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.